Undanfarna daga hafa orðið smá breytingar í húsinu og eru fleiri á dagskrá.
Jón Gunnar hefur flutt sína skrifstofu upp á 3 hæð á ganginn hjá Siglingasviði. Mannauður hefur flutt sig um set á ganginum og eru nú komnar inn í rýmið þar sem Jón Gunnar var áður með skrifstofu.
Þá hefur gæðateymið flutt sig niður á gang 2B og eru þær í rýminu á móti mannauði.
Á sama tíma flutti Guðbjörn sig í rýmið innst á gangi 2B þar sem mannauður sat áður.
Hjólað í vinnuna hefst 7 maí n.k. og stendur til 27 maí.
Búið er að opna fyrir skráningu og hvetur umhverfishópurinn starfsfólk Samgöngustofu til þátttöku! 🚲 Markmið verkefnisins er að hvetja til daglegrar hreyfingar og vekja athygli á virkjum og sjálfbærum samgöngum. Hjólreiðar sameina útivist, líkamsrækt og ferskt loft – allt í einu!
Leiðbeiningar um skráningu er að finna hér og skráning fer fram á Hjólað í vinnuna Innan umferðasviðs er liðið mótvindur 2. hæð er með lið sem heitir 2. hæð Á fullri ferð er opið lið fyrir allt starfsfólk Samgöngustofu
Öll geta tekið þátt í Hjólað í vinnuna svo framarlega sem þeir nýta eigin orku til og frá vinnu þ.e. hjóla, ganga, hlaupa, nota línuskauta o.s.frv. Þau sem nýta almenningssamgöngur geta einnig tekið þátt en þá er skráð sú vegalengd sem gengin eða hjóluð er til og frá stoppistöð
Umhverfishópurinn þakkar þeim sem tóku þátt í keppni hópsins sem fór fram fyrr í mars. Okkur bárust margar frábærar og metnaðarfullar tillögur, við kunnum að meta áhuga ykkar og framtak. Hugmyndirnar eru innblástur fyrir stofnunina og hjálpa til við að huga að jákvæðum breytingum sem gagnst bæði starfsfólki og umhverfinu.
Við óskum sigurvegaranum Ólöfu Önnu Rúdólfsdóttur innilega til hamingju og þökkum öllum sem tóku þátt!
Vinningstillaga: Það mætti fara yfir það hvernig hreinsiefni eru notuð í húsinu, þ.e.a.s. efnin sem eru notuð við að þrífa húsið og hvort þau séu svansvottuð. Það skiptir máli fyrir heilsu þess sem þrífur húsið alla daga að efnin sem notuð eru séu ekki heilsuspillandi sem þau eru mjög oft, það er líka mikilvægt fyrir umhverfið að efnin sem fara út í sjóinn frá frárennsli hússins séu ekki skaðleg náttúrunni. Öruggast er að þau séu Svansvottuð eða með Evrópublóminu.
Rökstuðningur fyrir vali á vinningstillögu: Tillagan um að fara yfir hreinsiefni og tryggja að þau séu Svansvottuð eða með Evrópublóminu var valin þar sem hún hefur bæði heilsufarslegan og umhverfislegan ávinning. Heilsa starfsfólks: Umhverfisvottuð hreinsiefni innihalda skaðleg efni, sem dregur úr hættu á öndunarfæra- og húðertingu hjá þeim sem nota efnin. Umjhverfisvernd: Mengun frá hreinsuefnum getur haft skaðleg áhrif á vistkerfi í vatni. Með vistvænum efnum er dregið úr þessum áhrifum. Innleiðing tillögu framkvæmanleg: Markaðurinn býður upp á fjölbreytt úrval umhverfisvænna hreinsiefna, oft án aukins kostnaðar.
Þá styður tillagan alemnnt við umhverfisstefnu SGS og bætir vinnuumhverfu og umhverfisáhrif stofnunarinnar.
Umhverfishópur Samgöngustofu efnir til keppni um frumlegustu og/eða bestu hugmyndina að aðgerðum, breytingum eða lausnum í umhverfismálum innan stofnunarinnar. Heyrst hefur að verðlaun verði veitt fyrir frumlegustu og/eða bestu hugmyndina.
Við hvetjum þig til að senda inn hugmyndir í gegnum Bendil-Umbótatillaga og velja flokkinn Umhverfismál.
Frestur til þátttöku er til hádegis á morgun, föstudaginn 14. mars
Hópurinn vill hvetja starfsfólk Samgöngustofu til þátttöku í skapandi átaki og efnir til keppni um frumlegustu og/eða bestu hugmyndina að aðgerðum, breytingum eða lausnum í umhverfismálum innan stofnunarinnar. Hvetjum við öll áhugasöm til að senda inn hugmyndir í gegnum Bendil-Umbótatillaga og velja flokkinn Umhverfismál. Frestur til þátttöku er til hádegis föstudaginn 14 mars. Umhverfishópur lofar spennandi verðlaunum fyrir vinningstillöguna!
Einnig er hægt að senda almenn erindi á hópinn á netfangið: umhverfismal@samgongustofa.is
Síðastliðinn föstudag sendi Auðnast út rafrænt áhættumat á allt starfsfólk Samgöngustofu í tölvupósti. Það tekur nokkrar mínútur að fylla út áhættumatið.
Til að niðurstöðurnar verði sem nákvæmastar er þátttaka alls starfsfólks mikilvæg. Þið þekkið best aðstæðurnar sem þið vinnið við, og því viljum við biðja ykkur um að gefa ykkur tíma til að svara spurningalistanum af einlægni.