
Það er hann Markús Benediktsson sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir Markús:
Þetta er bara svo mega hresst lag að það verður ekki meira föstudax en þetta!
Skora á Bubba að koma með næsta föstudagslag.

Það er hann Markús Benediktsson sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir Markús:
Þetta er bara svo mega hresst lag að það verður ekki meira föstudax en þetta!
Skora á Bubba að koma með næsta föstudagslag.

Slysaskýrsla umferðarslysa, sem öryggis- og fræðsludeild Samgöngustofu hefur tekið saman fyrir árið 2021, er komin út. Að baki liggur mikil vinna við greiningu og skráningu lögregluskýrlsna og hefur Þorbjörg Jónsdóttir sinnt því af miklum dugnaði. Gunnar Geir Gunnarsson deildarstjóri öryggis- og fræðsludeildar útbjó skýrsluna en hún er notuð m.a. til greiningar á atriðum sem leggja þarf sérstaka áherslu á í forvörnum og fræðslu.
Skýrsluna má finna hér á vef Samgöngustofu. Árið 2021 var mjög sérstakt ár, bæði hvað varðar umferðaröryggi en einnig þjóðfélagið í heild. Var þetta annað árið í röð þar sem heimsfaraldurs gætti en árin 2020 og 2021 eru þó gerólík hvað varðar umferðaröryggið. Um töluverða aukningu slysa og slasaðra er að ræða. Fjöldi slasaðra og látinna í fyrra voru 1162 einstaklingar en árið á undan voru það 1015. Árið í fyrra er reyndar undir 10 ára meðaltali frá 2012 til 2021 sem er 1219 og má því segja að til lengri tíma litið sé þróunin í rétta átt.
Fjöldi látinna og alvarlega slasaðra eykst fer úr 157 árið 2020 í 208 árið 2021 sem er um 32,5% hækkun. Meira er nú um að ungir ökumenn séu að lenda í slysum en árin á undan. Talsverð aukning er í fjölda slasaðra óvarinna vegfarenda og þá sérstaklega á rafhlaupahjólum. Minna er um aði börn á aldrinum 0 – 14 ára slasist. Sérstaklega fækkar slösuðum börnum í bifreiðum en hinsvegar fjölgar aðeins slösuðum börnum sem eru gangandi og hjólandi í þessum aldurshópi. Slysum sem rekja má til vanrækslu á notkun öryggisbelta fækkar og alvarlegum slysum og banaslysum vegna ölvunar og fíkniefnaaksturs fækkar.
Slys af völdum rafhlaupahjóla eru 16,8% af heildarfjölda alvarlega slasaðra og látinna í umferðinni 2021. Í viðhorfskönnun sem Samgöngustofa lét gera kemur fram að 31,6% fólks (18-24 ára) hafa ekið rafhlaupahjóli undir áhrifum áfengis. 42% landsmanna prófað rafhlaupahjól og af þeim hafa 29% notað þau undir áhrifum áfengis. Það þýðir að 12,2% af allri þjóðinni (18 ára og eldri) hafa notað rafhlaupahjól undir áhrifum áfengis.Í sömu könnun má sjá slaka í viðhorfi fólks til þeirrar ábyrgðar sem felst í notkun öryggisbelta, að aka ekki eftir neyslu áfengis og nota ekki snjalltæki við akstur svo dæmi séu nefnd. Í raun má segja að slysatölurnar endurspegli að mörgu leyti þetta viðhorf.
.

Lúðurinn, Íslensku auglýsingaverðlaunin, þar sem auglýsingastofur keppast um að hreppa verðlaun fyrir bestu auglýsingarnar í sextán mismunandi flokkum, verða veitt í 36. skiptið við hátíðlega athöfn í Gamla bíó 8. apríl nk. Auglýsing Samgöngustofu „Smellum saman“ er tilnefnd til Lúðursins í flokki almannaheilla (kvikmyndaðar auglýsingar) og „ósýnilegi jólasveinninn“ á strætóskýlum borgarinnar er tilnefndur opnum flokki almannaheilla.
Auglýsingin „Smellum saman“ er í raun lag og myndband í flutningi söngvaranna Króla og Rakelar Bjarkar þar sem þau syngja um ástina og lífið ásamt því að undirstrika að öryggið gefur okkur tækifæri til þess að njóta lífsins. Smellum saman er ný nálgun í að minna fólk á mikilvægi bílbeltanotkunar en í stað þess að vera með hræðsluáróður er jákvæðnin höfð að leiðarljósi. Nánari upplýsingar má finna á www.smellumsaman.is
Auglýsingin með „ósýnilega jólasveininum“ birtist á strætóskýlum borgarinnar í vetur til að minna vegfarendur á mikilvægi sýnileika í umferðinni. Í myrkri sjást óvarðir vegfarendur illa þrátt fyrir götulýsingu og ökuljós bifreiða og er notkun endurskinsmerkja þess vegna nauðsynleg.


Samgöngustofa hefur boðið íslenskum flugrekendum á málþing vegna nýrrar nálgunar á þjálfun vegna hættulegs varnings (Dangerous Goods Competency Based Training and Assessment Sympoisum). Ráðstefnan verður haldin í dag miðvikudag 6. apríl kl. 13-16 hér í Ármúlanum í matsalnum.
Næstkomandi áramót tekur í gildi ný reglugerð um þjálfun á hættulegum varningi. Þjálfunin verður klæðskerasniðin að verksviði og hæfni einstaklingsins og líkur með mati (Competency Based Training and Assessment). Flugrekendur þurfa að leggja fram nýjar þjálfunaráætlanir til samþykktar hjá Samgöngustofu áður en reglugerðin tekur gildi. Málþingið er boðað til þess að vinna náið með flugrekendum varðandi útfærslu þjálfunarinnar og framsetningu nýrra þjálfunaráætlana.

Við viljum minna á að skráning á Páskabingó rennur út kl.13.00 í dag.
Páskabingó barnanna hjá Farsýslunni verður á matsal nú á fimmtudaginn 7. apríl kl. 17:00. Páskaegg í verðlaun og tryggt verður að öll börn sem mæta fái í það minnsta smá glaðning.
Þá verða veitingar á boðstólnum.
Skráning fer fram HÉR.
Nauðsynlegt er að þeir sem ætla að mæta skrái sig svo við getum haft nægilegt magn vinninga og matar fyrir viðstadda.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Stjórn Farsýslunnar

Það er hún Inga Birna sem velur föstudagslagið þessa vikuna. Um val sitt segir hún:
Lagið er How deep is your love með Bee Gees. Valdi það því mér finnst það mjög fallegt lag og eitt af þeim lögum sem mér finnst skemmtilegast að syngja með í bílnum 🙂
Ég skora á Markús að velja lagið í næstu viku