Inngilding, hvað er nú það?

Samgöngustofa mun á næstu vikum, ásamt 80 fyrirtækjum og stofnunum á Íslandi, mæla inngildingu (e. innclusion) á vinnustaðnum í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem heitir Alda. Alda hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að mæla upplifun starfsfólks á vinnustaðamenningu og hversu inngildandi vinnustaðurinn er fyrir ólíka hópa. Úr könnuninni munum við fá okkar inngildingarskor sem gefur til kynna hversu inngildandi vinnustaðurinn okkar er og hvar við stöndum saman borið við önnur íslensk fyrirtæki. 

Þann 20. ágúst nk. verður send út örstutt könnun frá Öldu sem heitir Inngildingarpúlsinn. Könnunin er unnin af sérfræðingum hjá Öldu ásamt samstarfsaðilum þeirra frá Háskóla Íslands, Samtökunum 78 og Þroskahjálp.



Staðfestur vilji til þróunar rafmagnsflugs

Samgönguráðherrar Norðurlandanna hafa undirritað viljayfirlýsingu um að efla norrænt samstarf um þróun rafmagnsflugs. Rafvæðing í flugi sé lykillinn að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í flugi og að Norðurlöndin geti gegnt mikilvægu hlutverki í þeim efnum.

Samgönguráðherrar Norðurlandanna undirrituðu viljayfirlýsingu árið 2022 um að stefna að því að þróa kolefnislausar flugleiðir á Norðurlöndum fyrir árið 2030. Yfirlýsingin nú er til staðfestingar því að Norðurlöndin hyggist halda samstarfi sínu áfram af krafti.

Sjá frétt á vef innviðaráðuneytisins.

Rafmagnsbílar fyrir umhverfið

Fyrr á árinu tók Samgöngustofa þátt í sameiginlegu útboði á rafmagnsbílum hjá hinu opinbera. Um miðjan júlí fengum við tvo nýja rafmagnsbíla afhenta af gerðinni Toyota bZ4X. Bílarnir eru nú þegar tilbúnir til bókunar í dagatalinu.

Númer þeirra eru:

  • JYP07
  • LGU37

Starfsfólk er eindregið hvatt til að velja rafmagnsbíla sem fyrsta val ef bóka þarf bíl.

Samhliða verða eldri bílarnir Nissan Leaf RVA09 og Toyota Auris FAB29 seldir.


Ertu til í að prófa enska spjallmennið?

Ef allt gengur upp fer spjallmennið í loftið á vefnum okkar í næstu viku! Fyrst þarf samt að prófa efnið vel. Áður höfum við fengið alveg frábæra aðstoð frá starfsfólki varðandi íslenska hluta spjallmennisins. Nú biðjum við þig um að hjálpa okkur að prófa enska spjallmennið.

Við biðjum þig um að skella inn í spjallmennið nokkrum spurningum á ensku, núna í þessari viku. Hlekkurinn á prófunarsíðuna er hér, þú smellir á bláu búbbluna neðst í hægra horni.

Kærar þakkir fyrir hjálpina!

Fréttir af ráðningarmálum

Mikið er að gerast í ráðningum þessa dagana hjá Samgöngustofu. Hér fyrir neðan má sjá ráðningar sem búið er að ganga frá. Hlökkum til að taka á móti öllu þessu fólki.

Árni Elvar Emilsson var ráðinn sem skipaeftirlitsmaður og hefur nú þegar hafið störf. Árni Elvar er vélfræðingur frá Vélskóla Íslands. Hann starfaði hjá Viking Life á árunum 2018 – 2024 við skoðun á björgunarbúnaði fyrir skip. Þá starfaði hann á árunum 2015-2018 hjá Vélsmiðju Orms og Víglundar við stálsmíði og viðhald skipa/vinnuvéla.

Dagný Björnsdóttir var ráðin sem fulltrúi í skráningar- og þjónustudeild. Hún mun hefja störf 1. ágúst nk. Dagný er með meistaranám í Hársnyrtiiðn og starfaði sem hársnyrtir á árunum 2005 – 2017. Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem sölufulltrúi og vörustjóri hjá Gullskógum ehf.

Guðrún Birna Jóhannsdóttir var ráðin sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála og mun hefja störf 12. ágúst nk. Guðrún Birna er með BA í mannfræði frá Háskóla Íslands og MA í þróunarfræði frá sama skóla. Auk þess er hún með diplóma í verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Guðrún Birna starfaði síðast sem gæða- og ferlasérfræðingur hjá Embætti Ríkislögreglustjóra, þá hefur hún einnig reynslu sem gæðastjóri, teymisstjóri og verkefnastjóri hjá Menntamálastofnun.

Gyða Marín Bjarnadóttir var ráðin sem sérfræðingur í mannauðs- og launamálum og mun hefja störf 1. september nk. Gyða Marín er með BS gráðu í ráðgjöf og starfsþróun frá Norges teknisk-naturvidensk universitet og MA gráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Undanfarin fimm ár hefur Gyða Marín starfað sem mannauðsfulltrúi hjá Þjóðkirkjunni.

Sólveig Nielsen var ráðin sem sérfræðingur í gæðamálum með áherslu á siglingar og mun hefja störf 1. október nk. Sólveig er með BA í sagnfræði frá Háskóla Íslands og stundar nú nám í verkefnastjórnun frá sama skóla. Frá árinu 2011 hefur Sólveig starfað hjá Háskóla Íslands sem verkefnastjóri á styrktarskrifstofu Vísinda- og nýsköpunarsviðs.

Hilmar Þór Pétursson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild og mun hefja störf 1. október nk. Hilmar Þór er með BS í rafmagnstæknifræði frá Háskólanum í Reykjavík og MSc gráðu í Entrepreneurship and Innovation Management frá KTH Royal Institute of Technology í Svíþjóð. Hilmar Þór hefur starfað frá mars 2023 sem rafmagnstæknifræðingur og verkefnastjóri hjá inContext / Scania í Svíþjóð. Auk þess hefur hann starfað hjá Össur sem Production Engineer og Bionics Technician og hjá Háskólanum í Reykjavík sem aðstoðarkennari.

Lárus Long var ráðinn sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar. Lárus tók við starfi deildarstjóra í ágúst 2022 og var þá með tímabundna ráðningu hjá stofnuninni. Staðan var auglýst í maí sl. og sóttu sex um stöðuna. Að loknum viðtölum var það samhljóma mat þeirra sem komu að ráðningunni að Lárus félli best að hæfnikröfum starfsins.

Ertu á leið í sumarfrí?

Mundu að skrá orlofið í Vinnustund og stilla á sjálfvirka svörun í tölvupóstinum áður en farið er í fríið.

Góð ráð:

  • Ef þú skráir sumarfríið í Vinnustund þarftu ekki að lagfæra orlofsdagana í lok tímabilsins
  • Mundu að stilla Out of office í dagatalinu í Outlook
  • Taktu fram í sjálfvirka svarinu hvenær þú kemur til baka

Hafðu það sem allra best í sumarfríiinu!


Tökum inngildingarpúlsinn

Samgöngustofa mun í haust hefja að mæla inngildinu (e. inclusion) á vinnustaðnum í samstarfi við íslenskt tæknifyrirtæki sem heitir Alda.

Alda hefur þróað hugbúnað sem hjálpar fyrirtækjum og stofnunum að mæla upplifun starfsfólks á vinnustaðamenningu og hversu inngildandi vinnustaðurinn er fyrir ólíka hópa. Úr könnuninni munum við fá okkar inngildingarskor sem gefur til kynna hversu inngildandi vinnustaðurinn okkar er og hvar við stöndum samanborið við önnur íslensk fyrirtæki. Niðurstöður gefa góða mynd af inngildingu á íslenskum vinnumarkaði og verður inngildingarvísitalan kynnt á mannauðsdeginum 4. október nk.

Þann 20. ágúst nk. verður send út örstutt könnun frá Öldu sem heitir Inngildingarpúlsinn. Könnunin er unnin af sérfræðingum hjá Öldu ásamt samstarfsaðilum þeirra frá Háskóla Íslands, Samtökunum 78 og Þroskahjálp. Frekari upplýsingar koma síðar.

Skyndibiti og ekkert föstudagskaffi

Vegna sumarleyfa í mötuneyti fellur föstudagskaffið niður núna 5. júlí. Leiðinlegt, en við lifum það af.

Af sömu ástæðu verður annar matseðill í hádeginu fimmtudag og föstudag. Þá munum við reiða okkur á ljúffengan skyndibita: Pizzur á fimmtudag og samlokur og djús frá Lemon á föstudag. Hvert og eitt greiðir fyrir sig með skráningu á skjá í matsal – eins og venjulega. Maturinn verður klár kl. 11:30 báða dagana.


Samstarf við Bylgjuna í sumar

Nú í sumar er Samgöngustofa í samstarfi við Bylgjuna og fleiri aðila um umferðaröryggisvitundarvakningu. Vefborðar með umferðaröryggisskilaboðum hafa verið birtir á visir.is og víðar og sömuleiðis hafa verið spilaðar stuttar auglýsingar á Bylgjunni þess efnis. Að auki fjallar dagskrárgerðarfólk Bylgjunnar, FM957 og X977 daglega um átakið og kemur þannig mikilvægum skilaboðum til skila í allt sumar.

Sérstakar reglur um smáfarartæki

Sérstakar reglur um smáfarartæki voru nýlega lögfestar á Alþingi og hafa þegar tekið gildi. Markmiðið er aukið umferðaröryggi. Á meðal helstu nýjunga:

  • Börn yngri en 13 ára mega ekki stýra smáfarartækjum og börn yngri en 16 ára eiga að nota hjálm við akstur þeirra.
  • Smáfarartæki skulu ekki hönnuð til hraðari aksturs en 25 km/klst. Bannað að breyta.
  • Akstur smáfarartækja í almennri umferð er leyfður á vegum þar sem hámarkshraði er 30 km/klst eða lægri – nema það sé bannað sérstaklega.
  • Refsivert verður að stjórna smáfarartæki undir áhrifum áfengis. Varðar þó ekki sviptingu ökuréttinda.

Hér má sjá nánari upplýsingar um nýju reglurnar.


11 ára í dag

Samgöngustofa á ellefu ára afmæli í dag, 1. júlí. Að því tilefni býður Bjössi upp á eitthvað extra gott í hádeginu. Maturinn í dag verður í boði Samgöngustofu.

Til hamingju með afmælið!

Innipúka leikur

Á samfélagsmiðlum Samgöngustofu er í gangi leikur þar sem hægt er að vinna Innipúkabrúðu. Endilega takið þátt og bendið fólki á að taka þátt í kringum ykkur sem gæti langað í Innipúka.

Hlekkur á leikinn á Instagram

Hlekkur á leikinn á Tiktok

Hlekkur á leikinn á Facebook

Hnippum í eigendur ökutækja

Eftir helgina tökum við stórt skref í þjónustu, því þá byrjum við að hnippa í eigendur ökutækja í gegnum Ísland.is.

Það þýðir að fyrsta virka dag fyrsta skoðunarmánaðar ökutækisins sendum við eigandanum (aðaleiganda eða umráðamanni) póst í gegnum Ísland.is um að nú sé komið að skoðun.

Einnig munum við hnippa í eigendur ökutækja um tveimur vikum áður en vanrækslugjald fellur á.

Ábyrgð á því að færa ökutæki til skoðunar liggur auðvitað áfram hjá eiganda eða umráðamanni.

Hnippið á Ísland.is er valkvæð þjónusta sem léttir fólki lífið. Við erum sannarlega ánægð með þennan áfanga og ætlum að taka halda áfram á sömu braut, til dæmis gagnvart skírteinishöfum í flugi og siglingum.


Umferðarþing 2024

Samgöngustofa heldur Umferðarþing föstudaginn 20. september 2024 í Gamla Bíói.

Að þessu sinni verður þemað samspil ólíkra vegfarendahópa. Munu fulltrúar vegfarendahópa greina frá sínum fararmáta, hvað er gott við hann og hvaða áskorunum þau mæta. Er ætlunin að allir vegfarendahópar geri sér grein fyrir sérstöðu og áskorunum hvers annars og munu þá öll vonandi sýna hvert öðru betri skilning í umferðinni. Markmiðið er að gera umræðuna lausnamiðaða og því höfum við fengið ríkissáttasemjara með okkur í lið. Hann mun leggja línurnar fyrir daginn og er ætlunin að nýta hans aðferðarfræði við að ná árangri. Einnig mun hann stýra pallborði í lok þingsins.

Afmælisfáni dreginn að húni

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, á afmæli í dag og því blaktir íslenski fáninn hér fyrir utan í Ármúlanum. Þetta er í síðasta skiptið sem fáni er dreginn að húni á afmælinu Guðna, því sem kunnugt er mun Halla Tómasdóttir taka við embætti forseta Íslands 1. ágúst nk. Hún á afmæli 11. október og þá ætlar Snorri að flagga íslenska fánanum aftur.


Sumarfólkið okkar

Fólkið sem gerir okkur hinum kleift að fara í sumarfrí er mætt til starfa. Að þessu sinni eru þau fimmtán sem ráðin voru. Á myndinni eru, frá vinstri:

Hekla Maren Jónasdóttir, leyfisveitingar og ökunám
Viktor Steinarsson, skráningar og þjónusta
Ludvig Árni Guðmundsson, lögfræði og réttindi farþega
Sara Stefánsdóttir, skráningar og þjónusta
Kristinn Örn Gunnarsson, skráningar og þjónusta
Daníel Karl Þrastarson, skráningar og þjónusta
Karen Eva Ómarsdóttir, skráningar og þjónusta
Jakub Buraczewski, skráningar og þjónusta
Benóný Svanur Sigurðsson, skráningar og þjónusta
Stefán Fannar Hallgrímsson, skráningar og þjónusta
Eva Gísladóttir, skráningar og þjónusta

Auk þeirra sem náðust á mynd vinna hér einnig í sumar:

Smári Örn Ómarsson, skráningar og þjónusta
Heiðbjört Fjóla Guðjónsdóttir, siglingasvið
Aron Dagur Beck, siglingasvið
Tómas Bent Magnússon, upplýsingatæknideild

Bjóðum þau velkomin til starfa hjá Samgöngustofu!


Ráðstefna um fisflug

Samgöngustofa tók þátt í ráðstefnu á vegum European Microlight Federation þann 14. júní sl. í samstarfi við Fisfélag Reykjavíkur.  

European Microlight Federation eru samtök fisfélaga, með yfir 60.000 meðlimi í 23 löndum innan Evrópu. 

Ráðstefnan var haldin í Flugröst og tókst vel. Þar hittu fulltrúar EMF íslenska hagaðila sem koma að fisflugi á Íslandi, m.a. frá Isavia og Flugmálafélaginu auk allra flugtengdra deilda Samgöngustofu. Nokkrir fulltrúar EMF kynntu meðal annars hvernig staða fisflugs og  útfærslur á regluverki eru í þeirra löndum. Óhætt er að segja að það sé með ýmsu móti en þarna kom í ræðustól fólk frá m.a. Frakklandi, Tékklandi, Hollandi og Svíþjóð. Einnig tók til máls fulltrúi frá EASA, Vladimir Foltin, sem sér þar um málefni tengd almannaflugi. 

Meðfylgjandi mynd var smellt af hópnum á pallinum við Flugröst, ljósmyndari er Jón Svavarsson.



 

Eftirlit með leigubílum

Talsverð umfjöllun hefur verið í fjölmiðlum um eftirlit lögreglu með leigubílum um helgina. Lögreglan kannaði þá leyfi 105 leigubíla og ökumanna þeirra. Í næstum helmingi tilfella voru gerðar athugasemdir sem lögregla mun fylgja eftir. 

Guðrún Huld, starfsmaður Samgöngustofu, var með í för til að styðja við aðgerðirnar og leiðbeina um lög og reglur sem gilda um leyfi til leigubílaaksturs. En skv. lögum sér lögregla um vettvangseftirlit með leigubílaakstri en Samgöngustofa sinnir stjórnsýslueftirliti. 

Eftirlitið sneri m.a. að því að kanna hvort tilskilin leyfi væru til staðar og hvort leyfishafar og leigubílar uppfylla skilyrði um:

  • auðkenningu leigubíla
  • gjaldmæla
  • sýnileika verðskrár og leyfisskírteinis
  • rafræna skrá
  • aðbúnaður leigubíls
  • skráning leigubíls
  • góða viðskiptahætti



CPC fundur á Íslandi

Dagana 6.-7. júní fengum við góða gesti úr norrænni samstarfsnefnd (CPC) um menntun atvinnubílstjóra (CPC=Driver Certificate of Professional Competence). Farið var yfir stöðuna í hverju landi fyrir sig en einnig voru álitamál út evróputilskipun rædd sem og mismunandi sýn á útfærslu. Samstarfsnefndina skipa fulltrúar frá SGS, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Svíþjóð. Hópurinn skellti sér saman í flug yfir Ísland að loknum fyrri fundardegi og náðist meðfylgjandi mynd í háloftunum.

Skref í Brussel

Í gær var stigið skref í átt að fullri aðild Íslands að Eurocontrol sem tekur gildi í janúar 2025. Um var að ræða undirritun samnings um stuðning stofnunarinnar við Ísland, í formi mannauðs, þekkingar og tæknilausna, til dæmis varðandi verkefni sem stuðla að samræmingu rekstrarstjórnunar flugumferðar.

Eurocontrol er milliríkjastofnun sem styður við flug og flugleiðsögu í Evrópu. Sjá einnig frétt um aðlögunarsamning Íslands við Eurocontrol.

Frá vinstri: Páll, Hlín, Guðmundur Sigurðsson, Kjartan Briem framkvæmdastjóri Isavia ANS og Jón Gunnar.

Hinn 1. júní sl. tók Guðmundur Sigurðsson, fyrrum deildarstjóri Flugfjarskipta hjá Isavia ANS við stöðu tengiliðs Íslands hjá Eurocontrol. Hlutverk hans verður að efla þekkingu og tengsl og styrkja aðildarstarf Íslands, m.a. með þátttöku í vinnuhópum.