Stofnun ársins – kynning í morgunkaffi

Niðurstöður hinnar árlegu könnunar, Stofnun ársins, voru birtar þann 16. mars síðastliðinn. Könnunin náði til um 31 þúsund starfsmanna í opinberri þjónustu, bæði hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögunum og sjálfseignarstofnunum. Hún er unnin í samstarfi við Fjármála- og efnahagsráðuneytið og Mannauðsdeildar Reykjavíkurborgar og gefur mikilvægar upplýsingar um stöðu starfsmanna á opinbera vinnumarkaðnum. Í henni eru þátttakendur spurðir út í níu þætti í starfsumhverfinu þ.e. trúverðugleika stjórnenda, starfsanda, launakjör, vinnuskilyrði, sveigjanleika í starfi, sjálfstæði í starfi, ímynd stofnunar, ánægju og stolt og jafnrétti. Hér má nálgast helstu niðurstöður fyrir allar stofnanir og hér er hægt að nálgast samanburðartöflur (við tilheyrum Stórum stofnunum).

Í morgunkaffinu í morgun fór Jón Gunnar yfir niðurstöðurnar hvað Samgöngustofu varðar. Hægt er að nálgast kynninguna hér. Eins og fram kom í máli Jóns þá er hækkun í flestum liðum hjá okkur sem er ánægjuleg þróun. Þættir eins og jafnréttismál og sveigjanleiki vinnutíma koma sérstaklega vel út. Sóknarfæri í bætingu er t.d. varðandi loftgæði á vinnustað og hljóðvist.

Við hvetjum áhugasama til þess að kynna sér niðurstöðurnar betur, bæði með lestur kynningarinnar frá því í morgun og eins heildarniðurstöðurnar á vef Sameykis.