
Þá liggja niðurstöður forsetaskuggakosningar Samgöngustofu árið 2024 fyrir. Niðurstöðurnar voru teknar kl 13:43 í dag föstudag og 60 tóku þátt í henni. Niðurstöðurnar eru eftirfarandi:

Rétt eins og í nýjustu könnunum mælast Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir hnífjafnar. Í síðustu könnun raunheima mælast þær með 24,1% fylgi hvor en í skuggakosningu Samgöngustofu mælast þær báðar með 28,33% fylgi (17 atkvæði hvor). Á eftir Katrínu og Höllu T kemur Jón Gnarr með 7 atkvæði en það skilar honum 11,67% fylgi. Baldur fær 6 atkvæði og 10% fylgi en Halla Hrund 5 atkvæði og 8,33% fylgi. Ásdís Rán, Ísdrottningin, fær 4 atkvæði og 6,67% fylgi og Arnar Þór Jónsson fær 3 atkvæði og 5% fylgi. Viktor Traustason rekur svo lestina með 1 atkvæði sem skilar honum 1,67% fylgi.
Áður en ég hleypi ykkur í helgina og kosningar morgundagsins vil ég bjóða ykkur að lesa tilgerðalegan og innihaldslausan texta um íslensk gildi í boði ChatGPT:
Íslendingar eru stoltir arftakar eldfornra sagna og náttúrufegurðar og standa vörð um gildin sín með djúpstæðu tilfinningalegu samhengi og þjóðlegri einingu. Þeir bera gildi eins og heiðarleika, hreinskilni og samfélagslega samstöðu á lofti með mikilli virðingu fyrir arfleifð sinni. Í landinu þar sem eldgos og jöklar móta landið, finna Íslendingar fyrir sérstökum tengslum við náttúruna sem endurspeglast í menningu þeirra og daglegu lífi. Með sterkri tilfinningu fyrir réttlæti og jafnræði, leggja þeir áherslu á jafnvægi í öllu sem þeir taka sér fyrir hendur. Þessi gildi, sem eru rótgróin í hjarta þjóðarinnar, endurspegla sanna kjarna íslenskrar sjálfsmyndar og menningar.
Góða helgi og ekki gleyma að nýta kosningaréttinn!