Hér má finna ýmis gögn tengd jafnlaunastjórnunarkerfi Samgöngustofu.

Meginmarkmið jafnlaunavottunar er að vinna gegn kynbundnum launamun og stuðla að jafnrétti kynjanna á vinnumarkaði. Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal jafnlaunavottun byggjast á Jafnlaunastaðlinum ÍST 85:2012. Með innleiðingu staðalsins geta fyrirtæki og stofnanir komið sér upp stjórnunarkerfi sem tryggir að málsmeðferð og ákvörðun í launamálum byggist á málefnalegum sjónarmiðum og feli ekki í sér kynbundna mismunun.
Vottunaraðili metur hvort öll skilyrði staðalsins hafi verið uppfyllt og þar með unnt að veita viðkomandi fyrirtæki eða stofnun jafnlaunavottun. Samgöngustofa hlaut vottun 10. ágúst 2020.
Starfsfólk er hvatt til þess að senda inn athugasemdir og spurningar varðandi kerfið, einnig má senda inn almennar spurningar og eða hugmyndir.
Nota má Bendil (ábendingarhnapp CCQ) eða senda póst á netfangið; laun@samgongustofa.is
Hér að neðan má nálgast gögn um jafnlaunastjórnunarkerfið, minnum á að starfslýsingar hvers og eins eiga að vera aðgengilegar í mannauðsbrunni Gæsku.
2024
Kynning á niðurstöðum launagreiningar 2024
Fjöldi og kynjaskipting starfaflokka 2024
Jafnlaunamarkmið og skilgreiningar og vægi yfir- og undirviðmiða starfa og persónubundinna þátta er sama og árið 2023, sjá hlekki hér að neðan.
2023
Kynning launagreiningar 2023
Fjöldi og kynjaskipting starfaflokka 2023
Vægi yfir og undirviðmiða 2023
Skilgreining viðmiða – störf 2023
Skilgreining viðmiða – persónubundnir þættir 2023