Gengið hefur verið frá ráðningu fagstjóra í fjármáladeild. Ráðin var Erna Guðmundsdóttir.
Erna hefur BS gráðu í viðskiptafræði, með áherslu á verkefnastjórn, frá háskólanum á Bifröst. Síðastliðin rúmlega tuttugu ár hefur Erna starfað hjá LSR og gegnt ýmsum störfum þar, síðast sem verkefnastjóri.
Erna hefur störf 14. febrúar næstkomandi, verður staðsett á annarri hæðinni.
