Þau fyrstu á námskeið hjá Eurocontrol

Eins og kom fram í frétt þann 15. september síðastliðinn er Ísland nú komið með aðlögunarsamning við Eurocontrol. Samkvæmt skilmálum hans á Ísland sæti áheyrnarfulltrúa og getur tekið þátt í verkefnum og starfsemi Eurocontrol að sama marki og aðildarríki. Helsti ávinningur aðildar er full þátttaka í miðlægri flæðisstjórnun flugumferðar fyrir samevrópska loftrýmið og samræmdri krísustjórnun vegna t.d. eldgosa og heimsfaraldra. Henni fylgir einnig aðgangur að kerfum, gagnabönkum, greiningarvinnu, tæknilausnum, þjálfun og stuðningi við ýmsa þætti flugmála sem snúa að rekstrarstjórnun flugumferðar, rekstri flugvalla, skilvirkni, öryggi og netvernd svo nokkuð sé nefnt.

Þau Þóra Halldórsdóttir og Guðbjörn Jensson voru þau fyrstu frá Íslandi sem tóku námskeið hjá EUROCONTROL Aviation Learning Centre eftir undirritun samningsins. Af því tilefni skellti EUROCONTROL ALC í myndatöku (sjá að ofan) og birtu frétt á Facebooksíðu sinni. Sjá fréttina hér: