Það er mannauðsdeildin sem velur föstudagslagið að þessu sinni:
Eins og allir vita þá eru Backstreet boys komnir til Íslands og verða með tónleika í kvöld í höllinni. Strákarnir í Backstreet boys halda nú upp á þrjátíu ára afmæli og er um að ræða fyrsta stopp þeirra í nýrri hrinu tónleika. Þeir lofa ógleymanlegri kvöldstund og verða stelpurnar í mannauðsdeildinni að sjálfsögðu á staðnum og í alveg eins bolum. Helga verður á staðnum í kvöld, er heima í bolnum í dag:
Mannauðsdeildin er að sjálfsögðu í viðeigandi bol af þessu tilefni, Helga var ekki á staðnum þegar myndin var tekin en sendi selfie úr Mosó (mætir svo að sjálfsögðu á tónleikana í kvöld)
Backstreet Boys eru ein áhrifamesta popphljómsveit heims, margverðlaunaðir, með óteljandi slagara og metsölutúra á bakinu. Í byrjun 2019 gáfu þeir út Grammy-tilnefndu plötuna DNA og bættu þar með í safnið lögum sem hafa trónað á toppi vinsældarlista um allan heim.
Lagið sem við völdum heitir I Want It That Way sem kom út árið 1999;
Í tilefni dagsins verður boðið upp á sérstakt skráninga búst í mötuneytinu í fyrramálið til að koma öllum í skráninga gírinn. Hádegismaturinn á morgun verður heldur ekki af verri endanum því þá ætla Bjössi og Össi að framreiða skráninga bröns fyrir okkur, en brönsinn ku vera sérstaklega vel til þess fallinn til að auka skráninga úthald.
Miðlæga skjalið er hjartað og miðjan í þjónustugreiningarverkefninu og það gæti verið góð hugmynd að „pinna“ linkinn inn í „favorites“ í vafranum þínum.
Skjalið inniheldur átta flipa og hvert svið SGS hefur sinn flipa í skjalinu sem starfsmenn skrá inn í:
Verkefnið: nánari lýsing á þjónustugreiningarverkefninu, sem gott er að kynna sér.
Umferð: starfsfólk umferðarsviðs fyllir inn í þennan flipa.
Flug: starfsfólk flugsviðs fyllir inn í þennan flipa.
Siglingar: starfsfólk siglingasviðs fyllir inn í þennan flipa.
Skrifstofa forstjóra: starfsfólk á skrifstofu forstjóra fyllir inn í þennan flipa.
Stjórnsýsla: starfsfólk stjórnsýslusviðs fyllir inn í þennan flipa.
Áframsent: ef þú þarft að áframsenda erindi innanhúss, þá á að fylla út í þennan flipa og þessi flipi á við um öll svið SGS.
Málaflokkar: Forskriftir fyrir felliglugga skjalsins.
Gagnlegar upplýsingar varðandi verkefnið:
Í tvær vikur (27. apríl til og með 11. maí) skrá starfsmenn niður allar spurningar sem þeim berast í gegnum síma, tölvupósti, netspjalli eða eftir öðrum leiðum frá viðskiptavinum og/eða hagsmunaaðilum.
Það á að skrifa niður allar spurningar sem stofnuninni berast, þó sama spurningin komi oft fyrir. Það gefur okkur tölfræði yfir algengustu spurningarnar.
Reyna á að skrá niður það orðalag sem notað var í spurningunni frá notanda/viðskiptavini. Það hjálpar til við leit á Google og Island.is
Ef mál/fyrirspurn er send áfram skal skrá það í “Áframsent” flipann í skjalinu.
Ef þér finnst vanta inn í skjalið málaflokk eða annað sem má bæta, ekki hika við að skrifa það inn í athugasemda dálkinn í skjalinu.
Gæta þarf að því að draga “sleðann”, sem er fyrir ofan flipana, fremst svo dagsetning og tímasetning komi fremst í skjalinu, þegar byrjað er að skrá í skjalið.
Við uppsetningu á góðum vef er mikilvægt að vita af hverju notendur hafa samband. Það bæði hjálpar okkur að skilja notendur betur og hjálpar okkur að skrifa greinar á vef Samgöngustofu með algengustu spurningarnar í huga.
Við lok verkefnisins þann 11. maí verður boðið upp á grill & ísbílinn í hádeginu.
Ef þú hefur einhverjar spurningar varðandi verkefnið, ábendingar um hvað má bæta eða vantar aðstoð við að fylla út í skjalið, ekki hika við að hafa samband við okkur á samskipti@samgongustofa.is
Þær Katrín og Rannveig eru í Kvennakórnum Kötlu og koma fram á tónleikum undir yfirskriftinni Máttur og mýkt í Seltjarnarneskirkju á kvöld fimmtudagskvöldið 27. apríl.
=> Sérlegur afsláttarkóði fyrir starfsmenn Samgöngustofu: Hildurlilja
Gaman að kíkja og sjá samstarfskonur okkar koma fram með þessum líka skemmtilega kór 🙂
Nánar um tónleikana Máttur og mýkt, vortónleikar Kvennakórsins Kötlu verða haldnir þann 27 apríl í Seltjarnarneskirkju kl 20:00. Þar sem mátturinn mætir mýktinni vaknar áhrifaríkt samspil. Mátturinn eins og eldur, kraftur, ástríða – mýktin eins og vatn, sem streymir og nærir. Á tónleikunum skiptast þessir tveir andstæðu pólar á að ríkja, sameinast öðru hvoru og skapa töfrandi harmóníu og hughrif. Á tónleikunum verður flutt tónlist eftir m.a. Hreiðar Inga Þorsteinsson, Maríu Magnúsdóttur, Atla Heimi Sveinsson, Radiohead, Björk og Robyn. Stjórnendur eru Lilja Dögg Gunnarsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir.
Starfsfólk Samgöngustofa fékk merkta múmínbolla í innflutningsgjöf frá starfsmannafélagi Samgöngustofu þegar flutt var í Ármúla 2 á sínum tíma. Síðar tók Samgöngustofa við keflinu og fær fólk merktan bolla ca. í kringum fastráðningu, það er auðvitað frábær hvatning til að nota fjölnota kaffimál og passa uppá sinn eina bolla yfir daginn. Nú í vikunni afhentum við nokkra bolla og komumst að því að nokkrir af gömlu bollunum hafa því miður brotnað. Þau sem hafa lent í því að bollinn þeirra brotnaði geta haft samband við laun@samgongustofa.is sem skoða málið.
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands stendur fyrir heilsu- og hvatningarverkefninu „Hjólað í vinnuna“. Vinnustaðir eru hvattir til að setja upp lið og liðsstjóra og skrá sig til leiks hér og vekja athygli á virkum ferðamáta sem heilsusamlegum, umhverfisvænum og hagkvæmum samgöngumáta til og frá vinnu t.d. með því að hjóla, ganga, hlaupa eða nýta almenningssamgöngur. Ýmsan fróðleik má finna hér.
Allir eru hvattir til þess að taka þátt í Hjólað í vinnuna og hvetja aðra til þess að taka þátt með þeim. Undanfarin ár höfum við hjá Samgöngustofu verið með nokkur lið og hefur myndast samkeppni þeirra á milli. Skráum sem flest lið til leiks og tökum virkan þátt í þessu flotta framtaki!
Þið veljið sem sagt Samgöngustofu sem vinnustað og skráið liðið þar undir.
Fimmtudaginn 27. apríl hefst þjónustugreining Samgöngustofu, í samstarfi við Stafrænt Ísland, en verkefnið tengist flutningi vefs stofnunarinnar yfir á island.is. Þjónustugreiningin mun m.a. nýtast við skipulag vefsins, uppsetningu þjónustusíðna og fyrirspurnarforms á vefnum, uppsetningu þjónustukerfis og spjallmennis/netspjalls sem tekið verður í notkun á nýja vefnum.
Markmiðið með verkefninu er m.a. að greina hvaða fyrirspurnir og þjónustubeiðnir berast frá okkar viðskiptavinum og hagaðilum sem og hvenær og hverjir hér innanhúss eru að fá slíkar fyrirspurnir. Stafrænt Ísland mun svo greina tölfræðina og skila okkur skýrslu um niðurstöður þjónustugreiningarinnar. Markmiðið er að nýta greininguna til þess að létta á álagi starfsfólks við að svara erindum með vel uppsettum vef, þjónustusíðum, fyrirspurnarformi, þjónustukerfi og spjallmenni.
Kynningarfundur miðvikudaginn 26. apríl
Miðvikudaginn 26. apríl ætla fulltrúar Stafræns Íslands að mæta til okkar til að kynna verkefnið og svara þeim spurningum sem á ykkur brenna. Tveir fundartímar verða í boði: 8:10 – 9:00 og 9:10 – 10:00. Fundarboð hafa verið send út og getur fólk valið á hvorn fundin er mætt.
Hvernig fer vinnan fram?
Í tvær vikur verða allir starfsmenn Samgöngustofu, sem eru í samskiptum við ytri hagaðila og/eða viðskiptavini stofnunarinnar, beðnir um að færa inn í miðlægt Excel skjal allar spurningar og/eða erindi sem þeim berast í síma, tölvupósti, netspjalli eða eftir öðrum leiðum.
Starfsfólk sem fær til sín erindi og/eða spurningar þarf að hafa skjalið opið alla daga, á þessu tveggja vikna tímabili, og skráir inn hvaða spurningu/m var svarað eða hvaða þjónusta var veitt. Skjalið verður miðlægt á vefnum og í því eru fyrirfram ákveðnir flokkar sem merkt er við og sumar breytur, eins og tímasetningar og flokkar, koma sjálfkrafa upp. Nánar verður farið yfir skráningu í skjalið á fundinum þann 26. apríl.
Afrakstur vinnunnar
Að þessum tveimur vikum liðnum taka þau hjá Stafrænu Íslandi saman tölfræði og skýrslu sem m.a. nýtast við:
að forgangsraða því efni sem flutt verður yfir á Island.is
að koma auga á fyrirspurnir sem almenningur finnur ekki á vefnum
tryggja samræmi í svörum stofnunarinnar
setja upp þjónustuvef og fyrirspurnarform
búa til beinagrind fyrir spjallmennið/netspjallið þannig að það geti svarað sem flestum spurningum
=>Í upphafi verkefnisins mun Bjössi bjóða upp á bröns og „boost“ (27. apríl) til að koma okkur öllum í gírinn. Á lokadag verkefnisins verður boðið uppá grill og ísvagninn í hádeginu til að fagna vel unnu verki 🙂
Í gær, sumardaginn fyrsta, var haldinn Vorfagnaður bifhjólafólks á svæði Ökuskóla 3 við Álfahellu í Hafnarfirði. Við hjá Samgöngustofu stóðum að viðburðinum ásamt Ökukennarafélaginu, Ökuskóla 3 og Sniglunum en einnig kom Kvartmíluklúbburinn að undirbúningi dagsins. Haldin voru fræðsluerindi og síðan farið í akstur um æfingasvæði Ökuskólans undir leiðsögn ökukennara. Mæting var virkilega góð og gott að hittast í upphafi sumars og fara yfir öryggismálin í þessum góða hópi.
Nokkrar myndir frá gærdeginum:
Feðginin Ingólfur Snorrason og Ísabella María Ingólfsdóttir en þau stjórnuðu ásamt fleirum hringakstri um brautirnar á vegum Kvartmíluklúbbsins.
Það er hann Jakob Andri sem velur föstudagslagið að þessu sinni:
Eins og flestir þekkja þá er erfitt að velja bara eitt lag til að kynna fyrir samstarfsfólkinu. Ég þekki það hins vegar ekki því valið á þessu lagi var auðveldasta ákvörðun lífs míns. Lagið heitir Prettyboitjokko eftir tónlistarmanninn Patrik Atlason (PATRI!K). Í stuttu máli fjallar lagið um strák sem er úti á lífinu og er að eltast við stelpu en stelpan virðist hafa áhuga á öðrum strák (þekkjum við það ekki flestir?). Við það verður Patrik eitthvað leiður og spyr hann stelpuna, svo ég vitni í texta lagsins, „hvað ertu að gera fyrir þennan fávita?“ Að þessu sögðu þá talar texti lagsins fyrir sig sjálfan og eru þetta orð í tíma töluð. Ég valdi þetta lag því það hefur litað skemmtanalíf mitt síðustu helgar og þið getið verið 100% viss um að sjá mig dilla mér við þetta lag komandi helgar á AUTO Club.
Patrik tókst þá einnig að móðga alla íslenska karlmenn í viðtali hjá K100 en svo ég vitni í viðtalið þá sagði hann þetta: „Það þarf að vera eitthvað „game“ í gangi. Það þarf að vera hiti á þér. Þú þarft að vera með góða lykt. Svo þarftu að vera með eitthvað „drip“ í gangi. Þú þarft að vera með einhvern stíl. Vera í flottum fötum og aðeins að hugsa um útlitið. Það er það sem ég hef verið að impra á. Hjálpa ungum karlmönnum sem og gömlum mönnum. Hey strákar, förum aðeins út fyrir kassann. Aðeins að reyna meira. Ekki vera alltaf í sömu gömlu lufsunum.“ Tökum þetta til okkar strákar.
Endilega gefið þessu lagi eina hlustun.
Ég skora á Helga Jóhannesson úr siglingadeildinni fyrir næsta föstudag
Sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 20. apríl (á morgun), verður haldinn Vorfagnaður bifhjólafólks á svæði Ökuskóla 3 við Álfahellu í Hafnarfirði. Samgöngustofa stendur að þessu með Ökukennarafélaginu, Ökuskóla 3 og Sniglunum en einnig kemur Kvartmíluklúbburinn að undirbúningi dagsins. Fagnaðurinn hefst kl. 13 og stendur yfir til kl. 16.
Kynningarmyndband:
Dagurinn er fyrst og fremst til að tryggja öryggi bifhjólafólks sem best og búa það undir áskoranir sumarsins. Það gleymist margt og fólk fer úr æfingu á meðan hjólið stendur óhreyft yfir veturinn. Haldin verða fræðsluerindi og síðan farið í akstur um æfingasvæði Ökuskólans undir leiðsögn ökukennara. Í fyrra mættu á annað hundrað manns og meira að segja stærsti hluti bifhjóladeildar lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Samgöngustofa mun kynna slysatölfræði bifhjólafólks og þá þróun sem átt hefur sér stað í þeim efnum. Boðið verður upp á veitingar og eru allir velkomnir og þeir sem eiga mótorhjól eru hvattir til að koma á því. Við minnum svo alla hina vegfarendurna á að líta ætíð tvisvar til hliðar áður en ekið er af stað. Það gæti verið bifhjól að koma þvert á leið ykkar.
Þættinum hefur borist bréf um reykingar á lóðinni okkar hér í Ármúlanum. Bent er á að reykurinn sem kemur frá reykingum við húsið berst upp og inn um glugga starfsfólks á skrifstofunum fyrir ofan.
Sýnum samstarfsfólki tillitssemi og munum að reykingar eru bannaðar á lóðinni 🙂
Nokkur ráðningarferli hafa verið í gangi undanfarnar vikur, nýlega var gengið frá ráðningum í eftirfarandi störf:
Sumarafleysing á Ísafirði
Ásgeir Hólm Agnarsson hóf sumarafleysingar starf á Ísafirði í dag, 18. apríl. Ásgeir þekkir vel til sjómennsku og skipa, er sjómaður í grunninn og hefur t.a.m. gert út nokkra báta. Ásgeir er vélstjórnarmenntaður og í skipstjórnarnámi.
Fagstjóri náms- og skírteinamála sjóferanda
Bjarki Sigþórsson, hefur störf 1. ágúst nk., mögulega fyrr. Bjarki hefur lokið bæði skipstjórnarmenntun og lögfræðinámi. Bjarki hefur undanfarin ár starfað sem vakstjóri á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, þar áður starfaði hann lengi sem skipstjóri á ýmsum skipum og hefur gilt STWC II skírteini.
Sérfræðingur í skipatæknideild
Sören Marahrens, hefur störf 1. september nk. . Sören lauk BS og MS gráðu í rafmagnsverkfræði og upplýsingatækni frá Karlsruhe Institute of Technology í Þýskalandi. Starfsfreynsla Sören er m.a. frá Karlsruhe Institute of Technology við rannsóknir og kennslu. Frá 2021 hefur Sören starfað sem verkfræðingur hjá Nemko Gembh.
Árið í fyrra má segja að hafi verið sérstakt. Heildartölurnar voru mjög nálægt því sem þær voru árið áður (þó ívið skárri) en það ár var það versta í langan tíma. Hins vegar eru margir þættir að batna en á móti kemur að rafhlaupahjólin vega á móti öllum árangri sem næst annars staðar. Látnir og alvarlega slasaðir voru 204 í fyrra (samanborið við 208 árið á undan). Af þeim voru 96 gangandi eða hjólandi, þ.e. næstum helmingur, og af þessum 96 voru 49 á rafhlaupahjóli eða rúmlega helmingur. Því var tæpur fjórðungur allra látinna eða alvarlega slasaðra í umferðinni á rafhlaupahjóli. Það þýðir að í staðinn fyrir rúmlega 200 látna og alvarlega slasaðra væru þeir rúmlega 150. Munurinn þarna á milli er einmitt munurinn á því að ná markmiðum okkar og vera gríðarlega langt frá því (eins og við erum nú).
Fjögur gröf, smellið áfram til þess að sjá þau öll:
Í fyrra létust 9 manns í umferðinni eins og árið áður. Af þeim létust fimm innanbæjar en fjórir utan þéttbýlis. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1992 sem fleiri látast innan þéttbýlis en utan þess. Af þessum níu manns sem létust voru fjórir fótgangandi, einn á rafhlaupahjóli og fjórir í bifreið. Er þetta í fyrsta sinn síðan 1973 sem meirihluti látinna er í hópi gangandi og hjólandi.
Auk þessara frétta má nefna að ungir ökumenn standa sig mun betur en árið áður og eru aftur komnir á sama ról og þeir voru árið 2020 og áður. Slys vegna ölvunar og fíkniefna eru á pari við markmiðin sem má teljast gott því markmiðin eru nokkuð metnaðarfull.
Erlendu ferðamennirnir voru mjög öryggir í fyrra og þrátt fyrir að fjöldi þeirra hafi verið tæplega 1,7 milljónir þá slösuðust aðeins 75 þeirra. Er þetta langbesti árangurinn sem við höfum séð hvað varðar slasaða ferðamenn m.v. fjölda þeirra á landinu. Hvað varðar alvarlega slasaða ferðamenn þá voru þeir 20 og höfum við aðeins einu sinni séð færri alvarlega slasaða m.v. fjölda ferðamanna á landinu og það var árið 2020 þegar Covid geisaði og þarf að taka með ákveðnum fyrirvara. Þess má einnig geta að Kínverjar slösuðust mjög lítið í fyrra. Það hefur auðvitað dregið úr komum þeirra til landsins en þó svo að við deilum fjölda þeirra sem slösuðust með fjölda þeirra sem hingað kom þá eru Kínverjar á pari við flestar aðrar þjóðir.
Úlfur Linnet, fyndnasti maður Íslands, hélt skemmtilegan fyrirlestur í morgun í tengslum við Hjólað í vinnuna sem hefst 3. maí næstkomandi. Hann hefur sjálfur hjólað í vinnuna í 10 ár og á fimm hjól. Það var mikið hlegið enda nálgaðist hann umfjöllunarefnið á skemmtilegan hátt en fræddi okkur jafnramt um ýmislegt tengt hjólreiðum. Við ættum t.d. öll núna að þekkja muninn á latex göllum og spandex 🙂
Skráning í Hjólað í vinnuna hefst 19. apríl og hvetjum við starfsfólk til þess að stofna lið undir Samgöngustofu og taka þátt í átakinu. Verkefnið stendur svo yfir frá 3.- til 23. maí og má kynna sér allt um Hjólað í vinnuna á vef átaksins. Í fyrra tókku nokkur lið þátt frá Samgöngustofu og myndaðist skemmtileg stemning á milli liðanna og árangurinn var mjög góður.
Föstudagslagið er að þessu sinni í boði Kolbeins Arnarsonar og um val sitt segir hann:
Það er gífurlega mikil áskorun að velja eitt föstudagslag hafandi víðan tónlistarsmekk. Ég fór fram og til baka með þetta, valið stóð á milli kórtónlistar, djass, hip hops, rapps, rokks, popps eða klassískrar tónlistar. Á endanum ákvað ég þó að velja Water get no Enemy með Fela Kuti. Þetta lag hefur mikla föstudagstengingu fyrir mig en þegar ég vann á vínbarnum Port 9 spilaði ég þetta iðulega og oft á föstudögum. Lagið einkennst af stemmningu (helst oft í hendur við föstudaga) og verandi stemmningsmaður stóðst ég ekki mátið um að velja þetta lag.
Þið sem hafið ekki hlustað á þetta lag – gefið því séns! Það er vissulega tæpar tíu mínútur en ég hugsa að fæst okkar séu á Tik Tok og ættu því að vera með þokkalega góða athyglisgáfu 😉
Ég skora á Jakob Andra Þórarinsson, elskulega laganemann okkar allra, að velja næsta föstudagslag.
Þetta líka lekkera COS sjal fannst á bílastæðinu í morgun. Eiguleg flík og mikilvægt að hún rati aftur til eiganda síns. Látið orðið berast! Hangir til þerris hjá vefstjóra á 2. hæð.
P.S. Þetta er tilraun til að mæla mátt innri vefsins, þ.e. hvort hann geti keppt við hinn fræga Alla R…
Ríkisstjórnin hefur sett loftslagsmál í forgang og eru markmið stjórnvalda metnaðarfull. Draga á úr losun gróðurhúsalofttegunda um 55% eða meira til ársins 2030 miðað við losun árið 2005. Þá skulu efldar aðgerðir í kolefnisbindingu og landnotkun sem miða að því að ná markmiði um kolefnishlutleysi árið 2040. Árið 2040 skal fullum orkuskiptum náð og þannig skal Ísland verða óháð jarðefnaeldsneyti fyrst ríkja.
Skilgreindar tímasettar aðgerðir
Vegvísir að vistvænum samgöngum á Íslandi til ársins 2030 mun innihalda skilgreindar tímasettar aðgerðir sem miða að því að markmiðum um 55% samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda verði náð miðað við árið 2005.
Á árunum 2005-2020 var um þriðjungur af losun gróðurhúsalofttegunda á beinni ábyrgð Íslands vegna samgangna. Framreikningar Umhverfisstofnunar á losun gróðurhúsalofttegunda sýna að frekari aðgerða er þörf til að uppfylla markmið um samdrátt í losun. Vegvísi um vistvænar samgöngur til 2030 er því ætlað að vinna að frekari aðgerðum í samdrætti í losun frá samgöngum til að vinna að því markmiði að Ísland standi við skuldbindingar sínar og uppfylli sjálfstæð markmið.
Viðfangsefni vegvísisins verður orkuskipti í samgöngum, þ.m.t. samgöngutæki, eldsneyti og uppbygging innviða sem og leiðir til að draga úr kolefnisspori vegna uppbyggingar og reksturs samgöngumannvirkja. Heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbærni verða höfð að leiðarljósi.
Stýrihópur hefur verið skipaður um verkefnið en í honum verða fulltrúar innviðaráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, Isavia, Orkustofnun, Samgöngustofu og Vegagerðinni.
Samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins hefur Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, skipað Hermann Sæmundsson, stjórnmálafræðing og skrifstofustjóra í forsætisráðuneytinu, í embætti ráðuneytisstjóra innviðaráðuneytisins. Hermann tekur við embættinu 1. maí nk. þegar Ragnhildur Hjaltadóttir lætur af störfum.
Hermann hefur starfað í Stjórnarráði Íslands frá því í október 1996 en þá réðst hann til starfa sem sérfræðingur hjá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga í félagsmálaráðuneytinu. Hann var skipaður í embætti skrifstofustjóra í sama ráðuneyti árið 2002. Frá 2004 til 2008 var hann fulltrúi félagsmálaráðuneytis og heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytis í sendiráði Íslands í Brüssel en tók við sem skrifstofustjóri í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu að því loknu. Hermann var skipaður skrifstofustjóri skrifstofu mannréttinda og sveitarfélaga í innanríkisráðuneytinu í ársbyrjun 2011 en við uppskiptingu þess um mitt ár 2017 tók hann stöðu skrifstofustjóra skrifstofu sveitarfélaga og byggðamála í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu. Hermann var skipaður skrifstofustjóri stefnumála í forsætisráðuneytinu í október 2021.
Hermann var settur ráðuneytisstjóri í félagsmálaráðuneyti á árunum 2002 til 2004 og gegndi um langt skeið hlutverki staðgengils ráðuneytisstjóra. Hermann hefur því starfað í Stjórnarráði Íslands í hartnær 27 ár. Hann hefur samhliða embætti gegnt margvíslegum trúnaðarstörfum í umboði ráðherra. Hermann býr því yfir mikilli og fjölþættri reynslu innan Stjórnarráðsins og íslenskrar stjórnsýslu.
Hermann er fæddur árið 1965, hann tók stúdentspróf frá Fjölbrautarskóla Norðurlands vestra 1986, lauk BA prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1991 og meistaraprófi frá Háskólanum í Árósum árið 1996 í stjórnsýslu- og stjórnmálafræði.
Fjórar umsóknir bárust um embættið sem var auglýst í janúar sl. Ráðgefandi hæfnisnefnd var skipuð til að meta hæfni umsækjenda. Nefndin komst að þeirri niðurstöðu að Hermann væri hæfastur til að gegna embættinu. Eftir viðtöl ráðherra við umsækjendur og að teknu tilliti til álits hæfnisnefndar um hæfni umsækjenda var það ákvörðun ráðherra að veita Hermanni embættið.
Við óskum ykkur gleðilegra páska og vonum að þið hafið það gott í fríinu. Það er vor í loftinu, falleg birta og sumarið á næsta leyti.
Það er ekkert föstudagslag þessa vikuna en í tilefni þess að lóan er mætt til landsins er tilvalið að hlusta á lag um hana þennan síðasta vinnudag fyrir páska. Njótið frísins!
Lóan er komin að kveða burt snjóinn, að kveða burt leiðindin, það getur hún. Hún hefur sagt mér, að senn komi spóinn, sólskin í dali og blómstur í tún.
Hún hefir sagt mér til syndanna minna, ég sofi of mikið og vinni ekki hót. Hún hefir sagt mér að vakna og vinna og vonglaður taka nú sumrinu mót.
Samgöngustofa, Endurmenntun Háskóla Íslands (EHÍ) og Menntavísindasvið Háskóla Íslands hafa endurnýjað samstarfssamning sín á milli um ökukennaranám til ársins 2028.
Samkvæmt reglugerð um ökuskírteini nr. 830/2011 skal Samgöngustofa gera samning við skóla á háskólastigi til fimm ára í senn um að þar fari fram ökukennaranám. Í samningnum er kveðið á um tilhögun og tíðni námsins og að námið fari fram samkvæmt námskrá sem Samgöngustofa setur og ráðherra staðfestir.
Samningurinn sem var undirritaður á dögunum gildir í fimm ár eða til 1. apríl 2028 og leysir af hólmi fyrri samstarfssamning sem sömu aðilar gerðu árið 2018.
Gengið hefur verið frá ráðningu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild. Ráðin var Berglind Ýr Jónasdóttir.
Berglind Ýr hefur lokið einkaflugmannsprófi frá Flugskóla Íslands og atvinnuflugmannsprófi frá Orlando Flight Training school. Árið 2009 hóf hún störf hjá Iceland Express og starfaði þar sem fulltrúi í fjármáladeild, aðstoðarmaður flugkostnaðarstjóra og sem flugkostnaðarstjóri. Árið 2012 hóf hún störf hjá WOW air og starfaði þar sem flugfreyja, flugkostnaðarstjóri og sérfræðingur á flugrekstrarsviði. Undanfarið hefur Berglind unnið sem ljósmyndari.
Berglind Ýr mun hefja störf í allra síðasta lagi 1. júní nk. og verður staðsett á annarri hæð.