Við í mannauðsdeildinni höfum stigið stórt skref og erum nú orðin alveg pappírslaus! Frá síðustu áramótum hættum við að taka við gögnum á pappír og hefur það gengið mjög vel. Þá hafa öll gögn hjá okkur verið skönnuð inn og vistuð rafrænt. Þessi breyting er liður í sjálfvirknivæðingu ferla okkar og markmiða er skýrara verklag, hraðari þjónustu og betra utanumhald gagna.
Við hlökkum til að halda áfram að bæta þjónustuna og þökkum ykkur fyrir samstarfið!
Samgöngustofa hefur undanfarin misseri unnið markvisst að því að stafvæða skráningarferli ökutækja. Þetta nær til eigendaskipta, nýskráninga og afskráninga. Deild skráninga og þjónustu setti sér skýr markmið og gerði aðgerðaráætlun. Breytingarnar hafa þegar skilað verulegum árangri: Auknum hraða, bættu öryggi og betri þjónustu fyrir notendur.
Stafræn eigendaskipti
Þann 1. maí sl. hættu skoðunarstöðvar að taka á móti eigendaskiptum á pappír að beiðni Samgöngustofu. viðskiptavinir eru þess í stað hvattir til að nýta stafræna þjónustu á Ísland.is. Eigendaskipti á pappír taka nú allt að viku, þar sem báðir aðilar fá tilkynningu í sitt stafræna pósthólf áður en breytingin er skráð, til að tryggja öryggi og koma í veg fyrir villur. Árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Hlutfall stafrænna eigendaskipta fór úr 87,6% í apríl í 92,9% í maí, sem er tæplega 6% aukning á einum mánuði.
Stafrænar nýskráningar
Flest bílaumboð nota nú stafræna vefþjónustu til nýskráninga. Í apríl var ákveðið að loka svokallaðri biðskrá, sem byggði á pappírsgögnum og handvirkri vinnslu. Þetta hafði þegar veruleg áhrif. Hlutfall stafrænna nýskráninga hefur aukist um rúm 20% síðan í mars, fór úr 76,1% í mars í 94,8% í apríl og náði 97,4% í maí.
Stafrænar afskráningar
Við eigum í samstarfi við Stafrænt Ísland og Úrvinnslusjóð um að auka stafrænar afskráningar þegar ökutæki fara til úrvinnslu. Ferlið hefur verið betrumbætt ásamt því að gefa minni móttökuaðilum eins og sveitafélögum kleift að skila inn stafrænum skilavottorðum.
Við viljum kynna fyrir ykkur nýtt og öflugt verkfæri sem við í mannauði erum farin að nýta – 50Skills Journeys. Kerfið gerir okkur kleift að setja upp sjálfvirka ferla fyrir ýmis mál tengd mannauðsmálum og styður við bæði skilvirkni og betri upplifun starfsfólks.
Þetta er ekki enn eitt kerfið sem þarf að læra á – hlekkur á Journeys er nú þegar aðgengilegur á innra netinu undir „Stofan“. Ferlið er einfalt og aðgengilegt, og nú þegar er hægt að sækja um heilsustyrki og fylla út beiðni um samgöngusamning.
Hvað gerir Stofuna (Journeys) gagnlega?
Sjálfvirkni – ferlar keyra sig sjálfir og minnka handvirka vinnu
Skýrleiki – starfsfólk fær leiðsögn í gegnum hvert skref
Yfirsýn – stjórnendur og mannauður hafa betri innsýn og eftirfylgni
Við munum smám saman bæta fleiri ferlum við, bæði fyrir starfsfólk og stjórnendur. Ef þið hafið spurningar eða hugmyndir að ferlum sem gætu nýst í starfi mannauðs, endilega sendið okkur línu á mannaudur@samgongustofa.is.
Köfun er vinsæl tómstundaiðja og mikilvæg atvinnugrein á Íslandi. Hún er einkum stunduð í ferðaþjónustu, til dæmis í Silfru á Þingvöllum, en einnig í tengslum við störf eins og mannvirkjagerð, laxeldi og aðrar framkvæmdir undir yfirborði vatns.
Til þess að tryggja öryggi notenda gilda skýrar reglur um köfun hér á landi. Þær má finna í lögum nr. 81/2018 og reglugerð nr. 535/2001. Þar er meðal annars kveðið á um kröfur til þeirra sem stunda köfun eða kenna hana, sem og til búnaðar sem notaður er við köfun.
Samgöngustofa og Landhelgisgæsla Íslands hafa samkvæmt lögum heimildir til að sinna eftirliti með köfunarstarfsemi. Nú hefur verið ákveðið að efla eftirlit á vettvangi á næstu mánuðum. Eftirlitið verður í höndum Landhelgisgæslunnar og hefst í Silfru á Þingvöllum. Í kjölfarið verður farið í skoðanir á öðrum stöðum þar sem köfun fer fram. Markmiðið er að stuðla að öruggri og faglegri köfunarþjónustu fyrir alla notendur.
Laugardaginn 31.05.2025 framkvæmdi hafnarríkiseftirlitið skoðun um borð í flutningaskipinu Musky (IMO 9688855) í Straumsvík. Skipið siglir undir fána Marshall-eyja og hefur 19 manns í áhöfn.
Við skoðun kom í ljós að matvara um borð var nánast engin og það litla sem til var hafði að mestu skemmst. Áhöfnin hafði því orðið fyrir matarskorti síðustu 3-4 daga siglingarinnar frá Brasilíu til Íslands.
Vegna þessa ástands var skipið kyrrsett. Skilyrði fyrir afléttingu var að matvæli til hið minnsta 30 daga væru komin um borð.
Þessi gerð skipa er að mörgu frábrugðin öðrum, því oft liggur ekki fyrir hver næsta viðkomuhöfn verður. Í þessu tilfelli er óljóst hvert skipið fer næst. Mögulegir áfangastaðir eru meðal annars Ástralía, sem krefst um 40 daga siglingar með a.m.k. einni viðkomu á leiðinni, eða Suður-Ameríka sem tekur um 25 daga.
Hlutverk hafnarríkiseftirlitsins er að tryggja öryggi m.a. skipsáhafna með því að kanna aðbúnað um borð. Að öðru leyti en þessu reyndist hann vera í lagi. Kyrrsetningu skipsins var aflétt í fyrradag, eftir að gengið hafði verið úr skugga um að vistir fyrir rúmlega mánuð væru komnar um borð.
Vorboðarnir ljúfu, sumarstarfsfólkið er nú byrjað mæta til starfa. Aðkoma þeirra er nauðsynleg til að við getum tekið orlof og hlaðið batteríin.
Á myndinni eru, frá vinstri: Kristinn Örn Gunnarsson, skráningar og þjónusta Jakub Buraczewski, skráningar og þjónusta Stefán Fannar Hallgrímsson, skráningar og þjónusta Daníel Karl Þrastarson, skráningar og þjónusta Sara Stefánsdóttir, skráningar og þjónusta Eva Gísladóttir, skráningar og þjónusta Karen Eva Ómarsdóttir, skráningar og þjónusta
Auk þeirra er Alex Breki Elmarsson staðsettur á Ísafirði, siglingasvið
Harpa Þ. Böðvarsdóttir, staðgengill forstjóra Samgöngustofu, undirritaði nýjan samstarfssamning um NorType verkefnið á stjórnarfundi NorType þann 20. maí sl. í Split í Króatíu.
Markmiðið með undirrituninni var að endurnýja samkomulagið um þetta mikilvæga samstarfsverkefni en fyrri samningur var frá árinu 2009. Endurnýjunin markar mikilvægt skref í áframhaldandi þróun og samstarfi aðildarlanda.
NorType er norrænt samstarfsverkefni Íslands, Noregs, Svíþjóðar og Finnlands um gagnaöflun og miðlun upplýsinga sem tengjast heildargerðarviðurkenningum ökutækja. Verkefnið hefur það að markmiði að færa tæknigögn úr heildargerðarviðurkenningum yfir á tölvutækt form til að auka skilvirkni og öryggi í skráningu ökutækja.
Verkefnið hefur verið starfrækt á Íslandi frá árinu 2000 og fagnar því 25 ára afmæli á þessu ári.
Í síðustu viku skoðaði hafnarríkiseftirlitið skólaskipið Danmark þar sem það lá við bryggju í Reykjavík en skipið gefur einstaka innsýn í fornar sjómennskuhefðir í verki. Skipið, sem sjósett var árið 1933, er í eigu danska ríkisins og er starfrækt sem fljótandi skólastofa þar sem ungt fólk fær þjálfun í hefðbundnum siglingastörfum.
Að þessu sinni voru 80 nemendur um borð, aðallega frá Danmörku en einnig frá Hollandi, Þýskalandi og Svíþjóð auk þess sem einn Íslendingur var um borð. Nemendur eru flestir á aldrinum 17 – 20 ára og um borð læra þau gamaldags siglingatækni, að setja upp segl, binda hnúta, beisla vindinn og tileinka sér almenn vinnubrögð um borð undir stjórn áhafnarinnar sem einnig sinnir almennri kennslu um allt sem viðkemur siglingum, þar með talið hafnarríkiseftirlit.
Lífið um borð í Danmark gefur nemendum góða verklega reynslu af siglingum. Nemendur sofa í hengirúmum, hjálpa til við eldamennsku og klifra jafnvel upp í hæstu möstur sem hluta af þjálfuninni. Heimsóknin var einstakt tækifæri til að sjá hvernig ungt fólk fær þjálfun í hefðbundnum siglingum.
Flugrekstrar- og skírteinadeild Samgöngustofu tók virkan þátt í Flugdeginum sem haldinn var á Reykjavíkurflugvelli laugardaginn 31. maí. Við vorum með kynningarbás þar sem fjöldi gesta leit við og við áttum góð samtöl um ýmis málefni sem tengjast málaflokknum.
Hátíðin fór vel fram í blíðskaparveðri og mikil ánægja var með dagskrána, sýnt var allt frá litlum þyrilflugum og upp í stórar þotur. Eyjólfur Ármannsson, nýr innviðaráðherra, setti hátíðina formlega og lagði í ræðu sinni áherslu á mikilvægi grósku í íslenskum flugsamgöngum og hlutverk Reykjavíkurflugvallar í því samhengi.
Við þökkum öllum sem lögðu leið sína til okkar og hlökkum til að taka þátt að nýju á næsta ári!
Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.
Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 55.900
Gisting í einn sólarhring kr. 38.600
Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 17.300
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.650
Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. júní 2025. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 2/2024.
Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.
Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir ,,Ferðareikningur innanlands”
Fyrr í vikunni rann út umsóknarfrestur um starf fulltrúa í NorType og er mikill áhugi um starfið. Enn er tækifæri til að sækja um starf sérfræðings í tæknimálum og innviðum, en umsóknarfrestur er út 2. júní n.k.
Þá hefur verið gengið frá ráðningu sérfræðinga í flugleiðsögu-, flugvalla- og flugverndardeild. Ráðin voru Guðrún Margrét Jóhannesdóttir og Markús Benediktsson.
Guðrún Margrét Jóhannesdóttir hefur starfað hjá Isavia s.l. ár sem gagnasérfræðingur og í flugvernd. Hún hefur störf núna í júní.
Markús Benediktsson hefur starfað hjá Samgöngustofu í upplýsingavinnslu undanfarin ár og þar áður sem prófstjóri bóklegra flugprófa.
Það er líf og fjör í húsnæðinu þessa dagana, því lofthæfis- og flugrekstrardeild og stjórnsýslusvið hafa skipt um ganga! Með því að endurraða skrifstofurýmum er markmiðið að bæta vinnuaðstöðu, efla samvinnu og skapa betra rými fyrir dagleg störf.
Loftæhæfi- og skrásetningardeild og flugrekstrar- og skírteinadeild hafa nú flutt upp á gang 3B og sameinast þar skírteinahluta flugrekstrardeildar og Stjórnsýslusvið hefur flutt sig niður á 2. hæð. Við hvetjum öll til að kíkja við og heilsa upp á nýju nágrannana – það er alltaf gott að tengjast betur yfir kaffibolla eða smá spjalli á ganginum.
Við vonum að þessi breyting verði öllum til hagsbóta og hlökkum til áframhaldandi samstarfs í nýju umhverfi.
Fimmtudaginn 22. maí var bryddað upp á þeirri nýlundu að bjóða öllum ökukennurum til upplýsingafundar í húsnæði Samgöngustofu. Markmiðið með fundinum var að veita upplýsingar en ekki síður að styrkja tengsl og virkja samtal. Ökunámsteymi hefur áður haldið upplýsingafundi í húsnæði Ökukennarafélags Íslands en ákvað að fara þessa leið, meðal annars í því augnamiði að ná til fleiri ökukennara. Fundurinn var mjög vel sóttur en rúmlega 60 ökukennarar sóttu hann, um það bil helmingur á teams.
Veittar voru almennar upplýsingar um rafrænu ökunámsbókina, rætt um villur sem hafa verið að koma upp við skráningu akstursmats, breytingar á lögum og reglugerðum og síðast en ekki síst var farið yfir tölfræði í bóklegum ökuprófum til almennra réttinda frá því að rafræn próftaka var tekin upp og helstu villur próftaka. Fall hefur aukist jafnt og þétt síðasta áratuginn og vafalaust eru ýmsar ástæður fyrir því, en þar má taka fram að stór hluti próftaka hefur ekki farið í gegnum ökunám. Fall jókst einnig við þá breytingu sem var gerð við innleiðingu rafrænnar próftöku en við sjáum þó að þróunin er jákvæð eftir því sem frá líður meðal þeirra sem taka ökupróf á íslensku, en meirihluti þeirra hefur sótt ökunám hjá ökuskólum og ökukennurum. Við sjáum þar hversu mikilvægu hlutverki ökukennarar gegna við að miðla námsefni og þekkingu til nemenda sinna.
Upplifun ökunámsteymis var að almenn ánægja væri með fundinn og fyrirkomulag hans þó umræður hafi hitnað á köflum. Stefnt er að því að gera slíka fundi að reglulegum viðburðum í framhaldinu.
Í síðustu viku fór fram úttekt EASA á lofthæfideildinni, en ytri úttektir eru nauðsynlegur hluti af starfsemi okkar. Umfangið er mikið, bæði í undirbúningi, framkvæmd og úrvinnslu. Bent er á það sem vel er gert en einnig það sem betur má fara. Úttektin gekk heilt yfir vel og með fáum frávikum og engum alvarlegum.
EASA teymið var skipað fólki frá Rúmeníu, Portúgal, Þýskalandi og Kýpur. Þau fóru einnig til þriggja starfsleyfishafa og komu þeir allir vel út með tiltölulega fá frávik. Við munum nýta niðurstöðurnar til að skerpa eftirlitsstarf okkar enn frekar.
Um helgina 17. og 18. stendur mikið til hjá bifhjólafólki með þátttöku Samgöngustofu – bæði norðan og sunnanlands. Bifhjólasamtök Lýðveldisins Sniglar og Tían standa fyrir Vorfagnaði bifhjólafólks á Akureyri á laugardag klukkan 14:00. Á sunnudag verður svo árlegur Vorfagnaður bifhjólafólks haldinn við Ökuskóla 3 í Hafnarfirði. Að því standa Sniglarnir, Kvartmíluklúbburinn, Ökuskóli 3 og Ökukennarafélagið ásamt Samgöngustofu. Dustað verður rykið af reynslu bifhjólafólks og lúnir liðir og viðbragð liðkað til svo auknar líkur séu á að allir geti átt öruggan og ánægjulegan akstur í sumar. Hér má sjá myndband frá vorfagnaði síðasta árs en talið er að um 300 manns hafi mætt þá.
Við ætlum að hafa samhjól á mánudaginn 19. maí þar sem veðrið þann dag á að verða rosa gott. Hittumst í portinu fyrir framan hjólagerðið kl. 15.15, hitum aðeins upp og leggjum svo í hann sem leið liggur út á Seltjarnarnes, hvar við munum staldra við á veitingastaðnum Ráðagerði og fá okkur hressingu. Hjólum svo áfram hinn svokallaða Reykjavíkurhring og fólk týnist heim eins og hentar. Þetta verður allt í rólegheitunum og öll geta hjólað með. Þátttaka í þessu samhjóli er að sjálfsögðu öllum opin og þau sem ekki hafa verið að hjóla í átakinu geta komið þennan hring með okkur og elft liðsandann auk þess að hafa gagn og gaman af!
Minni einnig á að þau sem eru gangandi eða með strætó eru einnig gjaldgeng í átakið og líka þau sem ákveða að taka bara einn dag á tímabilinu og nýta virkan ferðamáta til að koma sér í vinnu.
Skráning hér svo hægt sé að láta vita af okkur fyrirfram í Ráðagerði
Undanfarna daga hafa orðið smá breytingar í húsinu og eru fleiri á dagskrá.
Jón Gunnar hefur flutt sína skrifstofu upp á 3 hæð á ganginn hjá Siglingasviði. Mannauður hefur flutt sig um set á ganginum og eru nú komnar inn í rýmið þar sem Jón Gunnar var áður með skrifstofu.
Þá hefur gæðateymið flutt sig niður á gang 2B og eru þær í rýminu á móti mannauði.
Á sama tíma flutti Guðbjörn sig í rýmið innst á gangi 2B þar sem mannauður sat áður.