Opnað hefur verið fyrir almennar umsóknir um sumarstörf hjá Samgöngustofu fyrir sumarið 2024. Starfsfólki er velkomið að benda áhugasömum ungmennum á að leggja inn umsókn,
Leitað er eftir einstaklingi sem getur unnið frá ca. maí eða byrjun júní og helst fram yfir miðjan ágúst.
Starfsfólk Samgöngustofa fékk merkta múmínbolla í innflutningsgjöf frá starfsmannafélagi Samgöngustofu þegar flutt var í Ármúla 2 á sínum tíma. Síðar tók Samgöngustofa við keflinu og fær fólk merktan bolla ca. í kringum fastráðningu, það er auðvitað frábær hvatning til að nota fjölnota kaffimál og passa uppá sinn eina bolla yfir daginn. Nú í vikunni afhentum við nokkra bolla og komumst að því að nokkrir af gömlu bollunum hafa því miður brotnað. Þau sem hafa lent í því að bollinn þeirra brotnaði geta haft samband við laun@samgongustofa.is sem skoða málið.
Nokkur ráðningarferli hafa verið í gangi undanfarnar vikur, nýlega var gengið frá ráðningum í eftirfarandi störf:
Sumarafleysing á Ísafirði
Ásgeir Hólm Agnarsson hóf sumarafleysingar starf á Ísafirði í dag, 18. apríl. Ásgeir þekkir vel til sjómennsku og skipa, er sjómaður í grunninn og hefur t.a.m. gert út nokkra báta. Ásgeir er vélstjórnarmenntaður og í skipstjórnarnámi.
Fagstjóri náms- og skírteinamála sjóferanda
Bjarki Sigþórsson, hefur störf 1. ágúst nk., mögulega fyrr. Bjarki hefur lokið bæði skipstjórnarmenntun og lögfræðinámi. Bjarki hefur undanfarin ár starfað sem vakstjóri á stjórnstöð Landhelgisgæslunnar, þar áður starfaði hann lengi sem skipstjóri á ýmsum skipum og hefur gilt STWC II skírteini.
Sérfræðingur í skipatæknideild
Sören Marahrens, hefur störf 1. september nk. . Sören lauk BS og MS gráðu í rafmagnsverkfræði og upplýsingatækni frá Karlsruhe Institute of Technology í Þýskalandi. Starfsfreynsla Sören er m.a. frá Karlsruhe Institute of Technology við rannsóknir og kennslu. Frá 2021 hefur Sören starfað sem verkfræðingur hjá Nemko Gembh.
Gengið hefur verið frá ráðningu sérfræðings í flugrekstrar- og skírteinadeild. Ráðin var Berglind Ýr Jónasdóttir.
Berglind Ýr hefur lokið einkaflugmannsprófi frá Flugskóla Íslands og atvinnuflugmannsprófi frá Orlando Flight Training school. Árið 2009 hóf hún störf hjá Iceland Express og starfaði þar sem fulltrúi í fjármáladeild, aðstoðarmaður flugkostnaðarstjóra og sem flugkostnaðarstjóri. Árið 2012 hóf hún störf hjá WOW air og starfaði þar sem flugfreyja, flugkostnaðarstjóri og sérfræðingur á flugrekstrarsviði. Undanfarið hefur Berglind unnið sem ljósmyndari.
Berglind Ýr mun hefja störf í allra síðasta lagi 1. júní nk. og verður staðsett á annarri hæð.
Gengið hefur verið frá ráðningu fagstjóra í fjármáladeild. Ráðin var Erna Guðmundsdóttir. Erna hefur BS gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á verkefnastjórn, frá háskólanum á Bifröst. Síðastliðin rúmlega tuttugu ár hefur Erna starfað hjá LSR og gegnt ýmsum störfum þar, síðast sem verkefnastjóri.
Erna hefur störf 14. febrúar næstkomandi, verður staðsett á annarri hæðinni.
Opnað hefur verið fyrir almennar umsóknir um sumarstörf hjá Samgöngustofu. Starfsfólki er velkomið að benda áhugasömum ungmennum á að leggja inn umsókn, miðað er við að hafa náð 18 ára aldri. Hér er hlekkur: Sumarstarf – almenn umsókn
Gengið hefur verið frá ráðningu eftirlitsmanns í flugleiðsögu í deild flugleiðsögu, flugvalla og flugvernd. Ráðinn var Lorik Abdullahu. Lorik er með BA próf í stjórnun, MS í markaðsfræðum og Ph.D gráðu í stjórnun markaðssetningar sem snýr að flugvöllum frá háskólanum í Prishtina í Kosovo. Lorik starfaði við flugumferðarstjórn í Prishtina á árunum 2004-2017 en þá hóf hann störf hjá Isavia sem ATS Specialist og síðar sem ATS Specialist, Instructor / Assessor.
Lorik hefur störf 6. mars nk. og verður staðsettur á annarri hæðinni.
Gengið hefur verið frá ráðningu eftirlitsmanns flugverndar, ráðin var Ásdís Adolfsdóttir. Ásdís þekkir flugvernd vel en hún starfaði síðast sem gæða- og öryggisstjóri hjá Airport Associates frá árinu 2008.
Nú eru fjögur störf auglýst til umsóknar hjá Samgöngustofu. Auglýsingarnar hafa þegar verið birtar á heimasíðu Samgöngustofu, Starfatorgi og Alfreð. Nú um helgina birtist auglýsing í Morgunblaðinu sem og næsta fimmtudag.
Gengið hefur verið frá ráðningu deildarstjóra upplýsingatæknideildar. Lárus Long, forstöðumaður Business Central ráðgjafar hjá Advania, hefur verið ráðinn í stöðuna og kemur til starfa í byrjun ágúst. Lárus er viðskiptafræðingur að mennt og reynslumikill stjórnandi í upplýsingatækni. Hann hefur m.a. starfað hjá Advania í ýmsum hlutverkum og þar áður sem stjórnandi hjá Actavis Group.
Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum í siglingastörf. Ingólfur Örn Þorbjörnsson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild. Ingólfur er verkfræðingur að mennt, lærði í Danmörku og lauk þaðan bæði grunn- og meistaragráðu. Einnig hefur Ingólfur sveinspróf í stálskipasmíði. Síðast starfaði Ingólfur sem nýsköpunarstjóri hjá Íslenskum orkurannsóknum auk kennslu við Háskólann í Reykjavík. Ingólfur hefur störf 3. júní næstkomandi.
Vivek Sharma var ráðinn í starf eftirlitsmanns hafnarríkiseftirlits (e. Port State Control). Vivek hefur atvinnuskírteini skipstjóra auk BS gráðu í sjávarfræðum (e. nautical science). Vivek hefur starfað á sjó á skemmtiferða- og flutningaskipum sl. tíu ár. Vivek starfar í dag sem fyrsti stýrimaður á skipi National Geographic Expedition cruise sem siglir um norðurslóðir og Suðurskautslandið. Vivek hefur störf 3. ágúst næstkomandi.
Fyrir páska var gengið frá nokkrum ráðningum sem er mikið gleðiefni.
Erla Vinsý Daðadóttir hóf störf 19. apríl sl. Erla Vinsý mun starfa sem lögfræðingur í lögfræðideild á stjórnsýslu- og þróunarsviði. Erla Vinsý er með BA og Mag.jur í lögfræði frá Háskóla Íslands. Nú síðast starfaði hún sem aðstoðarmaður dómara hjá Landsrétti. Hún starfaði einnig hjá WOW air sem flugliði og á lögfræðisviði fyrirtækisins árin 2016-2019.
Haraldur Kristinsson Thorlacius mun hefja störf 1. júlí nk. sem verkefnastjóri hugbúnaðarþróunar. Haraldur er með BA próf í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands og BS próf í Computer Science and Business Administration frá Copenhagen Business School. Hann er einnig með diploma nám í forritun og kerfisfræði frá NTV og IPMA D vottun í verkefnastjórnun. Frá árinu 2017 hefur Haraldur unnið sem verkefnastjóri hjá Þjóðskrá Íslands.
Magnús Elíasson mun hefja störf 1. júlí nk. sem forritari í upplýsingatæknideild. Magnús er með BS í tölvunarfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Magnús starfar í dag sem Senior Software Developer hjá Betware. Magnús mun starfa í Vestmannaeyjum.
Aðrar ráðningar sem eru í gangi eru; sérfræðingur í skipatæknideild, hafnarríkiseftirlitsmaður í skipaeftirlitsdeild og eftirlitsmaður umferðarmannvirkja, afleysing fyrir Eddu Doris.