Niðurstöður úr könnun um stofnun ársins

Í morgunkaffinu fór Jón Gunnar yfir helstu niðurstöður okkar úr síðustu könnun um stofnun ársins, sem gerð er árlega fyrir opinbera aðila. Heilt yfir getum við verið ánægð með útkomuna því heildareinkunn okkar hækkar á milli ára úr 3,89 í 4,0.

Ágætar framfarir mælast í flestum þáttum og er það fagnaðarefni fyrir okkar góða vinnustað. Sem dæmi, þá fær starfsandi, sveigjanleiki og sjálfstæði í starfi háa einkunn og einnig hefur ánægja og stolt okkar af Samgöngustofu vaxið mjög milli ára.

Niðurstöðurnar eru afrakstur af samvinnu, nýsköpun og jákvæðu umbótastarfi sem við getum öll verið sátt við. Þær eru hvatning til áframhaldandi vaxtar þar sem vel gengur og um leið þess að vinna að lausnum fyrir einstaka þætti svo þeir megi dafna betur.

Aðaltöflur fyrir ríkisstofnanir má finna hér