Vel heppnuð félagsvist Farsýslunnar

Farsýslan þakkar fyrir skemmtilega samveru í félagsvistinni í gærkvöldi. Spilaðar voru tvær umferðir, snarlað á pizzu og kverkarnar vættar með bjór og gosi.

Sigurvegarar kvöldsins komu af lögfræðisviðinu, þau Sædís Birta og Jakob. Sérstök (heiðurs) verðlaun voru veitt þeim sem skoruðu lægst á skorkortinu og hlutu þær Erla Vinsý og Dröfn þau verðlaun.

Við hlökkum til næsta spilakvölds.

Skálað á gangi 3A

Gangur 3A tók sig til og skálaði tvöfalt í dag. Annars vegar fyrir glæstum sigri í jólaskreytingakeppninni og einnig fyrir því að ný skoðunarhandbók ökutækja tók gildi 1. mars. Það er ljóst að mannskapurinn á þessum gangi lætur bæði verkin tala og vinnur keppnir.

Skráning í félagsvist

Skráning er hafin í félagsvistina sem verður þann 9. mars. Einnig er óskað eftir áhugasömum ofurspilurum sem myndu treysta sér til að leiðbeina/kenna öðrum. Boðið verður upp á pizzu og bjór.

https://forms.gle/iDPLzh9dDfjzncZ47