
Nýlega var gengið frá tveimur ráðningum í siglingastörf.
Ingólfur Örn Þorbjörnsson var ráðinn sérfræðingur í skipatæknideild.
Ingólfur er verkfræðingur að mennt, lærði í Danmörku og lauk þaðan bæði grunn- og meistaragráðu. Einnig hefur Ingólfur sveinspróf í stálskipasmíði. Síðast starfaði Ingólfur sem nýsköpunarstjóri hjá Íslenskum orkurannsóknum auk kennslu við Háskólann í Reykjavík.
Ingólfur hefur störf 3. júní næstkomandi.
Vivek Sharma var ráðinn í starf eftirlitsmanns hafnarríkiseftirlits (e. Port State Control).
Vivek hefur atvinnuskírteini skipstjóra auk BS gráðu í sjávarfræðum (e. nautical science). Vivek hefur starfað á sjó á skemmtiferða- og flutningaskipum sl. tíu ár. Vivek starfar í dag sem fyrsti stýrimaður á skipi National Geographic Expedition cruise sem siglir um norðurslóðir og Suðurskautslandið.
Vivek hefur störf 3. ágúst næstkomandi.


