
Sem kunnugt er hefur notkun á annarri af tveimur flugbrautum á Reykjavíkurflugvelli verið takmörkuð um skeið, svo flugöryggi sé ekki stefnt í tvísýnu. Nauðsynlega þarf að fjarlægja þau tré sem eru hindrun í veginum. Skógarhöggið hefur gengið fljótt og verkefnið unnist betur en fyrst var talið mögulegt.
Nokkrir starfsmenn sem hafa komið að verkefninu um flugöryggi á Reykjavíkurflugvelli fóru í vettvangsferð í Öskjuhlíð í gær. Hlín Hólm, deildarstjóri FFF sem hefur leitt verkefnið fyrir hönd Samgöngustofu, var að sjálfsögðu í broddi fylkingar. Afar áhugavert var að sjá skógarhöggsmenn að störfum með skilvirkum tækjabúnaði. Í ljós er að koma fallegt landslag sem snýr í sólarátt. Það mun væntanlega gefa ný tækifæri til plöntunar á lágvaxnari gróðri og útivistar fyrir höfuðborgarbúa.