Tökum höndum saman

Vinnueftirlitið hefur hleypt af stað nýrri herferð gegn kynferðislegri áreitni á vinnustöðum undir yfirskriftinni #TökumHöndumSaman. Tilgangurinn er að hvetja vinnustaði til að grípa til aðgerða með forvörnum, fræðslu og markvissum viðbrögðum. Nýtt fræðsluefni og verkfæri hafa verið þróuð með það að markmiði að styðja við vinnustaði landsins í að fyrirbygga og bregðast við kynferðislegri áreitni í vinnuumhverfinu.

Mælum með að skoða heimasíðu átaksins.

https://youtu.be/4x5J8NIu-fQ

Öflug vitundarvakning um neikvæð áhrif kynferðislegrar áreitni hefur átt sér stað á undanförnum árum. Vinnueftirlitið vill leggja sín lóð á vogarskálarnar í baráttunni gegn þessari hegðun og hefur í samtarfi við samtök aðila vinnumarkaðarins, embætti landlæknis, Jafnréttisstofu og félags- og vinnumarkaðsráðuneytið hleypt af stað sérstakri aðgerðavakningu gegn kynferðislegri áreitni.

Með aðgerðavakningunni vill stofnunin hvetja vinnustaði til að gefa skýr skilaboð um að kynferðisleg áreitni sé ekki liðin og að brugðist verði við gerist þess þörf. Það er til mikils að vinna því kynferðisleg áreitni getur valdið starfsfólki heilsutjóni og haft neikvæð áhrif á árangur, framleiðni og orðspor vinnustaða.

Minnum á Stefnu og áætlun Samgöngustofu gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi, STE-0015 í CCQ.

Minnum einnig á Bendil, ábendingarhnapp CCQ, hann má opna hér á innri vefnum.

Í Bendli er hægt að senda inn ýmis konar ábendingar (sjá skjáskot). Hægt er að velja hvort ábending er send inn undir nafni eða naflaust.

Kávitinn og Samgöngustofa

Nú í vikunni fengum við fræðsluerindi frá Janfréttisstofu; KÁvitann. Erindið var vel sótt af starfsfólki og góðar umræður sem fylgdu. Erindið er gott og þarft og mikilvægur liður í því að byggja upp góða vinnustaðamenningu.
Samgöngustofu á stefnu og áætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Stefnuna má finna í CCQ (STE-0015).

Minnum einnig á Bendil, ábendingarkerfi Samgöngustofu, það er hnappur hér á innri vefnum. Þar er hægt að koma ýmis komar ábendingum á framfæri, hægt er að senda ábendingu inn undir nafni eða nafnlaust.

Þá er ávallt velkomið að leita til mannauðsdeildar, t.d. ef fólk vill ráð eða álit á einhverju sem það hefur orðið vitni að innan stofnunarinnar t.a.m. óviðeigandi myndbirtingar á veggjum (táknræn birtingarmynd).

Stefnuna má opna með að smella >HÉR<

Hér má skoða glærur KÁvitans frá Jafnréttisstofu.

Frekari upplýsingar og orðskýringar má finna t.a.m. á heimasíðu Jafnréttisstofu.