Fréttir af ráðningarmálum

Gengið hefur verið frá ráðningu deildarstjóra upplýsingatæknideildar.
Lárus Long, forstöðumaður Business Central ráðgjafar hjá Advania, hefur verið ráðinn í stöðuna og kemur til starfa í byrjun ágúst. Lárus er viðskiptafræðingur að mennt og reynslumikill stjórnandi í upplýsingatækni. Hann hefur m.a. starfað hjá Advania í ýmsum hlutverkum og þar áður sem stjórnandi hjá Actavis Group.