Virkni-dagatal nóvember

Á heimasíðu Virk er mikið af góðum fróðleik og ráðum. Vel-virk er verkefni þar sem markmiðið er að stuðla að jafnvægi í lífi og starfi. Virkni dagatal er verkfæri sem gott er að styðjast við í þessari vegferð. Virkni dagatal gefur jákvæðar hugmyndir fyrir hvern dag mánaðarins. Tillögurnar eru í anda þess sem rannsóknir hafa sýnt að geti hjálpað fólki að lifa hamingjuríkara lífi, svo sem að gefa af sér, tengjast öðrum, finna tilgang, leika sér og njóta augnabliksins. Tillögurnar eru bæði skemmtilegar og auðveldar í framkvæmd.

Virknidagatalið er aðgengilegt á fleiri tungumálum og einnig er hægt að skoða eldri dagatöl.

Hér að neðan er virkni dagatal fyrir nóvember mánuð.  
og hér er hlekkur á dagatalið:
PowerPoint Presentation (velvirk.is)

Gulur september – geðveikur mannauður – Silja Björk

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka um að auka meðvitund um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Í föstudagskaffinu í morgun fengum við heimsókn frá Silju Björk, geðsjúkum rithöfundi, fyrirlesara og femínista. Silja Björk ræddi við okkur um andlega heilsu, geðrækt og mikilvægi þess að opna á samtalið um geðheilbrigði.

Hér að neðan (smellið á hlekkinn) eru upplýsingar um Silju Björk, erindið og margir góðir og hagnýtir tenglar.

Geðveikur mannauður

Skilaboð frá Silju Björk: fólki er alltaf frjálst að senda mér tölvupóst eða hafa samband á Facebook fyrir frekara samtal.