Þórhildur í viðtali í morgunútvarpinu

Þórhildur var í viðtali í Morgunútvarpinu í morgun en tilefnið var frétt af vegfarendum sem voru fastir í jepplingi á jeppaslóða á Kollafjarðarheiði í hátt á þriðja sólarhring. Fólkið hafði treyst á að Google maps vísaði þeim rétta leið með þeim afleiðingum að það fór slóða sem ekki er fær um þessar mundir.

Lögreglunni á Vestfjörðum hafði borist tilkynning um að fólk á leið frá Reykjavík til norðanverðra Vestfjarða hefði ekki skilað sér á áfangastað. Hófst þá leit í nágrenni þjóðvegarins á svæðinu frá Bjarkalundi að Flókalundi, en einnig á Dynjandisheiði, sem og Þorskafjarðaheiði og Kollafjarðarheiði. Þau fundust svo föst í jepplingnum á Kollafjarðarheiði eins og áður segir og var ástand þeirra tiltölulega gott að öðru leyti en því að það var nokkuð skelkað og kalt.

Nálgast má viðtalið hér en það byrjar á mínútu 45:10. Í viðtalinu áréttaði Þórhildur m.a. mikilvægi þess að undirbúa langferðir að vetrarlagi vel, að kynna sér vel leiðirnar, sjá til þess að bifreiðin sé í góðu ásigkomulagi og vera vel útbúin að öllu leyti.