Föstudagskaffi 15.desember

Gulur september – geðveikur mannauður – Silja Björk

Gulur september er samvinnuverkefni stofnana og félagasamtaka um að auka meðvitund um mikilvægi geðræktar og sjálfsvígsforvarna. Í föstudagskaffinu í morgun fengum við heimsókn frá Silju Björk, geðsjúkum rithöfundi, fyrirlesara og femínista. Silja Björk ræddi við okkur um andlega heilsu, geðrækt og mikilvægi þess að opna á samtalið um geðheilbrigði.

Hér að neðan (smellið á hlekkinn) eru upplýsingar um Silju Björk, erindið og margir góðir og hagnýtir tenglar.

Geðveikur mannauður

Skilaboð frá Silju Björk: fólki er alltaf frjálst að senda mér tölvupóst eða hafa samband á Facebook fyrir frekara samtal.

Flugrekstur og skírteini

Í morgunkaffinu fór Katrín yfir helstu störf flugrekstrar- og skírteinadeildar sem eru mörg og áhugaverð. Deildin sér um leyfisveitingar til fyrirtækja, svo sem flugrekenda, flugskóla og fluglæknasetra og eftirlit með þeim. Útgáfa flugstarfaskírteina fer fram hjá deildinni en það eru ýmis skírteini flugmanna, skírteini flugumferðarstjóra og skírteini flugvirkja sem dæmi.

Deildin heldur bókleg próf sjö sinnum á ári en þá mæta flugnemar hingað í hús og þreyta einka- eða atvinnuflugmannspróf. Fram kom í kynningunni að ásókn í flugpróf hefur minnkað mikið á undanförnum árum og eru nokkrar ástæður fyrir því. Ber þar fyrst að nefna covid, en aðgengi að námslánum og framboð á flugnámi spilar þar líklega stórt hlutverk.

Heilbrigðisskor deildarinnar sér um heilbrigðismál flugmanna og gefur út leyfi til fluglækna og hefur eftirlit með þeim. Á síðustu árum hafa verið gerðar auknar kröfur um mat á geðheilbrigði flugmanna, en allir flugmenn skulu núna undirgangast geðheilbrigðismat í heilbrigðisskoðunum.

Deildin hefur undirbúið sig fyrir innleiðingu á reglum sem varða starfrækslu dróna sem hafa verið í gildi í aðildarríkjum ESB í nokkurn tíma. Nú hefur verið opnað fyrir valkvæða skráningu og próf umráðamanna dróna á vefsvæðinu flydrone.is. Þessi skráning og próf munu svo verða skylda þegar reglurnar hafa tekið gildi á Íslandi. Í millitíðinni eru séríslenskar reglur í gildi.

Hlaðskoðanir á flugrekendum eru framkvæmdar af deildinni og áfengis- og fíkniefnamælingar fyrir áhafnir íslenskra og erlendra loftfara hefjast í þessum mánuði.

Kynningu Katrínar frá í morgun má finna hér.