Ertu á leið í sumarfrí?

Mundu að skrá orlofið í Vinnustund og stilla á sjálfvirka svörun í tölvupóstinum áður en farið er í fríið.

Góð ráð:

  • Ef þú skráir sumarfríið í Vinnustund þarftu ekki að lagfæra orlofsdagana í lok tímabilsins
  • Mundu að stilla Out of office í dagatalinu í Outlook
  • Taktu fram í sjálfvirka svarinu hvenær þú kemur til baka

Hafðu það sem allra best í sumarfríiinu!


Tökum inngildingarpúlsinn

Samgöngustofa mun í haust hefja að mæla inngildinu (e. inclusion) á vinnustaðnum í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem heitir Alda.

Alda hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að mæla upplifun starfsfólks á vinnustaðamenningu og hversu inngildandi vinnustaðurinn er fyrir ólíka hópa. Úr könnuninni munum við fá okkar inngildingarskor sem gefur til kynna hversu inngildandi vinnustaðurinn okkar er og hvar við stöndum samanborið við önnur íslensk fyrirtæki. Niðurstöður gefa góða mynd af inngildingu á íslenskum vinnumarkaði og verður inngildingarvísitalan kynnt á mannauðsdeginum 4. október nk.

Þann 20. ágúst nk. verður send út örstutt könnun frá Öldu sem heitir Inngildingarpúlsinn. Könnunin er unnin af sérfræðingum hjá Öldu ásamt samstarfsaðilum þeirra frá Háskóla Íslands, Samtökunum 78 og Þroskahjálp. Frekari upplýsingar koma síðar.

Skyndibiti og ekkert föstudagskaffi

Vegna sumarleyfa í mötuneyti fellur föstudagskaffið niður núna 5. júlí. Leiðinlegt, en við lifum það af.

Af sömu ástæðu verður annar matseðill í hádeginu fimmtudag og föstudag. Þá munum við reiða okkur á ljúffengan skyndibita: Pizzur á fimmtudag og samlokur og djús frá Lemon á föstudag. Hvert og eitt greiðir fyrir sig með skráningu á skjá í matsal – eins og venjulega. Maturinn verður klár kl. 11:30 báða dagana.


Sérstakar reglur um smáfarartæki

Sérstakar reglur um smáfarartæki voru nýlega lögfestar á Alþingi og hafa þegar tekið gildi. Markmiðið er aukið umferðaröryggi. Á meðal helstu nýjunga:

  • Börn yngri en 13 ára mega ekki stýra smáfarartækjum og börn yngri en 16 ára eiga að nota hjálm við akstur þeirra.
  • Smáfarartæki skulu ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km/klst. Bannað að breyta.
  • Akstur smáfarartækja í almennri umferð er leyfður á vegum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst eða lægri – nema það sé bannað sérstaklega.
  • Refsivert verður að stjórna smáfarartæki undir áhrifum áfengis. Varðar þó ekki sviptingu ökuréttinda.

Hér má sjá nánari upplýsingar um nýju reglurnar.


11 ára í dag

Samgöngustofa á ellefu ára afmæli í dag, 1. júlí. Að því tilefni býður Bjössi upp á eitthvað extra gott í hádeginu. Maturinn í dag verður í boði Samgöngustofu.

Til hamingju með afmælið!

Hnippum í eigendur ökutækja

Eftir helgina tökum við stórt skref í þjónustu, því þá byrjum við að hnippa í eigendur ökutækja í gegnum Ísland.is.

Það þýðir að fyrsta virka dag fyrsta skoðunarmánaðar ökutækisins sendum við eigandanum (aðaleiganda eða umráðamanni) póst í gegnum Ísland.is um að nú sé komið að skoðun.

Einnig munum við hnippa í eigendur ökutækja um tveimur vikum áður en vanrækslugjald fellur á.

Ábyrgð á því að færa ökutæki til skoðunar liggur auðvitað áfram hjá eiganda eða umráðamanni.

Hnippið á Ísland.is er valkvæð þjónusta sem léttir fólki lífið. Við erum sannarlega ánægð með þennan áfanga og ætlum að taka halda áfram á sömu braut, til dæmis gagnvart skírteinishöfum í flugi og siglingum.


Afmælisfáni dreginn að húni

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, á afmæli í dag og því blaktir íslenski fáninn hér fyrir utan í Ármúlanum. Þetta er í síðasta skiptið sem fáni er dreginn að húni á afmælinu Guðna, því sem kunnugt er mun Halla Tómasdóttir taka við embætti forseta Íslands 1. ágúst nk. Hún á afmæli 11. október og þá ætlar Snorri að flagga íslenska fánanum aftur.


Sumarfólkið okkar

Fólkið sem gerir okkur hinum kleift að fara í sumarfrí er mætt til starfa. Að þessu sinni eru þau fimmtán sem ráðin voru. Á myndinni eru, frá vinstri:

Hekla Maren Jónasdóttir, leyfisveitingar og ökunám
Viktor Steinarsson, skráningar og þjónusta
Ludvig Árni Guðmundsson, lögfræði og réttindi farþega
Sara Stefánsdóttir, skráningar og þjónusta
Kristinn Örn Gunnarsson, skráningar og þjónusta
Daníel Karl Þrastarson, skráningar og þjónusta
Karen Eva Ómarsdóttir, skráningar og þjónusta
Jakub Buraczewski, skráningar og þjónusta
Benóný Svanur Sigurðsson, skráningar og þjónusta
Stefán Fannar Hallgrímsson, skráningar og þjónusta
Eva Gísladóttir, skráningar og þjónusta

Auk þeirra sem náðust á mynd vinna hér einnig í sumar:

Smári Örn Ómarsson, skráningar og þjónusta
Heiðbjört Fjóla Guðjónsdóttir, siglingasvið
Aron Dagur Beck, siglingasvið
Tómas Bent Magnússon, upplýsingatæknideild

Bjóðum þau velkomin til starfa hjá Samgöngustofu!


Ráðstefna um fisflug

Samgöngustofa tók þátt í ráðstefnu á vegum European Microlight Federation þann 14. júní sl. í samstarfi við Fisfélag Reykjavíkur.  

European Microlight Federation eru samtök fisfélaga, með yfir 60.000 meðlimi í 23 löndum innan Evrópu. 

Ráðstefnan var haldin í Flugröst og tókst vel. Þar hittu fulltrúar EMF íslenska hagaðila sem koma að fisflugi á Íslandi, m.a. frá Isavia og Flugmálafélaginu auk allra flugtengdra deilda Samgöngustofu. Nokkrir fulltrúar EMF kynntu meðal annars hvernig staða fisflugs og  útfærslur á regluverki eru í þeirra löndum. Óhætt er að segja að það sé með ýmsu móti en þarna kom í ræðustól fólk frá m.a. Frakklandi, Tékklandi, Hollandi og Svíþjóð. Einnig tók til máls fulltrúi frá EASA, Vladimir Foltin, sem sér þar um málefni tengd almannaflugi. 

Meðfylgjandi mynd var smellt af hópnum á pallinum við Flugröst, ljósmyndari er Jón Svavarsson.



 

Eftirlit með leigubílum

Talsverð umfjöllun hefur verið í fjölmiðlum um eftirlit lögreglu með leigubílum um helgina. Lögreglan kannaði þá leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra. Í næstum helmingi tilfella voru gerðar athugasemdir sem lögregla mun fylgja eftir. 

Guðrún Huld, starfsmaður Samgöngustofu, var með í för til að styðja við aðgerðirnar og leiðbeina um lög og reglur sem gilda um leyfi til leigubílaaksturs. En skv. lögum sér lögregla um vettvangseftirlit með leigubílaakstri en Samgöngustofa sinnir stjórnsýslueftirliti. 

Eftirlitið sneri m.a. að því að kanna hvort tilskilin leyfi væru til staðar og hvort leyfishafar og leigubílar uppfylla skilyrði um:

  • auðkenningu leigubíla
  • gjaldmæla
  • sýnileika verðskrár og leyfisskírteinis
  • rafræna skrá
  • aðbúnaður leigubíls
  • skráning leigubíls
  • góða viðskiptahætti



Skref í Brussel

Í gær var stigið skref í átt að fullri aðild Íslands að Eurocontrol sem tekur gildi í janúar 2025. Um var að ræða undirritun samnings um stuðning stofnunarinnar við Ísland, í formi mannauðs, þekkingar og tæknilausna, til dæmis varðandi verkefni sem stuðla að samræmingu rekstrarstjórnunar flugumferðar.

Eurocontrol er milliríkjastofnun sem styður við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Sjá einnig frétt um aðlögunarsamning Íslands við Eurocontrol.

Frá vinstri: Páll, Hlín, Guðmundur Sigurðsson, Kjartan Briem framkvæmdastjóri Isavia ANS og Jón Gunnar.

Hinn 1. júní sl. tók Guðmundur Sigurðsson, fyrrum deildarstjóri Flugfjarskipta hjá Isavia ANS við stöðu tengiliðs Íslands hjá Eurocontrol. Hlutverk hans verður að efla þekkingu og tengsl og styrkja aðildarstarf Íslands, m.a. með þátttöku í vinnuhópum.


Skútan eins árs, hip hip húrra!

Fyrir ári síðan var Skútunni, tölvukerfi fyrir skipaskrá og lögskráningu sjómanna, hleypt af stokkunum, eftir langt og strangt tímabil þróunar og smíði. Skútan geymir upplýsingar um skip á skipaskrá, skírteini og skoðanir, svo og málefni sjómanna í tengslum við útgáfu atvinnuskírteini þeirra og siglingatíma. Í stuttu máli má segja að Skútunni sé treyst fyrir upplýsingum um grundvallaratvinnuveg þjóðarinnar og því er mikið í húfi.

Reynslan þetta fyrsta ár hefur verið góð því almenn ánægja hefur verið meðal notenda með Skútuna og fáar kvartanir borist. Eins og lofað var í upphafi þá hefur þróun á kerfinu haldið áfram. Meðal gagnlegra framfara sem bæst hafa við á þessu fyrsta ári má nefna:

  • Vefþjónusta fyrir Hagstofu Íslands
  • Vefþjónusta fyrir tryggingafélög
  • Almennum skýrslum bætt í viðmót
  • Skýrslum fyrir einstaka notendahópa bætt í viðmót
  • Rafrænar skoðunarskýrslur 
  • Fjölgun upplýsinga í skipalista
  • Frum- og endurskráningu, afskráningu bætt við sem hluta af skýrslum
  • Tölfræði 

Og Skútan mun halda áfram að batna. Þau verkefni sem eru fram undan:

  • Áframhaldandi lagfæringar og viðbætur við Skútuna
  • Aðgangur að “Mínum síðum” á Ísland.is þar sem sjómenn geti séð upplýsingar um sína menntun og þjálfun, atvinnuskírteini, siglingatíma, læknisvottorð og hvenær atvinnuskírteini, öryggisnámsskeið og læknisvottorð renna út
  • Senda sjómönnum hnipp gegnum Ísland.is um það hvenær atvinnuskírteini, öryggisnámsskeið og læknisvottorð rennur út og auk þess tilkynningu um að þeir hafi verið lögskráðir eða afskráðir
  • Vefþjónusta fyrir Landhelgisgæsluna og Neyðarlínu
  • Uppfærsla á forritunarumhverfi
  • Fjölgun skýrslna og aukin tölfræði

Til hamingju með fyrsta afmæli Skútunnar!


Föstudagserindi í sumarfrí

Hin skipulögðu, fræðandi og vel sóttu erindi sem gjarnan er boðið upp á með föstudagskaffinu eru nú komin í sumarfrí. Þráðurinn verður tekinn aftur upp í september.



Hvernig tryggja skal hæfni

Nýlega fengum við kynningu á umbótum í flugleiðsögu- flugvalla- og flugverndardeildar. Þær snúa að stjórnkerfi sem tryggir að strangar kröfur um hæfni eftirlitsmanna séu uppfylltar, m.a með starfsþjálfun og viðhaldsþjálfun. Áhersla er lögð á samræmingu og samþættingu verklags fyrir þessa þrjá málaflokka, sem sameinaðir voru í eina deild árið 2022.

Hér má sjá kynninguna.





Jafnlaunavottun – niðurstöður launagreiningar 2024

Sumarið 2020 hlaut Samgöngustofa jafnlaunavottun, vottun um að stofnunin starfræki launakerfi sem stenst kröfur jafnlaunastaðalsins ÍST 85:2012. Með innleiðingu staðalsins hefur Samgöngustofa komið upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismun. Stefna Samgöngustofu er að allt starfsfólk, óháð kyni, njóti jafnra launa og sömu kjara fyrir sömu eða jafnverðmæt störf þannig að enginn ómálefnalegur launamunur sé til staðar. 

Árlega skal kynna helstu niðurstöður launagreiningar til starfsfólks. Undanfarin ár höfum við boðið upp á kynningu í matsalnum en í ár ætlum við að breyta til og voru niðurstöðurnar sendar öllu starfsfólki í tölvupósti. Niðurstöðurnar má einnig finna hér á innra netinu.

Það hjálpar okkur og kerfinu að fá endurgjöf frá starfsfólki. Ekki hika við að senda á okkur línu ef þið eruð með athugasemdir, ábendingar, gagnrýni eða spurningar. Það er hægt að gera með því að senda póst á laun@samgongustofa.is eða senda inn ábendingu í gegnum Bendil. 

Hér á innri vefnum má einnig finna fleiri upplýsingar um jafnlaunastjórnunarkerfið

Niðurstöður launagreiningar 2024

Fræðsludagur umferðasviðs

Fræðsludagur umferðarsviðs var haldinn í þriðja sinn miðvikudaginn 22. maí og lukkaðist með ágætum. Tilgangurinn með deginum er að hrista starfsfólk sviðsins saman, efla skapandi liðsheild og hafa svolítið gaman. Starfsfólk fræddist m.a. um samgöngur á höfuðborgarsvæðinu, vellíðan á vinnustað, yfirfærslu á vef Samgöngustofu yfir á Ísland.is, menningu stöðugra umbóta og rafræna próftöku.

Starfsfólk sviðsins fékk tækifæri á að sjá og prófa umgjörð hinna nýju rafrænu prófa og orðrómurinn á götunni er sá að ekki hafi öll staðist rafræna ökuprófið.

Nýr persónuverndarfulltrúi

Samkvæmt lögum þarf persónuverndarfulltrúi að vera til staðar hjá öllum stofnunum. Rakel Jensdóttir lögmaður hefur tekið að sér að gegna þessu sjálfstæða hlutverki fyrir Samgöngustofu en verður þó ekki starfmaður innan stofnunarinnar. Rakel hefur víðtæka reynslu af störfum á sviði persónuverndarréttar en hún var áður lögfræðingur hjá Persónuvernd og starfar í dag sem sjálfstæður ráðgjafi og persónuverndarfulltrúi hjá fyrirtækjum og stofnunum.

Hlutverk persónuverndarfulltrúa er m.a. að veita fræðslu og ráðgjöf vegna vinnslu persónuupplýsinga hjá Samgöngustofu og að tryggja viðhlýtandi öryggi við vinnslu. Þá svarar persónuverndarfulltrúi einnig erindum sem Samgöngustofu berast frá almenningi um vinnslu persónuupplýsinga og er tengiliður stofnunarinnar við Persónuvernd. Hafi starfsfólk spurningar eða álitaefni tengd persónuvernd er hægt að hafa samband við Rakel í gegnum netfangið: personuvernd@samgongustofa.is eða í síma 4975001.



Alþjóðlegur dagur sjókvenna

Hinn árlegi alþjóðadagur kvenna í siglingum er 18. maí samkvæmt Alþjóðasiglingamálstofnuninni IMO. Tilgangur dagsins er að meta framlag kvenna til siglingaöryggis um allan heim og leggja áherslu á þær breytingar sem eru að verða á viðhorfum til kynja í sjómennsku.

Alþjóðlegur dagur kvenna í siglingum mun að þessu sinni horfa til mikilvægis kvenna við að tryggja siglingaöryggi um allan heim og benda á breytingar sem eru að verða á kynbundnu viðhorfi í greininni.

Hvergi er meiri kynjamunur í atvinnugreinum hér á landi en í siglingum en þó er það að breytast hægt og bítandi. Heldur fleiri stelpur sækja nú nám í skipstjórn og vélstjórn, auk annarra siglinga – og sjávarútvegstengdra greina.

Bóklegu ökuprófin verða rafræn á morgun

Eins og fram kom í kynningu í föstudagskaffi í apríl stendur til að bókleg ökupróf í B-flokki (almenna bílprófið) verði tekin með rafrænum hætti.

Því er ánægjulegt að tilkynna að þetta framfaraspor verður stigið á morgun, 16. maí. Þess er vænst að það muni hafa jákvæð áhrif fyrir þúsundir ökunema, auk þess að auka gæði, öryggi og uppfærslu prófanna.

Til hamingju með áfangann duglega ökunáms- og leyfisveitingadeild og við öll!

Tækifæri til áhrifa

Ert þú til í að taka þátt í og stuðla að árangurs- og umbótamiðaðri menningu innan Samgöngustofu? Þá er tækifærið núna til að hafa áhrif. 

Tilgangur umbótahópsins er að skapa menningu stöðugra umbóta innan Samgöngustofu sem og að auka ánægju starfsfólks og viðskiptavina með aukinni skilvirkni í daglegum störfum. Hlutverk hópsins er einnig m.a. að:

  • greina og meta þörf á fræðslu fyrir starfsfólk varðandi umbótamiðaða menningu, breytingastjórnun, jákvæða vinnustaðamenningu o.fl. 
  • leggja fram tillögur að átaksverkefnum
  • hvetja starfsfólk til þátttöku og skráninga í ábendingakerfið Bendil
  • vera vakandi fyrir úrbótatækifærum í daglegu starfi

Hér má sjá nánar um hlutverk umbótahópsins. 

Umbótahópinn skipa:

Davíð Jón Rikharðsson

Díana Björk Eyþórsdóttir

Jón Gunnar Jónsson

Ólöf Friðriksdóttir – ritari

Leifur Gústafsson

Una Björg Einarsdóttir – formaður

Þú?

Þau sem geta hugsað sér að tilheyra umbótahópnum, taka þátt í kraftmiklu umbótastarfi og taka þátt í því að stuðla að menningu stöðugra umbóta mega senda tölvupóst á una.b.einarsdottir@samgongustofa.is fyrir miðvikudaginn 15. maí 🙂