Vel heppnuð félagsvist Farsýslunnar

Farsýslan þakkar fyrir skemmtilega samveru í félagsvistinni í gærkvöldi. Spilaðar voru tvær umferðir, snarlað á pizzu og kverkarnar vættar með bjór og gosi.

Sigurvegarar kvöldsins komu af lögfræðisviðinu, þau Sædís Birta og Jakob. Sérstök (heiðurs) verðlaun voru veitt þeim sem skoruðu lægst á skorkortinu og hlutu þær Erla Vinsý og Dröfn þau verðlaun.

Við hlökkum til næsta spilakvölds.