Nýr formaður umhverfishópsins

Kolbeinn hefur nú þegar hafið störf og í morgun nappaði hann vefstjóra SGS við það að setja plastið í ranga tunnu…

Kolbeinn Arnarson hefur tekið við formennsku umhverfishóps Samgöngustofu af Helgu Finnsdóttur. Kolbeinn hefur mikinn metnað fyrir umhverfismálum og hefur t.a.m. verkefnastýrt innleiðingu grænna skrefa hjá Landgræðslunni, skrifað bachelorritgerð um sjálfbæra landnýtingu og komið fram í panel á Matvælaþingi að ræða sjálfbæra matvælaframleiðslu.

Helsta verkefni umhverfishópsins um þessar mundir er að klára innleiðingu Grænna skrefa í ríkisrekstri en Samgöngustofa á aðeins fimmta og síðasta skrefið eftir. Áætlað er að innleiðingu fimmta skrefsins ljúki um mitt ár.