Heilsumál starfsfólks – Samgöngustofa og Auðnast

Til að styðja enn betur við alhliða heilsu starfsfólks hefur Samgöngustofa gert þjónustusamning við fyrirtækið Auðnast, sem býður fyrirtækjum upp á fjölbreytta þjónustu til að efla heilsu, félagslegt öryggi og starfsánægju. 

Auðnast var stofnað í þeim tilgangi að þjónusta atvinnulífið um allt er varðar heilsu og félagslegt öryggi starfsfólks. Auðnast var stofnað árið 2014 og sama ár var Auðnast klíník opnuð en þar er boðið upp á þverfaglega meðferð, handleiðslu og ráðgjöf til einstaklinga, fjölskyldur og hópa við úrlausn mála. 

Föstudaginn 3. maí nk. verður kynning í föstudagskaffi fyrir starfsfólk á þjónustu Auðnast.

Kávitinn og Samgöngustofa

Nú í vikunni fengum við fræðsluerindi frá Janfréttisstofu; KÁvitann. Erindið var vel sótt af starfsfólki og góðar umræður sem fylgdu. Erindið er gott og þarft og mikilvægur liður í því að byggja upp góða vinnustaðamenningu.
Samgöngustofu á stefnu og áætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Stefnuna má finna í CCQ (STE-0015).

Minnum einnig á Bendil, ábendingarkerfi Samgöngustofu, það er hnappur hér á innri vefnum. Þar er hægt að koma ýmis komar ábendingum á framfæri, hægt er að senda ábendingu inn undir nafni eða nafnlaust.

Þá er ávallt velkomið að leita til mannauðsdeildar, t.d. ef fólk vill ráð eða álit á einhverju sem það hefur orðið vitni að innan stofnunarinnar t.a.m. óviðeigandi myndbirtingar á veggjum (táknræn birtingarmynd).

Stefnuna má opna með að smella >HÉR<

Hér má skoða glærur KÁvitans frá Jafnréttisstofu.

Frekari upplýsingar og orðskýringar má finna t.a.m. á heimasíðu Jafnréttisstofu.

Fræðsla gegn kynferðislegri áreitni – Kávitinn

Þriðjudaginn 7. febrúar býður Samgöngustofa starfsfólki upp á fræðslu gegn kynferðislegri áreitni. Markmið fræðslunnar er að starfsfólk og stjórnendur þekki birtingarmyndir og afleiðingar kynferðislegrar áreitni og fái verkfæri til að vinna gegn slíkri hegðun. Lögð er áhersla á aukna vitund og kynntar eru leiðir sem vinnustaðir geta nýtt sér til að búa til betra starfsumhverfi og opnari umræðu um málefnið. Sérstök áhersla er einnig lögð á ábyrgð stjórnenda og mikilvægi góðrar vinnustaðamenningar.

Boðið verður uppá tvær tímasetningar 7. feb, kl. 10:00 og kl. 13:00. Fræðslan tekur um eina klukkustund. Ólöf mannauðsstjóri hefur þegar sent út fundarboð á allt starfsfólks fyrir fundina.

Allt starfsfólk er hvatt til að mæta.
Frekari upplýsingar og fræðsluefni er hægt að nálgast t.a.m. á heimasíðu Jafnréttisstofu.

Dirty Dozen breiðir úr sér

Dirty Dozen er fræðsluefni sem Samgöngustofa hefur útbúið og tiltekur þá mannlegu þætti sem leitt geta til slysa í flugi og flugtengdri starfsemi og leggur til ráð um hvernig hægt er að fyrirbyggja slys af þeirra völdum. EASA hefur hrósað Samgöngustofu mikið fyrir efnið og hafa bæði Lufthansa og Airbus Helicopters beðið okkur um að fá að nota efnið í sínu innra starfi. Nú í vikunni fengum við fyrirspurn frá frönskum svæfingalækni sem bað um að fá að nota efnið í starfsþjálfun skurðlækna, skurðhjúkrunarfræðinga og svæfingarlækna. Væntanlega mun sá franski uppfæra myndefnið svo það tengist skurðlækningum frekar en flugi en mannlegu brestirnir eru þeir sömu alls staðar og leiðir til að koma í veg fyrir að þessir brestir leiði til slysa eru að langmestu leyti þær sömu í skurðlækningum og í flugi.

Auk þessa hefur Samgöngustofa verið að útbúa sambærileg spjöld fyrir siglingar og sjómennsku og kallast það verkefni 12 hnútar. Í desember munum við svo gefa út dagatöl ársins 2023, bæði með Dirty Dozen spjöldunum fyrir flugið og 12 hnúta spjöldunum fyrir siglingar og sjómennsku.