Upplýsingar um flugröst uppfærðar

Hér á innri vefnum er upplýsingasíða um Flugröst en það er funda- og veislusalur í eigu okkar. Upplýsingarnar á síðunni hafa nú verið uppfærðar en síðuna er hægt að nálgast undir Verkfærakistan – Flugröst.

Flugröst hentar vel sem fundarsalur fyrir lengri fundi eða námskeið á vegum Samgöngustofu, panta má veitingar eða kaffi hjá mötuneytinu. Kerfisrekstur aðstoðar með tæknimál ef þarf.
Salurinn tekur ca. 60 manns í sæti, í eldhúsinu er kaffivél (uppáhellt), tveir kæliskápar, uppþvottavél og allt helsta leirtau og borðbúnaður er til staðar.

Starfsfólki Samgöngustofu býðst að leigja salinn fyrir viðburði á eigin vegum, ekki er heimilt að framselja leigunni eða selja inn á viðburði í Flugröst. Greitt er þrifagjald, 25.500 kr., greiða skal fyrir viðburð. Leigutaki ber ábyrgð á salnum, sér um uppvask ef eitthvað er og fer út með rusl.
Mannauðsdeild sér um bókanir, bæði fundi og viðburði á vegum stofnunarinnar og einkaviðburði.

Lyklar að Flugröst eru afhentir hjá mannauðsdeild.