
Undanfarna mánuði höfum við verið að vinna að innleiðingu CCQ, nýju innra gæðakerfi Samgöngustofu. CCQ kemur til með að leysa Gæsku af hólmi og hýsa gæðahandbókina okkar. Þjálfunin hefur hingað til miðað að ábyrgðaraðilum skjala og því starfsfólki sem kemur að uppfærslu gæðaskjala. Einstaka deildir hafa fengið þjálfun sem lesnotendur, en nú er ætlunin að bjóða öllu starfsfólki upp á slíka þjálfun.
Yfirfærsla gæðaskjala er langt komin hjá mörgum deildum og mun standa yfir næstu mánuði. Markmiðið er að öll gæðaskjöl, verklagsreglur og stefnuskjöl verði komin úr Gæsku og yfir í CCQ um næstu áramót. Þegar gæðaskjöl hafa verið færð yfir í CCQ eru þau gerð ógild í Gæsku en þannig mun CCQ taka við af Gæsku.
Boðið verður upp á tvo kennsludaga, annars vegar mánudaginn 24. október og hins vegar mánudaginn 31. október. Kennslunni verður skipt upp með þeim hætti að fyrsti hálftíminn fer í þá þjálfun sem snýr að lesnotendum, en seinni hálftíminn miðast að skrifnotendum. Í fundarboðinu sem sent verður síðar í dag má sjá nánari útlistun á áhersluatriðum námskeiðsins. Athugið að send verða tvö fundarboð fyrir sitthvorn daginn. Þið svarið því boði sem hentar ykkur betur.
Endilega nýtið ykkur þessa þjálfun, komið undirbúin og með spurningar. Þannig fáið þið mest út úr námskeiðinu.