Í dag kom út skýrsla með niðurstöðum úr könnuninni Öryggi barna í bíl. Könnunin var gerð við 46 leikskóla í 25 þéttbýliskjörnum víða um land og var búnaður hjá 1.854 börnum kannaður. Deildir Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sáu um framkvæmd könnunarinnar.
Gaman er að segja frá því að niðurstöður könnunarinnar halda áfram að koma betur út á heildina litið með hverju skiptinu sem hún er framkvæmd.
Hjól nemenda voru yfirfarin áður en þau lögðu af stað í verklega hjólaprófið
VSB Verkfræðistofa og Samgöngustofa hafa sett saman hjólapróf fyrir nemendur í 6. bekk í grunnskóla. Nú hafa bæði Öldutúnsskóli og Kópavogsskóli tekið prófið og gekk það mjög vel. Ferlið var nokkrar vikur, fyrst fengu þau fræðslu og skólarnir lögðu áherslu á að fræða þau um umferðaröryggi. Næsta skref var svo að nemendurnir fengu tækifæri til að reyna á þekkingu sína og tóku skriflegt próf þar sem þau svöruðu 20 spurningum um umferðarreglur. Loka skrefið var svo verklega hjólaprófið þar sem þau hjóluðu hring í sínu hverfi þar sem enn frekar reyndi á hæfni þeirra og þekkingu. Þá var líf og fjör og nemendurnir stóðu sig mjög vel og að prófi loknu útskrifuðust þau með hjólaskírteini.
Verkefnið er rannsóknarverkefni sem er styrkt af Sóley, styrktarsjóði Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hjólaprófið hefur það meginmarkmiði að fá fleiri til þess að hjóla og efla þekkingu barnanna á umferðarreglunum og öryggi sínu. Von okkar er að verkefnið stækki áfram og fari í fleiri skóla næsta vor.
Fjölmiðlar sýndu verkefninu mikinn áhugaKrakkarnir gera sig klár fyrir verklega prófiðUmferðarfræðsla fyrir hópinn
Við í Öryggis og fræðsludeild höfum undanfarna mánuði unnið að herferð í samvinnu við Einar Ben og TeiknAra. Í herferðinni vara Eggert og félagar okkur við því að „skúta upp á bak.” Tilefnið er vaxandi fjöldi slysa sem tengjast akstri rafskúta. Um fjórðungur allra látinna og alvarlega slasaðra í umferðinni voru á rafhlaupahjólum (49 af 204, þar af einn látinn).
Myndefnið er handteiknað af TeiknAra og fundum við í sameiningu leið til þess að vekja athygli á mikilvægu málefni á skemmtilegan hátt. Tryggingarfélagið Vís kom svo inn í verkefnið sem styrktaraðilar og mun því vinna með okkur í því að deila þessum mikilvæga boðskap sem víðast. Herferðin var frumsýnd á blaðamannafundi núna í hádeginu en mun nú birtast í ýmsum útgáfum og miðlum.
Við erum afskaplega stolt af þessu verkefni og okkur langar að hvetja ykkur til að deila efninu á samfélagsmiðlunum ykkar til að vekja athygli á þessu mikilvæga málefni.
Hér í spilaranum fyrir neðan getur þú séð öll myndböndin í herferðinni.
Í gær var starfsdagur stjórnsýslusviðs og fór hann að mestu fram í Flugröst. Þar voru allar deildirnar með áhugaverða fyrirlestra. Dagurinn var svo brotinn upp með heimsókn til Landhelgisgæslunnar sem var mjög fróðleg og skemmtileg. Gaman að kynnast starfseminni þar betur og fá að sjá nýja húsnæðið þeirra sem er alveg að verða klárt. Eftir starfsdaginn var farið í spurningakeppni og svo var förinni haldið í Braggann þar sem við borðuðum saman kvöldmat. Frábær dagur í alla staði.
Nú hefur Samgöngustofa tekið stórt skref í netheimum. Nú rétt í þessu var stofnaður Instagram aðgangur fyrir stofnunina. Megintilgangur með instagram síðunni er að ná betur til unga fólksins. Þar munum við setja inn fræðsluefni í forvarnarskyni ásamt því að kynna stofnunina. Hvetjum við allt starfsfólk til að skella í follow á Instagram @samgongustofa_icetra til að hjálpa okkur að vekja athygli á þessari nýju síðu okkar. Endilega deilið henni einnig með fólki í kringum ykkur sem gæti haft áhuga á að fylgjast með.
Samgöngustofa tók í dag þátt í forvarnardegi ungra ökumanna sem haldinn var í 88 húsinu í Reykjanesbæ. Gaman er að segja frá því að þetta var 19 árið í röð sem þessi forvarnardagur er haldinn í Reykjanesbæ, frábær viðburður sem önnur sveitafélög hafa tekið til fyrirmyndar.
Auk Samgöngustofu var Lögreglan með erindi og einnig fulltrúi frá TM og svo var veltibíllinn líka á staðnum. Í lok dagsins var sviðsett slys eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni. Þar mátti sjá viðbragðsaðila bregðast við slysi, lögreglan fjarlægði manneskju úr bíl sem var ofurölvi og slökkviliðið klippti hurð af bíl til þess að ná í einstaklinga sem voru þar fastir inni. Góð stemming var á deginum og ungmennin áhugasöm um þetta mikilvæga málefni.
Í janúar fórum við aftur af stað umferðarfræðslu í framhaldsskóla eftir langa pásu í kringum Covid. Bjarklind í öryggis- og fræðsludeild sér um að fara í framhaldsskólana og nú þegar hefur hún farið í FÁ, Kvennó og MH og fleiri fyrirlestrar hafa verið bókaðir á næstu vikum.
Í fræðslunni er farið yfir bílprófið, sekti og punkta og umferðaröryggi. Sérstök áhersla er lögð á að vera ekki í símanum undir stýri, beltanotkun og að keyra ekki undir áhrifum. Vel hefur verið tekið á móti okkur og ungmennin einstaklega áhugasöm um viðfagsefnið.