Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar


Árleg Rannsóknaráðstefna Vegagerðarinnar 2022 verður haldin föstudaginn 28. október á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut, kl. 09.00-16.30.

Dagskráin er fjölbreytt að vanda og endurspeglar það margháttaða rannsókna- og þróunarstarf sem styrkt er af rannsóknasjóði Vegagerðarinnar. 

Sextán rannsóknaverkefni verða til umfjöllunar og samhliða veggspjaldasýning með um tíu verkefnum. 

Vegagerðin

Styrkur rannsóknasjóðs Vegagerðarinnar liggur í því að styrkja verkefni á mjög breiðu fræðasviði þar sem ekki er endilega einblínt á hefðbundna vegagerð. Verkefnin falla þó undir fjóra almenna flokka sem eru: mannvirki, umferð, umhverfi og samfélag.

Ráðstefnan hefur alla jafna verið fjölsótt af starfsfólki Vegagerðarinnar, starfsfólki ráðgjafa- og verkfræðistofa, verktaka og almenns áhugafólks um samgöngur og rannsóknir.  

Á ráðstefnunni í ár verður mest fjallað um rannsóknir sem fengu fjárveitingar úr rannsóknasjóði Vegagerðarinnar árið 2021. 

Opnað hefur verið fyrir skráningar. 

Almenn skráning – smelltu á hlekkinn. 

Dagskrá ráðstefnunnar er eftirfarandi:

09:00Setning ráðstefnuBergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar
09:10Byggjum grænni framtíð: Leiðin að vistvænni mannvirkjagerðÞóra Margrét Þorgeirsdóttir, verkefnisstjóri Byggjum grænni framtíð og teymisstjóri nýsköpunnar Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar
09:30Aukið hlutfall á endurunnu malbiki í ný slitlögBjörk Úlfarsdóttir, Colas Ísland
09:45Leir í malarslitlögumHafdís Eygló Jónsdóttir, Vegagerðin
10:00ROADEX rannsóknir á umferðarminni vegumÞorbjörg Sævarsdóttir, Vegagerðin
10:15Hlé
10:45Ný tenging milli forsteypts stöpulveggjar og staðsteypts sökkulsFranz Sigurjónsson, Háskóli Íslands
11:00Betri kostnaðaráætlanirBaldvin Einarsson og Guðrún María Guðjónsdóttir, EFLA
11:15Staðsetningar- og eftirlitskerfi fyrir baujur sem nýtir DGNSS og LoraWan fjarskiptiÞorsteinn Sæmundsson, Háskóli Íslands
11:30Fyrirspurnir
11:45Hádegishlé
13:00Samgöngumat-grunnur að leiðbeiningumÓlöf Kristjánsdóttir, Mannvit, og Cecilía Þórðardóttir, Velocity Transport Planning
13:15Vinstribeygjur – Slysagreining á mismunandi útfærslum varinna vinstribeygjufasa á ljósastýrðum gatnamótum höfuðborgarsvæðisinsDavíð Guðbergsson, VSÓ Ráðgjöf
13:30Samanburður á ferðatíma Strætó og einkabílsins innan höfuðborgarsvæðisinsDaði Baldur Ottósson, EFLA
13:45Deiliskipulag þjóðvega í þéttbýliAndrea Kristinsdóttir, VSÓ Ráðgjöf
14:00Kortlagning hávaða með CNOSSOS-EUÓlafur Hafstein Pjetursson,  Trivium ráðgjöf
14:15Brýr í hringrásarhagkerfiMagnús Arason, EFLA
14:30Fyrirspurnir
14:45Hlé
15:15Strandlínubreytingar á Suðausturlandi frá 1903 til 2021, Ingibjörg Jónsdóttir, Háskóli Íslands
15:30Notkun fjarkönnunargagna til að ákvarða þröskulda fyrir skriðuhættu á ÍslandiEsther Hlíðar Jensen, Veðurstofan
15:45Rannsóknir og vöktun á hreyfingum við vegstæði Siglufjarðarvegar um Almenninga með síritandi GNSS staðsetningatækniHalldór Geirsson, Háskóli Íslands
16:00Rannsóknir á tengslum veðurfarsbreytinga og hreyfinga á og við vegstæði Siglufjarðarvegar um AlmenningaElías Arnar Nínuson, Háskóli Íslands
16:15Fyrirspurnir
16:30Ráðstefnuslit – léttar veitingar