
Öskudagurinn er 22. febrúar nk. og af því tilefni setjum við upp búningaskiptimarkað hér í Ármúlanum. Fatasláin verður staðsett á 2. hæð, miðrými – við Vörina.
Í skrefi 4 í grænu skrefunum er ein aðgerð sem snýr sérstaklega að skiptimörkuðum en með slíku framtaki gerum við okkar besta til að framlengja líftíma hlutanna okkar. Minnum einnig á fataverslanir Rauða krossins, Barnaloppuna, Góða Hirðirinn og aðrar sambærilegar verslanir sem bjóða upp á gott úrval af búningum á góðu verði.
Hafið samband við Thelmu eða Helgu í mannauðsdeild ef þið hafið spurningar 🙂