Nýtt útlit vefsins

Eins og kom fram í föstudagspósti Jóns Gunnars þá munu vefirnir okkar, www.samgongustofa.is og www.icetra.is, fá nýja útlitið í dag og reiknar Hugsmiðjan með að hefja störf við breytingarnar á milli kl. 9 og 10. Það er áætlað að það taki um hálftíma að breyta útlitinu og getur verið að vefirnir líti skringilega út á einhverjum tímapunkti á þessum hálftíma en það á ekki að raska t.d. því að fólk komist á Mitt svæði.

Það geta alltaf  komið upp einhver vandkvæði við svona breytingar og munum við fara vel yfir vefina í dag til að sjá hvort eitthvað hafi óvænt farið úr skorðum en vonandi gengur þetta allt eins og best verður á kosið.

Við erum ekki að gera strúktúrs- eða efnisbreytingar að þessu sinni, hér er aðallega um útlitsbreytinar að ræða. Forsíðan mun þó breytast töluvert og endurbætur unnar á leiðarkerfi vefsins. Mörg ykkar hafa tekið eftir því að notendur hafa átt í erfiðleikum með að finna lag nr. 2 í leiðarkerfinu og var því ákveðið að nýta ferðina og stórbæta það.

Þið megið endilega hjálpa okkur að fylgjast með í dag og láta okkur vita á vefur@samgongustofa.is ef þið sjáið eitthvað á vefnum sem hefur farið úr skorðum við breytingarnar.

Annars bara til hamingju með nýtt útlit Samgöngustofu 🙂