Fjölskyldugleði Samgöngustofu og Farsýslunnar markaði upphaf sumars í gær en sólin skein á starfsfólk og fjölskyldur þeirra í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum. Pylsur með öllu tilheyrandi runnu ljúflega niður og flest skelltu sér í leiktækin og tóku út dýrahaldið. Sást meðal annars til einhverra starfsmanna tæknideildar í úttekt á lestinni og að sjálfsögðu fór yngsta kynslóðin í ökuskólann. Takk fyrir frábæra samveru öll!





