Móttaka og sending bréfa- og bögglapósts flyst til afgreiðslunnar 1. september

Um langt skeið hefur mikill meirihluti alls bréfapósts sem berst Samgöngustofu verið viðfangsefni Skráninga og þjónustu, og sama gildir um bréfapóst sem við sendum frá okkur. Gerð var úttekt vorið 2024 sem sýndi þetta í tölum.
Þess vegna hefur verið ákveðið að móttaka og sending bréfapósts, böggla og hraðsendinga verði í afgreiðslunni frá og með 1. september.
Afgreiðsla tekur öll bréf, böggla og hraðsendingar sem eiga að fara út úr húsi. Starfsmenn fara með þau þangað en ekki til skjalateymis frá og með 1. september.
Skjalateymi mun áfram ganga frá gögnum sem send eru hingað og ekki tilheyra Skráningum og þjónustu, en sækir þau til afgreiðslunnar.

Large Image

Við lesum blöðin í miðrýmum

Áskriftarblöð í miðrýmum

Samgöngustofa er með áskrift að Viðskiptablaðinu (með Fiskifréttum) og Heimildinni. Við erum með eina prentútgáfu af hvoru riti og er markmiðið að tryggja að sem flestir geti notið góðs af þeim.

Blöðin eru lögð fram í kaffirýmum:

  • Fiskifréttir eru í kaffirými á 3. hæð
  • Viðskiptablaðið og Heimildin eru í kaffirými á 2. hæð

Vikublöð sem þessi ná oft að fjalla um mál af meiri dýpt en almennir vefmiðlar gera. Við hvetjum þau sem vilja að kíkja í blöðin á staðnum og láta þau liggja áfram í kaffirýmunum, svo þau séu aðgengileg öllum. Takk fyrir að virða þetta fyrirkomulag.

Viðskiptablaðið og fylgirit 26. mars 2025
Viðskiptablaðið, Fiskifréttir og Eftir vinnu

Árangur af rafrænum tiltektardegi í málakerfinu

Blásið var til rafræns tiltektardags í málakerfinu 28. febrúar og fólk hvatt til að loka málum hjá sér. Auk þess lokaði starfsmaður skjalateymis málum í vinnslu frá árinu 2012-2021. Árangur af þessu er að málum í vinnslu í kerfinu fækkaði um rúm 37%. Við förum reglulega yfir hjá fólki sem er með mikinn fjölda mála í vinnslu hvernig grynnka megi á þeim, og munum áfram vinna að þessu. Ef tekin eru upp rafræn skil, verður það árleg vinna hjá öllu starfsfólki með mál í vinnslu að loka málum frá fyrra ári.
Í lok árs 2023 kom inn umbótatillaga um að skipuleggja tiltektardag í málakerfinu. Við skipulögðum tiltektardag í febrúar í fyrra og aftur núna. Því má segja að tiltektardagurinn hafi fest sig í sessi innan stofnunarinnar.

Skjalakerfi

Rafrænn tiltektardagur í málakerfi í dag

Í dag, 28. febrúar er rafrænn tiltektardagur í málakerfinu. Nú er tíminn til að fara yfir mál liðins árs og loka þeim. Það er einfalt að loka málum í Mitt One eins og sést á myndinni. Í næstu viku lokar skjalateymi málum sem eru frá 2021 eða eldri. Fólk getur fundið leiðbeiningar um hvernig það leitar að lokuðum málum á innri vef, undir skjalakerfi. Starfsmenn skjalateymis aðstoða í allan dag, best að senda okkur línu á Teams eða til skjalastjorn@samgongustofa.is.

Loka máli í Mitt One
Máli lokað í Mitt One

Lífshlaupið í fullum gangi, skrá sig með!

Fólk að hlaupa
Út að hlaupa

Lífshlaupið er eitthvað sem öll geta tekið þátt í, gengið, hjólað, stundað líkamsrækt, skíðað, farið út að ganga með hundinn, eða bara hreyfing af öllu tagi. Nú getur fólk skráð sig til leiks og skráð alla hreyfingu með börnunum eða sér sjálfum, hvort sem það er að skíða í fyrir norðan í vetrarfríinu eða skjótast út um helgina og njóta vetrarveðursins. Þið getið skráð alla miðlungserfiða eða erfiða hreyfingu sem stunduð er utan vinnutíma. Til þess að fá einn dag skráðan þarf að hreyfa sig að lágmarki í 30 mínútur sem skipta má upp í nokkur skipti yfir daginn, t.d. 10 – 15 mínútur í senn. Þið getið skráð hreyfingu sem þið hafið stundað síðastliðna viku, en um að gera að byrja strax að skrá!

Rafrænn tiltektardagur í málakerfinu 28. febrúar

Á hlaupársdag í fyrra héldum við rafrænan tiltektardag í málakerfinu, og fengum fólk til að loka málum. Við erum ekki svo heppin að hafa aukadag á þessu ári, en engu að síður verður aftur tiltektardagur í málakerfinu föstudaginn 28. febrúar. Kostir við að loka málum er að Mitt One stjórnborðið lítur mun betur út, sérstaklega hjá samstarfsfólkinu, og það hjálpar til við gagnaskil til Þjóðskjalasafns. Fólk verður að geta fundið mál sem búið er að loka, og einmitt hér eru leiðbeiningar um það. Þið getið alltaf komist í þessar leiðbeiningar undir Skjalakerfi hér á vefnum. Við hvetjum öll til að fara yfir mál hjá sér og loka þeim sem niðurstaða er komin. Skjalateymið mun svo í mars loka öllum málum frá 2021 og eldri. Ef þið þurfið aðstoð, sendið tölvupóst til skjalastjorn.

Mynd af snyrtilegu kerfi
Snyrtilegt kerfi