Innleiðing Centrik

Centrik - Crunchbase Company Profile & Funding

Centrik er nýtt úttektarkerfi Samgöngustofu. Innleiðing á kerfinu hófst í lok mars. Haldnir hafa verið fjarfundir með innleiðingarteymi sem framkvæmdastjórar flugs og siglinga sáu um að skipa.

Centrik býður upp á beina tengingu á milli okkar og leyfishafa, sem skapar meiri skilvirkni og styður við rafræna stjórnsýslu í samræmi við stefnu stofnunarinnar. Kerfið sameinar marga þætti sem hafa verið víða um stofnunina eins og hýsingu gæðahandbóka leyfishafa og utanumhald úttekta. Fundagerðir og vinnuflæði er hluti af kerfinu sem gefur eftirlitsmönnum aukna yfirsýn.

Kerfinu er skipt upp í nokkra hluta og miðast þjálfunin út frá því að taka einn hluta kerfisins fyrir hverju sinni. Þannig náum við að byggja ofan á þekkinguna jafn óðum.

Við erum komin vel á veg, en eigum þó enn eitthvað í land áður en við getum byrjað að nota kerfið fyrir eftirlitið sem við sinnum. Vonir eru um að í haust förum við formlega af stað.

Fyrir áhugasama þá má nálgast upptökur af þjálfuninni á K-drifinu í möppu: K:\Stjórnunarkerfið\Centrik\Innleiðing\Icelandic CAA