Bleiki dagurinn

Í tilefni af bleika deginum klæðast mörg bleiku til stuðnings og samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein. Eftir hádegismatinn verður einnig hægt að fá sér bleika kökusneið til að toppa daginn!


Ertu nokkuð að gleyma þér?

Minnum á Októberfest Farsýslunnar, með ítölsku ívafi, sem haldið verður í matsalnum næsta fimmtudag þann 17. október.

Pub-quiz, pizzur og sérvaldir bjórar.

Skráning hér!





Til hamingju með nýja vegginn!

Framkvæmdirnar í mötuneytinu hafa ekki farið fram hjá nokkrum manni. Það er mikið gleðiefni að nýi veggurinn er kominn upp og hægt að nota mötuneytið aftur. Enn er verið að vinna í frágangi en útlitið verður betra með hverjum deginum.



Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar

Vegagerðin hefur vakið athygli okkar á að opnað hefur verið fyrir skráningu á rannsóknaráðstefnu á þeirra vegum. Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 1. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica.

Hér má lesa nánar um dagskrána og skrá sig.


Ný þjónustuhandbók

Í september var tekin í notkun ný þjónustuhandbók fyrir starfsfólk skráningar og þjónustudeildar. Þjónustuhandbókin er afrakstur rúmlega 6 mánaða vinnu verkefnahóps sem skipaður var áhugasömu starfsfólki deildarinnar. Hópurinn vann undir dyggri verkefnastjórn Unu Bjargar, verkefnastjóra umferðarsviðs.

Markmið verkefnisins var að búa til nýja þjónustuhandbók sem byggir á viðeigandi lögum og reglugerðum, efni skráningarhandbókar, uppfærðu efni úr eldri þjónustuhandbók deildarinnar sem og kröfum sem aðrar deildir og svið hafa sett fram til að tryggja gæði varðandi þjónustu stofnunarinnar.

Þjónustuhandbókar-verkefninu var skipt upp í fjóra fasa og hver fasi tók u.þ.b. einn og hálfan mánuð. Haldnir voru vikulegir stöðufundir þar sem verkefnahópurinn fór yfir hvað gekk vel og hvort það væru einhverjar hindranir í verkefninu sem þyrfti að leysa. Verkefnið var svo endurmetið eftir hvern fasa. Tímalínur verkefnahópsins stóðust og afrakstur verkefnisins er ný, stöðluð, gæðastýrð og handhæg þjónustuhandbók fyrir framlínu skráningar og þjónustudeildar. Hún mun tryggja samræmt verklag innan deildarinnar, góða þjálfun starfsfólks og stuðla að öflugra innra starfi.



Viðurkenning fyrir 9 stafræn skref

Samgöngustofa fékk í gær viðurkenningu frá Stafrænu Íslandi fyrir að hafa stigið öll níu stafrænu skrefin. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnunni “Tengjum ríkið”. Höfum við þar með fengið formlega titilinn stafrænn opinber aðili. Samstarfið við Stafrænt Ísland hefur verið farsælt og hraðað þeirri stafrænu vegferð sem við erum á. Sú vegferð snýst fyrst og fremst um fólk og upplifun þess í samskiptum við stofnanir.

Samnýting hins opinbera á stafrænum innviðum er skilvirk aðferð við að hámarka gæði, spara tíma og fara vel með okkar sameiginlegu sjóði. Við erum stolt og glöð yfir því hvað okkur hefur gengið vel. Til hamingju við öll!


Öryggið í fyrsta sæti

Hinn árlegi alþjóðasiglingadagur er haldinn í dag. Þemað að þessu sinni er Navigating the future: safety first! Það gæti útlagst sem Öryggi í fyrsta sæti – til framtíðar! Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi siglinga og áherslan minnir okkur á að öryggið skiptir öllu fyrir framtíð greinarinnar.

Siglingaöryggi hefur djúpstæð áhrif fyrir okkur sem fiskveiðiþjóð. Um miðja síðustu öld þótti nánast eðlilegt að missa jafnvel tugi manna í sjóslysum á hverju einasta ári. Með betra regluverki, menntun og þjálfun og tækniþróun, svo nokkuð sé nefnt, hefur orðið bylting í öryggisvitund sjófarenda. Undanfarna áratugi hafa þessir samverkandi þættir skilað stórstígum framförum í öryggismálum, svo dauðaslys á sjó eru sem betur fer orðin mjög fátíð.


Nýr símsvari tekinn í notkun

Á dögunum var tekinn í notkun nýr símsvari á skiptiborðinu okkar. Hann beinir viðskiptavinum beint á hópa innan Samgöngustofu og kynnir símatíma ef þeir eru til staðar. Með þessu er tilgangurinn að
– fjölga þeim sem ná sambandi án þess að tala við skiptiborð
– stytta biðtíma
– minnka álag á starfsfólk á skiptiborði.

Árangur áfram, ekkert stopp!


Bendill á ytri vef

Undanfarna mánuði hefur umbótahópurinn unnið að því að koma ytra ábendingaformi á heimasíðu Samgöngustofu. Formið er núna komið inn á heimasíðuna undir heitinu “Sendu okkur ábendingu”:

Tilgangurinn er að auðvelda fólki að láta okkur vita af því sem vel er gert eða betur má fara. Einnig er grundvallaratriði að með þessu er tryggð viðeigandi úrvinnsla ábendingu sem berast til okkar.

Í gæðahandbók Samgöngustofu er fjallað um ábendingar, skráningu og úrvinnslu: 

Ábendingar (VER-1942) 

Ábendingar: skráning VIN-2042 

Ábendingar: móttaka og val á úrvinnsluaðila VIN-2043 

Ábendingar: úrvinnsla og eftirfylgni VIN-2044 




Í síðasta skiptið…

Í morgun var gamli milliveggurinn settur upp í síðasta skiptið. Eins og nýlega kom fram í pósti frá mannauðsstjóra, þá verður mötuneytið lokað 17. – 27. september. Þá verður settur upp nýr og betri milliveggur í matsal og gerðar breytingar á geymslu og uppþvottaaðstöðu. Meðan á þessu stendur verður hægt að nálgast hádegismat í miðrýmum á 2. og 3. hæð.


Golfmót Samgöngustofu

Í dag verður haldið golfmót Samgöngustofu – þetta er árlegt mót þar sem spilað er 4 manna texas scramble. Við spilum á Keili sem er af fagmönnum talinn einn flottasti golfvöllur landsins.

Búið er að skipa í liðin og er allt útlit fyrir mjög spennandi keppni í dag og ekki skemmir þetta veður sem við fáum. Erum þakklát fyrir góða þátttöku á mótinu í ár – þetta er kjörinn vettvangur til þess að pússa kylfurnar og æfa sveifluna. Umfram allt þá verður gleðin við völd í dag.



Heimsókn frá bandarísku strandgæslunni

Dagana 12. – 16. ágúst fengum við heimsókn frá fulltrúum bandarísku strandgæslunnar (U.S. Coast Guard). Tilgangur þeirra var að kynna sér framkvæmd siglingaverndar. Heimsóknin er liður í svonefndu U.S. Coast Guard International Port Security Programme sem snýr að eftirliti með siglingavernd á heimsvísu.

Stefán Alfreðsson fagstjóri í siglingavernd skipulagði heimsóknina í samráði við U.S. Coast Guard og bandaríska sendiráðið á Íslandi og var í forsvari fyrir Samgöngustofu. Farið var heimsóknir til valinna hafna á Norður- og Austurlandi auk Faxaflóahafna og Eimskips. Einnig var haldinn kynningarfundur hjá Samgöngustofu til að kynna hlutverk SGS í siglingaverndarmálum og almenna starfsemi stofnunarinnar.

Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd voru gestirnir einstaklega heppnir með veður.



Stafræn vegferð, spjallmenni og súkkulaðikaka

Í morgunkaffinu fórum við yfir nokkra þá stafrænu áfanga sem Samgöngustofa hefur náð að undanförnu. Markmið með samstarfi okkar við Stafrænt Ísland eru m.a. að bæta þjónustu við notendur, samnýta opinbera innviði og létta álag.

Spjallmennið er nýjasti áfanginn. Með því hefur Samgöngustofa náð öllum þeim 9 stafrænu skrefum sem Stafrænt Ísland hefur skilgreint. Það er frábær árangur sem vert er að fagna.

Hér má sjá kynninguna á stafrænum skrefum Samgöngustofu.


Til hamingju með spjallmennið!

Nú er spjallmennið okkar orðið virkt á vefnum, til hamingu öll!

Spjallmennið er afrakstur mikillar vinnu hóps af starfsfólki Samgöngustofu en kemur okkur öllum til góða. Tilgangur spjallmennisins er að bæta þjónustu og fjölga samskiptaleiðum við viðskiptavini. Um leið og við tökum það í notkun, stígum við níunda og síðasta stafræna skrefið sem skilgreint hefur verið hjá Stafrænu Íslandi.

Eftir hádegi í dag verður boðið upp á gotterí á öllum hæðum til að fagna áfanganum. Á föstudaginn í næstu viku ætlum við svo að fara betur yfir stafrænu vegferðina okkar í morgunkaffinu.


Arkitektar hefja störf

Af húsnæðismálum er þetta helst: Samið hefur verið við Nordic Office of Architecture um gerð þarfagreiningar og forhönnunar í tengslum við endurbæturnar.

Þetta er stór norræn stofa sem starfar á Íslandi, Noregi og í Danmörku, með farsæla reynslu og mikla burði. Nú þegar hafa verið lögð fram drög að ferli og dæmi um tímalínu. Hluti af ferlinu eru tvær vinnustofur sem verða haldnar með fulltrúum starfsfólks af hverju sviði.

Gera má ráð fyrir að þessi fyrsti fasi, þarfagreining og forhönnun, geti tekið um fjóra mánuði.


Inngilding, hvað er nú það?

Samgöngustofa mun á næstu vikum, ásamt 80 fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi, mæla inngildingu (e. innclusion) á vinnustaðnum í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem heitir Alda. Alda hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að mæla upplifun starfsfólks á vinnustaðamenningu og hversu inngildandi vinnustaðurinn er fyrir ólíka hópa. Úr könnuninni munum við fá okkar inngildingarskor sem gefur til kynna hversu inngildandi vinnustaðurinn okkar er og hvar við stöndum saman borið við önnur íslensk fyrirtæki. 

Þann 20. ágúst nk. verður send út örstutt könnun frá Öldu sem heitir Inngildingarpúlsinn. Könnunin er unnin af sérfræðingum hjá Öldu ásamt samstarfsaðilum þeirra frá Háskóla Íslands, Samtökunum 78 og Þroskahjálp.



Staðfestur vilji til þróunar rafmagnsflugs

Samgönguráðherrar Norðurlandanna hafa undirritað viljayfirlýsingu um að efla norrænt samstarf um þróun rafmagnsflugs. Rafvæðing í flugi sé lykillinn að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í flugi og að Norðurlöndin geti gegnt mikilvægu hlutverki í þeim efnum.

Samgönguráðherrar Norðurlandanna undirrituðu viljayfirlýsingu árið 2022 um að stefna að því að þróa kolefnislausar flugleiðir á Norðurlöndum fyrir árið 2030. Yfirlýsingin nú er til staðfestingar því að Norðurlöndin hyggist halda samstarfi sínu áfram af krafti.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins.

Rafmagnsbílar fyrir umhverfið

Fyrr á árinu tók Samgöngustofa þátt í sameiginlegu útboði á rafmagnsbílum hjá hinu opinbera. Um miðjan júlí fengum við tvo nýja rafmagnsbíla afhenta af gerðinni Toyota bZ4X. Bílarnir eru nú þegar tilbúnir til bókunar í dagatalinu.

Númer þeirra eru:

  • JYP07
  • LGU37

Starfsfólk er eindregið hvatt til að velja rafmagnsbíla sem fyrsta val ef bóka þarf bíl.

Samhliða verða eldri bílarnir Nissan Leaf RVA09 og Toyota Auris FAB29 seldir.


Ertu til í að prófa enska spjallmennið?

Ef allt gengur upp fer spjallmennið í loftið á vefnum okkar í næstu viku! Fyrst þarf samt að prófa efnið vel. Áður höfum við fengið alveg frábæra aðstoð frá starfsfólki varðandi íslenska hluta spjallmennisins. Nú biðjum við þig um að hjálpa okkur að prófa enska spjallmennið.

Við biðjum þig um að skella inn í spjallmennið nokkrum spurningum á ensku, núna í þessari viku. Hlekkurinn á prófunarsíðuna er hér, þú smellir á bláu búbbluna neðst í hægra horni.

Kærar þakkir fyrir hjálpina!

Fréttir af ráðningarmálum

Mikið er að gerast í ráðningum þessa dagana hjá Samgöngustofu. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá. Hlökkum til að taka á móti öllu þessu fólki.

Árni Elvar Emilsson var ráðinn sem skipaeftirlitsmaður og hefur nú þegar hafið störf. Árni Elvar er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands. Hann starfaði hjá Viking Life á árunum 2018 – 2024 við skoðun á björgunarbúnaði fyrir skip. Þá starfaði hann á árunum 2015-2018 hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar við stálsmíði og viðhald skipa/vinnuvéla.

Dagný Björnsdóttir var ráðin sem fulltrúi í skráningar- og þjónustudeild. Hún mun hefja störf 1. ágúst nk. Dagný er með meistaranám í Hársnyrtiiðn og starfaði sem hársnyrtir á árunum 2005 – 2017. Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem sölufulltrúi og vörustjóri hjá Gullskógum ehf.

Guðrún Birna Jóhannsdóttir var ráðin sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og mun hefja störf 12. ágúst nk. Guðrún Birna er með BA í mannfræði frá Háskóla Íslands og MA í þróunarfræði frá sama skóla. Auk þess er hún með diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Guðrún Birna starfaði síðast sem gæða- og ferlasérfræðingur hjá Embætti Ríkislögreglustjóra, þá hefur hún einnig reynslu sem gæðastjóri, teymisstjóri og verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun.

Gyða Marín Bjarnadóttir var ráðin sem sérfræðingur í mannauðs- og launamálum og mun hefja störf 1. september nk. Gyða Marín er með BS gráðu í ráðgjöf og starfsþróun frá Norges teknisk-naturvidensk universitet og MA gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarin fimm ár hefur Gyða Marín starfað sem mannauðsfulltrúi hjá Þjóðkirkjunni.

Sólveig Nielsen var ráðin sem sérfræðingur í gæðamálum með áherslu á siglingar og mun hefja störf 1. október nk. Sólveig er með BA í sagnfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í verkefnastjórnun frá sama skóla. Frá árinu 2011 hefur Sólveig starfað hjá Háskóla Íslands sem verkefnastjóri á styrktarskrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs.

Hilmar Þór Pétursson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild og mun hefja störf 1. október nk. Hilmar Þór er með BS í rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc gráðu í Entrepreneurship and Innovation Management frá KTH Royal Institute of Technology í Svíþjóð. Hilmar Þór hefur starfað frá mars 2023 sem rafmagnstæknifræðingur og verkefnastjóri hjá inContext / Scania í Svíþjóð. Auk þess hefur hann starfað hjá Össur sem Production Engineer og Bionics Technician og hjá Háskólanum í Reykjavík sem aðstoðarkennari.

Lárus Long var ráðinn sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar. Lárus tók við starfi deildarstjóra í ágúst 2022 og var þá með tímabundna ráðningu hjá stofnuninni. Staðan var auglýst í maí sl. og sóttu sex um stöðuna. Að loknum viðtölum var það samhljóma mat þeirra sem komu að ráðningunni að Lárus félli best að hæfnikröfum starfsins.