
VSB Verkfræðistofa og Samgöngustofa hafa sett saman hjólapróf fyrir nemendur í 6. bekk í grunnskóla. Nú hafa bæði Öldutúnsskóli og Kópavogsskóli tekið prófið og gekk það mjög vel. Ferlið var nokkrar vikur, fyrst fengu þau fræðslu og skólarnir lögðu áherslu á að fræða þau um umferðaröryggi. Næsta skref var svo að nemendurnir fengu tækifæri til að reyna á þekkingu sína og tóku skriflegt próf þar sem þau svöruðu 20 spurningum um umferðarreglur. Loka skrefið var svo verklega hjólaprófið þar sem þau hjóluðu hring í sínu hverfi þar sem enn frekar reyndi á hæfni þeirra og þekkingu. Þá var líf og fjör og nemendurnir stóðu sig mjög vel og að prófi loknu útskrifuðust þau með hjólaskírteini.
Verkefnið er rannsóknarverkefni sem er styrkt af Sóley, styrktarsjóði Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Hjólaprófið hefur það meginmarkmiði að fá fleiri til þess að hjóla og efla þekkingu barnanna á umferðarreglunum og öryggi sínu. Von okkar er að verkefnið stækki áfram og fari í fleiri skóla næsta vor.


