Opið samráð um birtingu upplýsinga um losun gróðurhúsalofttegunda

Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið opið samráð um tillögu að nýrri reglugerð um það hvernig standa eigi skil á og birta upplýsingar um losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum. Frestur til að koma að athugasemdum og sjónarmiðum er til og með 17. október 2022.

Markmiðið með tillögunni er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í ferðum og flutningum. Það á að gera með því að skapa samræmda aðferð til að reikna út losun auk þess sem skapa á hvata til að draga úr losuninni og hafa áhrif á hegðun fólks. Eftirtalin atriði eru talin mikilvægust til að ná markmiðinu:

Samræmd framsetning og birting á losun gróðurhúsalofttegunda frá fyrirtækjum sem flytja farþega og vörur.

Áreiðanlegar upplýsingar um losun frá tilteknum tegundum af þjónustu.

Stuðlað að því að tekin verði upp reikningsskil í fyrirtækjum sem ná yfir losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum.

Dagpeningar og akstursgjald

Ferðakostnaðarnefnd hefur ákveðið dagpeninga til greiðslu gisti- og fæðiskostnaðar ríkisstarfsmanna á ferðalögum innanlands á vegum ríkisins sem hér segir:

Dagpeningar:Var:Verður:
Gisting og fæði í einn sólarhring42.40034.500
Gisting í einn sólarhring28.80020.400
Fæði hvern heilan dg, minnst 10 tíma ferðalag13.60014.100
Fæði í hálfan dag, minnst 6 tíma ferðalag kr6.8007.050

Akstursgjald

Akstursgjald breytist einnig úr 120 kr. á km í 134 kr. á km.

Uppfært ferðabeiðnaskjal má nálgast undir Samgöngustofa – Verklagsreglur hér á innri vefnum.






Föstudagslagið í boði Snorra

Uriah Heep – Photos – ANKH TV

Það er hann Snorri Snorrason sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um valið segir Snorri:

Hér er lag vikunnar frá mér sem kemur öllum í gott stuð fyrir helgina. Ég lærði fyrst að meta svona Rokk eftir að ég hafði hlustað á Uriah Heep sem ungur maður.

Ég skora á Pál viðar fyrir næstu viku


Upptökur af erindum á Umferðarþingi

UMFERDARThING.banner.2022

Eins og fram hefur komið þá var Umferðarþing haldið föstudaginn 23. september síðastliðinn. Hér að neðan má sjá stutt yfirlitsmyndband af umferðarþingi en hægt er að horfa á öll erindin í réttri röð á spilunarlista hér: Umferðarþing á YouTube

Undir myndbandinu má sjá dagskrá þingsins, upptökur erinda og þær glærur / slæður sem fyrirlesarar höfðu uppi á skjá.

Smelltu hér til þess að fara á síðu umferðarþings þar sem nálgast má upptökur og slæður fyrirlesara


9:00 – 9:10
Velkomin og setning umferðarþings
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu
Upptaka

9:10 – 9:20

Ávarp innviðaráðherra
Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
Upptaka

9:20 – 9:45
Þróun slysa meðal virkra vegfarenda
Gunnar Geir Gunnarsson, deildarstjóri hjá Samgöngustofu
Slæður
Upptaka

9:45- 10:15
Blikksmiðurinn á Suðurlandi lifir bíllausum lífsstíl
Sindri Freyr Ásgeirsson, formaður Samtaka um bíllausan lífsstíl
Upptaka

10:30 – 11:00
Hjálmurinn skiptir höfuðmáli
Svanfríður A. Lárusdóttir, verkefnisstjóri hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörg
Slæður
Upptaka

11:00 – 11:30

Stofnhjólanet höfuðborgarsvæðisins
Katrín Halldórsdóttir, verkefnastjóri á Höfuðborgarsvæði Vegagerðarinnar
Slæður
Upptaka

11:30 – 12:00
Virkar samgöngur eða eintómir farartálmar
Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Öryrkjabandalags Íslands
Slæður
Upptaka

13:00 – 13:30
Starfshópur innviðaráðherra um smáfarartæki
Jónas Birgir Jónasson, lögfræðingur hjá innviðaráðuneyti
Slæður
Upptaka

13:30 – 14:00

Rafhjól – hvati að breyttum samgönguvenjum
Höskuldur Rúnar Guðjónsson, samgönguverkfræðingur hjá Reykjavíkurborg
Slæður
Upptaka

14:00 – 14:15
Samhengislaus þvæla frá fundarstjóra
Sólmundur Hólm, fundarstjóri

14:30 – 15:00

Ísland sem hjólaland
Árni Davíðsson, formaður Landssamtaka hjólreiðamanna
Upptaka
Slæður

15:00 – 15:30
Borgarlína
Arndís Ósk Arnalds, forstöðumaður verkefnastofu Borgarlínu hjá Vegagerðinni
Slæður
Upptaka

15:30- 15:50
Á jaðrinum. Vegir framtíðar liggja til allra átta
Karl Friðriksson, framkvæmdastjóri Framtíðarseturs Íslands
Slæður
Upptaka


15:50- 16:00

Samantekt og lok
Jón Gunnar Jónsson, forstjóri Samgöngustofu
Upptaka








Ný stjórn Farsýslunnar

Síðasta föstudag fór fram aðalfundur Farsýslunnar. Þar var tekin ákvörðun um að stefna á árshátíð erlendis haustið 2023 og að hún verði skipulögð sem fræðsluferð. Jafnframt var ákveðið að skipa hóp til að kanna hvar hagstætt væri að fara og mögulegt að skipuleggja sem fræðsluferð. Þau sem hafa áhuga á að taka þátt í slíkri skipulagningu mega endilega hafa samband við stjórnarmeðlimi fyrir 14. október nk.

Jafnframt var tekin ákvörðun um að hækka félagsgjald í Farsýsluna í 1500 kr. úr 1250 kr.

Ný stjórn var kjörin og skipa stjórn Farsýslunnar næstu ár eftirfarandi:

Anney Þórunn Þorvaldsdóttir
Aron Freyr Jóhannsson – Formaður
Díana Björk Eyþórsdóttir
Fanney Lára Sandholt
Gunnar Karl Gunnarsson
Hulda Finnsdóttir – Gjaldkeri
Una Björg Einarsdóttir

Stjórn hefur nú þegar fundað og er dagskrá ársins í smíðum. Dagskráin mun m.a. birtast hér á innri vefnum á síðu Farsýslunnar.



Vörðum leiðina saman: Opnir samráðsfundir í öllum landshlutum

Innviðaráðuneytið, í samvinnu við landshlutasamtök sveitarfélaga, býður íbúum í öllum landshlutum til opins samráðs á fjarfundum í október undir yfirskriftinni Vörðum leiðina saman. Á meðal umfjöllunarefna er stefnumótun í samgöngum.

Tilgangur samráðsfundanna er að gefa íbúum landsins og sveitarstjórnarfólki um land allt tækifæri til að hafa áhrif á stefnumótun í málaflokkum ráðuneytisins. Á fjarfundunum verður kastljósinu beint að framtíðaráskorunum í málaflokkunum. Meginviðfangsefni fundanna verða umræður um stefnumótun í samgöngum, sveitarstjórnarmálum og húsnæðis- og skipulagsmálum. Einnig verður fjallað um nýsamþykkta byggðaáætlun.

Öllum er velkomið að taka þátt í fjarfundunum milli kl. 15:00–17:00 á auglýstum fundardögum. Fundirnir verða haldnir í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams. Hægt er að skrá sig á vef fundaraðarinnar. Þátttakendur fá síðan boð í tölvupósti til að tengja sig á fundina. Skráningu lýkur daginn fyrir hvern fund. 

Fundardagar: 

  • 10. október – Höfuðborgarsvæðið
  • 11. október – Suðurland
  • 18. október – Austurland
  • 19. október – Norðurland eystra
  • 20. október – Norðurland vestra
  • 24. október – Vestfirðir
  • 26. október – Vesturland
  • 27. október – Suðurnes

Opið samráð um evrópska reglugerð um vernd réttinda farþega í samgöngum


Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur hafið opið samráð um tillögu að nýrri reglugerð sem á að vernda réttindi farþega í samgöngum. Frestur til að koma að athugasemdum og sjónarmiðum er til og með 7. desember 2022.

Helsta markmiðið með tillögunni er að samræma og einfalda réttindamál farþega. Þá er ætlunin að tryggja að réttindi farþega séu einnig virk þegar áföll eins og Covid-19 faraldurinn ríða yfir. Þar af leiðandi á að samræma réttindi farþega á hinum ýmsum sviðum samgangna en taka jafnframt tillit til sérkenna hvers samgöngumáta fyrir sig.



Umferðaröryggisáætlun í fyrsta sinn kynnt í samráðsgátt

Drög að nýrri stefnu um umferðaröryggi, umferðaröryggisáætlun 2023-2037, hefur verið birt í samráðsgátt stjórnvalda til umsagnar. Þar gefst öllum tækifæri til að senda inn umsögn eða ábendingar en frestur til þess er til og með 14. október nk. Umferðaröryggisáætlun hefur verið gefin út með reglubundnum hætti síðustu ár en í fyrsta sinn eru drög að nýrri áætlun nú kynnt í samráðsgátt.

Í umferðaröryggisáætluninni er mörkuð stefna um umferðaröryggi á Íslandi til 15 ára. Markmið og áherslur miða að því að ná árangri og auka umferðaröryggi fyrir alla vegfarendur, óháð ferðamáta. 

Stefnan er byggð á þriggja þátta nálgun sem miða á að auknu umferðaröryggi og fækkun alvarlegra slysa: öruggari vegfarendur, öruggari vegir og öruggari ökutæki. Sett eru frammistöðumarkmið sem og markmið um öryggi umferðarmannvirkja og ökutækja sem um þau fara.

Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra, kynnti drög að umferðaröryggisáætlun á Umferðarþingi 2022. „Ég vona að ný stefna og markmið um umferðaröryggi megi verða ljós sem lýsir veginn  til aukins öryggis í umferðinni fyrir alla vegfarendur, gamla sem unga, hjólandi sem gangandi eða akandi í bíl.“

Árlegur samfélagslegur kostnaður af umferðarslysum er talinn nema um 40 milljörðum króna og er því til mikils að vinna að auka umferðaröryggi með markvissum aðgerðum.

Vinna við stefnu um umferðaröryggi byggir á samstarfi innviðaráðuneytisins, Samgöngustofu, Vegagerðarinnar og lögreglu. Framkvæmd umferðaröryggisáætlunar er á forræði ráðuneytisins en ábyrgð verkefna er hjá Vegagerðinni, Samgöngustofu og ríkislögreglustjóra auk ráðuneytisins.

,,Reykjavik Flight Safety Symposium” – Ráðstefna FÍA

Félag íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) stendur árlega fyrir ráðstefnunni ,,Reykjavik Flight Safety Symposium” en það er öryggisnefnd FÍA sem skipuleggur ráðstefnuna. Ráðstefnan dregur til sín fjölbreyttan hóp úr flugiðnaðinum, alls staðar að úr heiminum. Ráðstefnan verður haldin 13. október 2022 og verður haldin í Gullhömrum.

Kaupa miða hér

Meðal fyrirlesara eru:

  • Geoff Jones: Icing and inclement weather specialist at Rolls Royce – Ice crystal icing
  • Birta Líf Kristinsdóttir: Meteorologist at the Icelandic Met Office – Ice crystal icing
  • Ingvar Tryggvason: Icelandair captain – Just culture
  • Erla Björnsdóttir: Clinical psychologist with Phd in sleep medicine – sleep and fatigue
  • Melissa Bravin Propulsion operability engineer at Boeing – Ice crystal icing

Nánar má lesa um fyrirlesarana hér.

Valdís kosin í aðalráð Alþjóðaflugmálastofnunarinnar

Sendinefndlitil
Sigurður Ingi, Jón Gunnar og Kristín Helga fyrir miðju og Valdís Ásta lengst til hægri


Kosningar fóru fram í aðalráð Alþjóðaflugmálastofnunarinnar í Montréal, Kanada, á laugardaginn. Ísland var í framboði og hlaut kosningu. Sem fulltrúi Íslands mun Valdís Ásta Aðalsteindóttir, fyrst íslenskra kvenna, taka sæti í ráðinu og skipa eitt af 36 sætum aðalráðsins fram til næsta aðalþings, haustið 2025. Undanfarin þrjú ár hefur hún starfað sem varafulltrúi Finnlands í aðalráðinu.

Valdís Ásta mun jafnframt stýra starfi NORDICAO  hjá Alþjóðaflugmálastofnuninni, sem er samstarf Norðurlandanna, Eistlands og Lettlands.

Varafulltrúi Íslands á tímabilinu verður Ditte Helene Bang frá Danmörku. Saman verða Valdís Ásta og Ditte Helene í fararbroddi fyrir hönd Norðurlandanna, Eistlands og Lettlands í alþjóðasamstarfi um vöxt og viðgang flugmála á vettvangi Alþjóðaflugmálastofnunarinnar.

Sendinefnd Íslands á þinginu skipa m.a. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra og Jón Gunnar Jónsson forstjóri Samgöngustofu. Af hálfu íslensku fulltrúanna hefur áhersla verið lögð á mikilvægi alþjóðasamvinnu um flugmál, umhverfismál tengd flugi í ljósi fyrirætlana ríkja um að draga úr losun, vaxandi áherslu á netöryggi og gildi samvinnu og samhæfingar þjóða heimsins í þágu endurreisnar almannaflugs eftir heimsfaraldur.

Örugg og öflug flugstarfsemi er mikið hagsmunamál fyrir Ísland og styrk stoð hagsældar þjóðarinnar. Ísland stýrir einu af stærstu flugstjórnarsvæðum heims, um 5,4 milljón km2 og með hnattrænni staðsetningu gegnir landið mikilvægu hlutverki í flugtenginum milli heimsálfa. Ísland hefur verið aðildarríki að Alþjóðaflugmálastofnuninni ICAO frá stofnun hennar árið 1944, en alls 193 þjóðir eiga aðild að stofnuninni.