Samtal, kerfi og námskeið fyrir starfsmannasamtöl

Samtal er kerfi sem Samgöngustofa hefur tekið í notkun í þeim tilgangi að halda utan um formlega samtöl milli starfsfólks og stjórnenda.

Samtal er aðgengilegt í vefviðmóti þar sem fólk skráir sig inn með rafrænum skilríkjum. Starfsfólk kemur til með að hafa aðgang að sínum samtölum, geta undirbúið sig fyrir komandi samtal þegar yfirmaður hefur boðað til þess og munu geta skoðað eldri samtöl. Aðrir sjá ekki samtölin, sýn mannausdeildar í kerfinu er eingöngu tölfræðilegar upplýsingar, þ.e.a.s. hvort stofnað hafi verið til samtals eða ekki.

Haustið ’23 var stofnaður vinnuhópur innanhúss þar sem unnið hefur verið að því að kynna Samtal og breyta fyrirkomulagi starfsmannasamtala hjá Samgöngustofu. Niðurstaðan er breyttur spurningalisti og eitt samtal á ári í stað fjögurra (hefð hafði myndast hjá mörgum að taka tvö og tvö saman). Framvegis er stefnt að því að hafa eitt starfsmannasamtal og eitt frammistöðusamtal hvert ár. Samtal kerfið mun framvegis halda utan um fastráðningarsamtöl, starfsmannasamtöl, frammistöðusamtöl og mögulega fleira.

Samhliða þessum breytingum verður boðið uppá námskeið í áhrifaríkum samtölum dagana 1. og 2. febrúar nk. og hefur Ólöf mannauðsstjóri þegar sent tölvupóst þess efnis og óskað eftir því að fólk skrái sig á dagsetningar.

Slóð á Samtal er: samtal.advania.is, starfsfólk og yfirmenn ættu nú þegar að hafa réttan aðgang í kerfinu.

Hægt er að fræðast aðeins meira um kerfið á heimasíðu advania,
Samtal – Advania, þar er t.d. gott stutt vídjó um notkun kerfisins.

Kávitinn og Samgöngustofa

Nú í vikunni fengum við fræðsluerindi frá Janfréttisstofu; KÁvitann. Erindið var vel sótt af starfsfólki og góðar umræður sem fylgdu. Erindið er gott og þarft og mikilvægur liður í því að byggja upp góða vinnustaðamenningu.
Samgöngustofu á stefnu og áætlun gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni, ofbeldi og annarri ótilhlýðilegri háttsemi. Stefnuna má finna í CCQ (STE-0015).

Minnum einnig á Bendil, ábendingarkerfi Samgöngustofu, það er hnappur hér á innri vefnum. Þar er hægt að koma ýmis komar ábendingum á framfæri, hægt er að senda ábendingu inn undir nafni eða nafnlaust.

Þá er ávallt velkomið að leita til mannauðsdeildar, t.d. ef fólk vill ráð eða álit á einhverju sem það hefur orðið vitni að innan stofnunarinnar t.a.m. óviðeigandi myndbirtingar á veggjum (táknræn birtingarmynd).

Stefnuna má opna með að smella >HÉR<

Hér má skoða glærur KÁvitans frá Jafnréttisstofu.

Frekari upplýsingar og orðskýringar má finna t.a.m. á heimasíðu Jafnréttisstofu.