
Miðvikudaginn 12. mars sl. var haldinn „Íslandsdagur“ hjá Nýsköpunarmiðstöð EUROCONTROL sem er til húsa í Bretigny í Frakklandi. Tilgangur Íslandsdagsins var að leiða saman lykilaðila fluginnviða á Íslandi og lykilstarfsmenn EUROCONTROL til að ræða áskoranir, nýsköpun og um leið hvaða stuðning íslenskir aðilar geta fengið frá Nýsköpunarmiðstöðinni. Ísland varð sem kunnugt er aðildarríki EUROCONTROL þann 1. janúar 2025.
Fulltrúar Samgöngustofu voru Jón Gunnar og Hlín. Ásamt þeim sóttu fulltrúar Isavia ohf, Isavia innanlandsflugvalla, Isavia ANS, Icelandair og Tern fundinn, auk tengiliðar Íslands hjá EUROCONTROL.