
Bandaríski tónlistarmaðurinn Meatloaf lést í gær 74 ára að aldri. Tónlistarferill Meat Loaf, sem hét Michael Lee Aday réttu nafni, spannaði um sex áratugi, en hann seldi rúmlega 100 milljónir platna og birtist í rúmlega sextíu kvikmyndum. Platan Bat Out of Hell frá árinu 1977 er þannig ein af mest seldu plötum sögunnar. Sjá nánar frétt á visir.is.
Þættinum barst ábending um að við hæfi væri að skella í eins og eitt auka föstudagslag af þessu tilefni og er þá ekki við hæfi að velja lagið Paradise by the dashboard?
Góða helgi!