Snjalla spjallmennið

Í vikunni var haldin vinnustofa þar sem þátttakendur lærðu á forritið á bak við spjallmennið.

Hópur starfsfólks vinnur nú hörðum höndum að því að setja upp spjallmenni fyrir ytri vefinn. Það mun getað svarað algengum spurningum almennings sem þýðir að færri þurfa að hringja eða senda tölvupóst. Þannig mun spjallmennið bæta þjónustuna um leið og það dregur úr álagi. Uppsetning á spjallmenni er er hins vegar talsverð vinna sem krefst samstarfs og einbeitingar. Mun hún standa um það bil næstu þrjá mánuði, með þátttöku af öllum sviðum.