Munkamars í stað Mottumars?

Frá vinstri: Sigurjón, Orri, Þröstur og Ingibjörg Þorstseinsdóttir

Í tilefni af Mottumars er tilvalið að rifja upp skemmtilegt framtak í sama mánuði fyrir 13 árum síðan, nánar tiltekið árið 2010. Þá tóku nokkrir starfsmenn Flugmálastjórnar sig til og létu raka af sér hárið í tilefni motturmars en það þótti þeim betri kostur en að safna mottu.

Þetta voru þeir Sigurjón, Orri og Þröstur sem allir starfa hjá Samgöngustofu í dag. Framtakið gekk undir nafninu Munkamars og söfnuðu þeir félagar áheitum á meðal samstarfsfólks fyrir Krabbaeinsfélagið af þessu tilefni.

Nú er spurning hvort einhverjir hér innanhúss séu til í Munkamars í stað Mottuumars þetta árið?

Myndir segja meira en þúsund orð:

Spurning hvort Orri sé með bakþanga þarna í stólnum…
Ingibjörg Þorsteinsdóttir þáverandi fjármálastjóri var fengin í verkið
Þröstur Erlingsson í stólnum góða