Samgöngustofa hefur aflétt tilskipun um öryggi nr. 1-2025

Í kjölfar grisjunar á trjágróðri í Öskjuhlíð að undanförnu lét Isavia innanlandsflugvellir  framkvæma nýtt mat á aðstæðum. Það sýnir að skilgreindir VSS-fletir eru nú án hindrana og í samræmi við mildunarráðstafanir.  Samgöngustofa hefur yfirfarið gögnin og metið niðurstöðurnar.

Með hliðsjón af þessu hefur Samgöngustofa afturkallað tilskipun um takmarkanir á notkun flugbrautar 13/31 í þágu flugöryggis, sem tók gildi 8. febrúar sl.