Úttekt EASA á vottun og eftirlit með flugvöllum

Núna í vikunni er Flugöryggisstofnun Evrópusambandsins (EASA) að gera viðamikla úttekt á frammistöðu Samgöngustofu sem flugmálayfirvalds gagnvart sameiginlegum kröfum til vottunar og eftirlits með flugvöllum. Úttektin fer fram 6.-10. júní að báðum dögum meðtöldum.

Samgöngustofa ber ábyrgð á að rekstur flugvallanna sem falla undir umfang laganna uppfylli sameiginlegu kröfurnar sem gilda um skipulagsheildir rekstraraðilanna, starfrækslu flugvallanna auk tæknilegra forskrifta um búnað og innviði. Í úttektarteymi EASA eru eftirlitsmenn stofnunarinnar, sérfræðingar sem taka út öll aðildarríki ESB og EES gagnvart þessum sameiginlegu kröfum um öryggi flugvallastarfseminnar, sem eru forsenda þess að fá að starfa inni á hinum sameiginlega markaði ESB.