Nokkur ráðningarferli hafa verið í gangi undanfarnar vikur, nýlega var gengið frá ráðningum í eftirfarandi störf:
Sumarafleysing á Ísafirði
Ásgeir Hólm Agnarsson hóf sumarafleysingar starf á Ísafirði í dag, 18. apríl. Ásgeir þekkir vel til sjómennsku og skipa, er sjómaður í grunninn og hefur t.a.m. gert út nokkra báta. Ásgeir er vélstjórnarmenntaður og í skipstjórnarnámi.
Fagstjóri náms- og skírteinamála sjóferanda
Bjarki Sigþórsson, hefur störf 1. ágúst nk., mögulega fyrr. Bjarki hefur lokið bæði skipstjórnarmenntun og lögfræðinámi. Bjarki hefur undanfarin ár starfað sem vakstjóri á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, þar áður starfaði hann lengi sem skipstjóri á ýmsum skipum og hefur gilt STWC II skírteini.
Sérfræðingur í skipatæknideild
Sören Marahrens, hefur störf 1. september nk. . Sören lauk BS og MS gráðu í rafmagnsverkfræði og upplýsingatækni frá Karlsruhe Institute of Technology í Þýskalandi. Starfsfreynsla Sören er m.a. frá Karlsruhe Institute of Technology við rannsóknir og kennslu. Frá 2021 hefur Sören starfað sem verkfræðingur hjá Nemko Gembh.
Nú eru fjögur störf auglýst til umsóknar hjá Samgöngustofu. Auglýsingarnar hafa þegar verið birtar á heimasíðu Samgöngustofu, Starfatorgi og Alfreð. Nú um helgina birtist auglýsing í Morgunblaðinu sem og næsta fimmtudag.
Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum í siglingastörf. Ingólfur Örn Þorbjörnsson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild. Ingólfur er verkfræðingur að mennt, lærði í Danmörku og lauk þaðan bæði grunn- og meistaragráðu. Einnig hefur Ingólfur sveinspróf í stálskipasmíði. Síðast starfaði Ingólfur sem nýsköpunarstjóri hjá Íslenskum orkurannsóknum auk kennslu við Háskólann í Reykjavík. Ingólfur hefur störf 3. júní næstkomandi.
Vivek Sharma var ráðinn í starf eftirlitsmanns hafnarríkiseftirlits (e. Port State Control). Vivek hefur atvinnuskírteini skipstjóra auk BS gráðu í sjávarfræðum (e. nautical science). Vivek hefur starfað á sjó á skemmtiferða- og flutningaskipum sl. tíu ár. Vivek starfar í dag sem fyrsti stýrimaður á skipi National Geographic Expedition cruise sem siglir um norðurslóðir og Suðurskautslandið. Vivek hefur störf 3. ágúst næstkomandi.
Samgöngustofu auglýsir störf eftirlitsmanns í hafnarríkiseftirliti (e. Port State Control) og stöðu sérfræðings í skipatækni. Auglýsingarnar voru birtar í gær, bæði á heimasíðu Samgöngustofu og Facebook síðu, einnig á Starfatorgi og Alfreð (heimasíðu og appi). Um helgina mun einnig birtast auglýsing í Fréttablaðinu.