Búbblur & prjón snýr aftur!

SKRÁNING HÉR: https://forms.office.com/e/Y7mCCVAKaW

Bronsdekkið

Á ársfundi Orkustofnunar á Akureyri í lok september var ríkisstofnunum veittar viðurkenningar fyrir árangur í orkuskiptum. Af bifreiðum Samgöngustofu gengur helmingurinn fyrir hreinorku og því fengum við “bronsdekkið”. Næst í röðinni er silfur og gull og svo að lokum platína þegar við náum fullkomnum árangri. Gaman að því!

Bleiki dagurinn

Í tilefni af bleika deginum klæðast mörg bleiku til stuðnings og samstöðu með þeim sem greinst hafa með krabbamein. Eftir hádegismatinn verður einnig hægt að fá sér bleika kökusneið til að toppa daginn!


Hrekkjavöku-skiptimarkaður!

Árlega hefðin heldur áfram að hafa lítinn hrekkjavöku skiptimarkað fyrir búninga hér í Ármúla 2. Það er frábært að geta nýtt áfram góða búninga, lengja líftíma flíkanna og hlutanna okkar og svo er þetta líka ein af aðgerðunum í Grænu skrefunum 🙂

Dagur breytingaskeiðsins

18. október er dagur breytingaskeiðsins. Breytingaskeiðið er tímabil sem öll ganga í gegnum, en hefur oft talsvert meiri áhrif á líf kvenna. Því er mikilvægt að vekja athygli á þeim líkamlegu og andlegu breytingum sem konur standa oft frammi fyrir á þessum tíma í lífinu. Opin umræða um breytingaskeiðið er mikilvægur liður í því að auka þekkingu, útrýma fordómum og stuðla að bættri heilsu kvenna.

Þann 8. nóvember n.k. verður Halldóra Skúla frá Kvennaráð með fyrirlestur um breytingaskeiðið.

Kíkið endilega á Kvennaráð hér og lesið ykkur til um breytingaskeiðið.
Þar má finna ýmsar upplýsingar og fróðleik ásamt einkennalista.

Bleiki dagurinn – 23. október!

Mætum í bleiku og sýnum samstöðu og stuðning með þeim sem hafa greinst með krabbamein 💗

Ertu nokkuð að gleyma þér?

Minnum á Októberfest Farsýslunnar, með ítölsku ívafi, sem haldið verður í matsalnum næsta fimmtudag þann 17. október.

Pub-quiz, pizzur og sérvaldir bjórar.

Skráning hér!





Alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis

Í dag, 10.október, er alþjóðlegur dagur geðheilbrigðis.

Til hamingju með nýja vegginn!

Framkvæmdirnar í mötuneytinu hafa ekki farið fram hjá nokkrum manni. Það er mikið gleðiefni að nýi veggurinn er kominn upp og hægt að nota mötuneytið aftur. Enn er verið að vinna í frágangi en útlitið verður betra með hverjum deginum.



Rannsóknarráðstefna Vegagerðarinnar

Vegagerðin hefur vakið athygli okkar á að opnað hefur verið fyrir skráningu á rannsóknaráðstefnu á þeirra vegum. Ráðstefnan verður haldin föstudaginn 1. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica.

Hér má lesa nánar um dagskrána og skrá sig.


Tökum vel á móti nýju fólki

Í byrjun október hófu tveir nýir starfsmenn störf hjá Samgöngustofu.

Hilmar Þór Pétursson starfar sem sérfræðingur í skipatæknideild.

Sólveig Nielsen starfar sem sérfræðingur í deild stjórnunarkerfa og alþjóðamála.

Þau eru bæði staðsett á 3. hæð. Tökum vel á móti þeim 🙂

Forvarnadagar fyrir ungt fólk í umferðinni

Þetta árið hefur Samgöngustofa tekið þátt í forvarnadögum fyrir unga ökumenn á nokkrum stöðum um landið. Þátttaka Samgöngustofa var í formi umferðaröryggis fræðslu ásamt aðstoð við skipulagningu þar sem þess var þörf. 

Forvarnadagarnir byrja á umferðarfræðslu frá ólíkum aðilum og lýkur þannig að slys er sviðsett þar sem nemendur fá að fylgjast með viðbragðsaðilum bregðast við slysi.

Það er fagnaðarefni að fleiri framhaldsskólar séu farnir að leggja mikinn metnað í umferðarfræðslu fyrir unga fólkið. Það er svo mikilvægt að ná til þeirra á þeim aldri þar sem mörg þeirra eru að taka bílprófið. Með degi sem þessum vonumst við til að auka skilning unga fólksins á mikilvægi þess að taka skynsamar ákvarðanir í umferðinni.

Svona flottir dagar verða ekki til án virkilega góðrar samvinnu margra ólíkra aðila. Hverjir standa að deginum er ólíkt á hverjum stað fyrir sig en viðbragðsaðilar og skólinn leika þar aðalhlutverk. Við þökkum öllum þeim sem komu að forvarnadögunum í Akranesi, Borgarnesi, Reykjanesbæ og á Grundarfirði fyrir frábært samstarf.

Vegna umfjöllunar fjölmiðla um aðgang Samgöngustofu að sjúkraskrám

Í ljósi nýlegrar umfjöllunar fjölmiðla um aðgang Samgöngustofu að sjúkraskrám, vill stofnunin koma eftirfarandi upplýsingum á framfæri. Aðeins yfirlæknir flugsviðs Samgöngustofu hefur aðgang að sjúkraskrám og engir aðrir starfsmenn stofnunarinnar hafa haft eða hafa slíkan aðgang. Yfirlæknir flugsviðs Samgöngustofu vinnur eftir ströngum verklagsreglum og tilgangur skoðana í sjúkraskrá er að leggja mat á heilsufarsgögn umsækjanda um heilbrigðisvottorð fyrir flugliða og flugumferðarstjóra sem og læknaskýrslur fyrir öryggis- og þjónustuliða. Mikilvægt er að yfirlæknir hafi nauðsynleg gögn til þess að leggja mat á heilbrigði umsækjanda um heilbrigðisvottorð, um er að ræða mikilvægt flugöryggismál og mjög strangar kröfur gilda um heilbrigði flugliða, flugumferðarstjóra og þjónustu- og öryggisliða.

Laus störf!

Tvö störf eru laus til umsóknar, þekkir þú rétta einstaklinginn?
Sérfræðingur í þjálfunar- og skírteinamálum flugs
Sérfræðingur í deild siglinga- og hafnaeftirlits

Umsóknarfrestur er til 8. október n.k.

Dagpeningar innanlands – breytt upphæð frá og með 1. október 2024

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins. Ferðakostnaður innanlands er reiknaður út frá verðkönnun þar sem kannað er vænt verð á algengum gististöðum, á höfuðborgarsvæðinu og utan þess. Almennt er ferðakostnaði innanlands breytt tvisvar sinnum á ári, að vori og að hausti, til þess að endurspegla árstíðarsveiflu í kostnaði gistingar.

  1.  Gisting og fæði í einn sólarhring kr. 40.000
  2.  Gisting í einn sólarhring kr. 23.400
  3.  Fæði hvern heilan dag, minnst 10 tíma ferðalag kr. 16.600
  4.  Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr. 8.300

Dagpeningar þessir gilda frá og með 1. október 2024. Jafnframt fellur úr gildi auglýsing nr. 1/2024.

Athygli er vakin á að meginreglan er að greiða skal kostnað vegna ferðalaga innanlands, s.s. fargjöld, fæði og gistingu, eftir reikningi. Fæðiskostnaður er uppreiknaður miðað við breytingar á viðeigandi vísitölu sem útgefin er af Hagstofu Íslands.

Uppfært skjal má finna inní CCQ og heitir ”Ferðareikningur innanlands”.

Ný þjónustuhandbók

Í september var tekin í notkun ný þjónustuhandbók fyrir starfsfólk skráningar og þjónustudeildar. Þjónustuhandbókin er afrakstur rúmlega 6 mánaða vinnu verkefnahóps sem skipaður var áhugasömu starfsfólki deildarinnar. Hópurinn vann undir dyggri verkefnastjórn Unu Bjargar, verkefnastjóra umferðarsviðs.

Markmið verkefnisins var að búa til nýja þjónustuhandbók sem byggir á viðeigandi lögum og reglugerðum, efni skráningarhandbókar, uppfærðu efni úr eldri þjónustuhandbók deildarinnar sem og kröfum sem aðrar deildir og svið hafa sett fram til að tryggja gæði varðandi þjónustu stofnunarinnar.

Þjónustuhandbókar-verkefninu var skipt upp í fjóra fasa og hver fasi tók u.þ.b. einn og hálfan mánuð. Haldnir voru vikulegir stöðufundir þar sem verkefnahópurinn fór yfir hvað gekk vel og hvort það væru einhverjar hindranir í verkefninu sem þyrfti að leysa. Verkefnið var svo endurmetið eftir hvern fasa. Tímalínur verkefnahópsins stóðust og afrakstur verkefnisins er ný, stöðluð, gæðastýrð og handhæg þjónustuhandbók fyrir framlínu skráningar og þjónustudeildar. Hún mun tryggja samræmt verklag innan deildarinnar, góða þjálfun starfsfólks og stuðla að öflugra innra starfi.



Viðurkenning fyrir 9 stafræn skref

Samgöngustofa fékk í gær viðurkenningu frá Stafrænu Íslandi fyrir að hafa stigið öll níu stafrænu skrefin. Viðurkenningin var veitt á ráðstefnunni “Tengjum ríkið”. Höfum við þar með fengið formlega titilinn stafrænn opinber aðili. Samstarfið við Stafrænt Ísland hefur verið farsælt og hraðað þeirri stafrænu vegferð sem við erum á. Sú vegferð snýst fyrst og fremst um fólk og upplifun þess í samskiptum við stofnanir.

Samnýting hins opinbera á stafrænum innviðum er skilvirk aðferð við að hámarka gæði, spara tíma og fara vel með okkar sameiginlegu sjóði. Við erum stolt og glöð yfir því hvað okkur hefur gengið vel. Til hamingju við öll!


Öryggið í fyrsta sæti

Hinn árlegi alþjóðasiglingadagur er haldinn í dag. Þemað að þessu sinni er Navigating the future: safety first! Það gæti útlagst sem Öryggi í fyrsta sæti – til framtíðar! Dagurinn er haldinn til að vekja athygli á mikilvægi siglinga og áherslan minnir okkur á að öryggið skiptir öllu fyrir framtíð greinarinnar.

Siglingaöryggi hefur djúpstæð áhrif fyrir okkur sem fiskveiðiþjóð. Um miðja síðustu öld þótti nánast eðlilegt að missa jafnvel tugi manna í sjóslysum á hverju einasta ári. Með betra regluverki, menntun og þjálfun og tækniþróun, svo nokkuð sé nefnt, hefur orðið bylting í öryggisvitund sjófarenda. Undanfarna áratugi hafa þessir samverkandi þættir skilað stórstígum framförum í öryggismálum, svo dauðaslys á sjó eru sem betur fer orðin mjög fátíð.


Vel heppnað umferðarþing

Á föstudaginn stóðum við fyrir umferðarþingi. Yfirskriftin var: Saman í liði – Samspil ólíkra vegfarendahópa. Fulltrúar ólíkra vegfarendahópa komu saman og greindu frá ólíkum áskorunum. Mikið var lagt uppúr því að umræður dagsins væru lausnamiðaðar og til þess fallnar að auka skilning og samvinnu í umferðinni.

Ríkissáttasemjari var með hugvekju í upphafi dags og setti tóninn fyrir daginn. Bæði með lausnamiðaðri aðferðafræði sinni en svo tók hann einnig lagið með Svandísi Svavarsdóttur Innviðaráðherra, við góðar undirtektir gesta. Í lok dags stýrði hann svo pallborðsumræðum þar sem fulltrúar vegfarendahópanna áttu gott samtal um lærdóm dagsins og mikilvæg næstu skref.

Að sjálfsögðu voru svo vöfflur á boðstólum eins og venja er þegar vel gengur hjá ríkissáttasemjara.