Nýtt innra gæðakerfi Samgöngustofu

CCQ – Gæðastjórnun - CCQ

CCQ er nýtt innra gæðakerfi Samgöngustofu. Innleiðing gæðahandbókar okkar í CCQ hefur staðið yfir undanfarna mánuði með skipulagðri þjálfun fyrir ritnotendur. Þjálfunin hefur hingað til miðað að ábyrgðaraðilum skjala og því starfsfólki sem kemur að uppfærslu gæðaskjala. Einstaka deildir hafa fengið þjálfun sem lesnotendur en til stendur að bjóða öllu starfsfólki slíka þjálfun að sumri loknu. Yfirfærsla gæðaskjala er hafin hjá nokkrum deildum og mun standa yfir næstu mánuði. Markmiðið er að öll gæðaskjöl, verklagsreglur og stefnuskjöl verði komin úr Gæsku og yfir í CCQ í haust.

Ábendingakerfið Bendill er hluti af CCQ en þar hafa borist margar ábendingar um ýmis málefni frá því við innleiddum kerfið. Sumar hverja snúa að brotnu verklagi en aðrar að öðrum málefnum sem snerta okkar daglega vinnuumhverfi og hvernig við getum bætt það.