
Nýja útlitið okkar er smám saman að taka yfir það gamla og nú er nýja merkið komið yfir aðalinnganginn sem og á öðrum stöðum. Snorri og Ólöf flögguðu nýju fánunum á mánudaginn í síðustu viku og þá fór nýja útlit vefsins okkar einnig í loftið. Það er að ýmsu að huga og gamla merkið er notað á ýmsum vefum annarra stofnanna og höfum við sett okkur í samband við ýmsa aðila og beðið þá um að skipta út. Ef þið verðið vör við gamla merkið einhversstaðar á víðnetinu eða eruð með ábendingu um staði sem ekki er búið að skipta út hjá okkur megið þið endilega senda ábendingu á samskipti@samgongustofa.is.
Nýja hönnunarstaðlinn má nálgast hér.




