
Eins og fram kom í pósti frá Jóni Gunnari fyrir helgi er nú að hefjast verkefni um nýjar ljósmyndir fyrir Samgöngustofu, til að nota við kynningar og fræðsluna okkar. Nýja ásýndin frá miðju síðasta ári felur m.a. í sér fallegar myndir af notendum í samgöngum. Sá böggull fylgdi skammrifi að fjöldi þeirra er takmarkaður og að auki er heimild til að nota myndirnar tímabundin út þetta ár. Því höfum við gert áætlun um nýjar myndir í svipuðum dúr til að nota í sama tilgangi. Markmiðið er að eignast gott safn ljósmynda sem við getum birt með stolti. Svo verkefnið verði sem hagkvæmast er planið að vinna það sem mest sjálf á venjulegum vinnutíma. Einar Magnús Magnússon í öryggis- og fræðsludeild hefur tekið að sér að taka myndirnar, en hann er einmitt afar flinkur og vandvirkur ljósmyndari. Hugmyndin er jafnframt að leita liðsinnis úr röðum starfsfólks Samgöngustofu til að sitja fyrir á myndum í umferð, flugi og siglingum. Ekki verður greitt sérstaklega fyrir þátttökuna en ætlunin er að veita smá þakklætisvott í formi gjafabréfa fyrir viðvikið. Að sjálfsögðu verður samþykki fólki í sjálfsvald sett en vonast er til að umleitunum verði vel tekið.