Reglur um aukið eftirlit með öryggi vegamannvirkja hafa tekið gildi

Samkvæmt frétt á vef innviðaráðuneytisins hafa nú verið settar nýjar og skýrar reglur hafar um sjálfstætt eftirlit með öryggi vegamannvirkja. Þær tóku gildi í lok maí með breytingu á reglugerð nr. 866/2011 um öryggisstjórnun vegamannvirkja.

Markmiðið með reglunum er að efla enn frekar eftirlit með öryggi vegamannvirkja, m.a. við fjölbreyttar nýframkvæmdir og viðhald á vegum landsins. Breytingarnar fela í sér skýr ákvæði um sjálfstætt eftirlit Samgöngustofu með framkvæmd öryggisstjórnunar vegamannvirkja.

Einnig voru gerðar breytingar á reglugerðinni í tengslum við innleiðingu á tilskipun Evrópuþingsins um öryggisstjórnun vegagrunnvirkja.

Drög að reglunum voru settar í samráðsgátt stjórnvalda í apríl sl. og lauk samráði 6. maí.






Úthlutun atvinnuleyfa til aksturs leigubifreiða

84.jpg-EYG-copy

Samgöngustofa auglýsir laus til umsókna 100 leyfi til leiguaksturs fólksbifreiða á takmörkunarsvæði I á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum.

Þau ein geta sótt um leyfi sem hyggjast stunda akstur leigubifreiðar að aðalatvinnu og hafa lokið námskeiði fyrir leigubifreiðastjóra. Til að öðlast leyfi þurfa umsækjendur að uppfylla leyfisskilyrði, skv. 5. gr. laga nr. 134/2001, sbr. reglugerð nr. 397/2003 um leigubifreiðar, með síðari breytingum.

Úthlutun leyfis fer fram á grundvelli starfsreynslu við akstur leigubifreiðar, sbr. 6. gr. reglugerðarinnar.

Umsóknareyðublöð má nálgast á vefnum okkar.

Umsóknarfrestur er til og með 10. júní nk.




Þórhildur í Síðdegisútvarpi Rásar 2

Þórhildur Elín var í viðtali í Síðdegisútvarpi á Rásar 2 í gær en þar var m.a. rætt um 100 ný leyfi til leigubílaaksturs á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum og um ábyrgðarkeðju efirlits með leigubifreiðaakstri.

Viðtalið hefst á u.þ.b. á mínútu 01:01:50 og má nálgast hér.

Starfslok Höllu G.

Halla fékk afhentan blómvönd og gjöf í kveðjukaffinu.
Ólöf, Rut, Halla G. Rósa, Laufey, Ingibjörg og Helga

Þriðjudaginn 31. maí sl. var síðasti starfsdagur Höllu G. Torfadóttur sem lét af störfum vegna aldurs, Halla var kvödd með kökum, kaffi, blómum og gjöf og nánasta samstarfsfólk kom saman í miðrými á annarri hæð.

Halla er ein af þeim fyrstu sem ráðin var til Samgöngustofu og vann í bókhaldinu frá nóvember 2013.
Við munum sakna Höllu en samgleðjumst með henni og þessum nýja kafla í hennar lífi.

Föstudagslagið í boði Anneyjar

Looking for "DANCING IN THE MOONLIGHT" by King Harvest. - Requests -  Singular Sound Forum

Það er hún Anney Þórun Þoorvaldsdóttir sem velur föstudagslagið að þessu sinni. Um val sitt segir hún:

Ég ákvað að velja lag frá áttunda áratugnum sem King Harvest gerði ódauðlegt og gefur manni alltaf gott í hjartað. Það er hægt að dilla sér við það alla daga, allt árið en sérstaklega á föstudögum myndi ég segja.

Lagið heitir Dancing in the moonlight

Ég skora á Unu Björgu Einarsdóttur fyrir næsta föstudag.

Kynning á ökunámsdeild fyrir þjónustusviði

Ökunámsdeild kynnti helstu verkefni deildarinnar fyrir þjónustusviði í morgun. Markmið kynningarinnar var að styðja þjónustudeildina svo þau geti svarað fleiri fyrirspurnum sem berast og gefa þeim tækifæri til að spyrja um atriði sem þeim finnst þau vanta meira öryggi í. Einnig að kynna þau verkefni sem eru efst á baugi núna, s.s. endurskoðun ökuprófa og endurskoðun námskrár fyrir endurmenntun atvinnubílstjóra. Þá var farið í helstu reglur og ökuréttindaflokka hvað varðar eftirvagna. Einnig var bent á gagnlegt myndband um eftirvagna sem fræðsludeild gaf nýlega út.

Í lokin kom fram einlæg ósk um að næsta hópefli í SGS gæti verið að allir tækju hið sívinsæla ökupróf til að meta stöðu sína í umferðinni 🙂

Innleiðing Centrik

Centrik - Crunchbase Company Profile & Funding

Centrik er nýtt úttektarkerfi Samgöngustofu. Innleiðing á kerfinu hófst í lok mars. Haldnir hafa verið fjarfundir með innleiðingarteymi sem framkvæmdastjórar flugs og siglinga sáu um að skipa.

Centrik býður upp á beina tengingu á milli okkar og leyfishafa, sem skapar meiri skilvirkni og styður við rafræna stjórnsýslu í samræmi við stefnu stofnunarinnar. Kerfið sameinar marga þætti sem hafa verið víða um stofnunina eins og hýsingu gæðahandbóka leyfishafa og utanumhald úttekta. Fundagerðir og vinnuflæði er hluti af kerfinu sem gefur eftirlitsmönnum aukna yfirsýn.

Kerfinu er skipt upp í nokkra hluta og miðast þjálfunin út frá því að taka einn hluta kerfisins fyrir hverju sinni. Þannig náum við að byggja ofan á þekkinguna jafn óðum.

Við erum komin vel á veg, en eigum þó enn eitthvað í land áður en við getum byrjað að nota kerfið fyrir eftirlitið sem við sinnum. Vonir eru um að í haust förum við formlega af stað.

Fyrir áhugasama þá má nálgast upptökur af þjálfuninni á K-drifinu í möppu: K:\Stjórnunarkerfið\Centrik\Innleiðing\Icelandic CAA





Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér

Vegagerðin stendur fyrir morgunverðarfundi um öryggi starfsfólks við vegavinnu þriðjudaginn 7. júní 2022 klukkan 9.00 í húsakynnum Vegagerðarinnar að Suðurhrauni 3 í Garðabæ. Flutt verða nokkur áhugaverð erindi en fundinum lýkur með kynningu og undirritun samkomulags um vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér.

Gestir eru velkomnir á fundinn en eru beðnir að skrá sig hér.

Fundinum verður streymt beint á þessari slóð: https://youtu.be/pZODodGKDiA

Vegaframkvæmdir eru órjúfanlegur hluti af sumrinu. Það er tíminn sem hentar best til að vinna að viðgerðum á vegum, og eftir harðan vetur er sannarlega ekki vanþörf á. Vegavinna í nálægð við þunga og hraða umferð getur verið stórhættuleg þeim sem við hana vinna. Því eru vinnusvæði ávallt vel merkt og hraði tekinn niður með umferðarskiltum. Því miður hefur það ekki alltaf borið árangur og hraði í gegnum vinnusvæði er oft mikill sem eykur mjög hættu fyrir starfsfólk.

Vegagerðin, í samstarfi við Samgöngustofu, verktaka og fleiri aðila, efnir til vitundaátaksins: Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér. Hönnuð hafa verið áberandi og skemmtileg skilti sem afhjúpuð verða á morgunverðarfundinum, en þau verða notuð við framkvæmdasvæði á vegum landsins í sumar meðan átakið stendur yfir.

Dagskrá:
• Þar skall hurð nærri hælum! – Grétar Einarsson, verkstjóri á þjónustustöð Vegagerðarinnar á Selfossi.
• Hvernig á að merkja vinnusvæði? – Víkingur Guðmundsson sérfræðingur hjá Vegagerðinni.
• Öryggi við vegavinnu, reynsla Colas á Íslandi – Sigþór Sigurðsson, framkvæmdastjóri Colas Ísland hf.
• Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér. – Pálmi Þór Sævarsson svæðisstjóri Vestursvæðis Vegagerðarinnar og Linda Björk Árnadóttir öryggisstjóri Vegagerðarinnar.