Hér eru leiðbeiningar um skráningu í Vinnustund og skil á vottorði ef þið lendið í sóttkví eða einangrun:

Í sóttkví
Fjarvistartegund í Vinnustund er „sóttkví skv. fyrirmælum yfirvalda, launuð fjarvera gr. skv. 12.2.6“.
Ef hægt má vinna heima á meðan sóttkví stendur skal nota inn- og útstimplun í Vinnustund eða Smástund. Ekki er heimilt að mæta til vinnu á starfsstöð á meðan sóttkví stendur.
Mælum með að skrá sóttkví í einni færslu þegar sóttkví lýkur, hafið samband ef þið viljið aðstoð við skráningu í Vinnustund.
Í einangrun
Þegar einstaklingur greinist með covid eru þeir dagar skráðir sem veikindi.
Ef fólk er einkennlaust og hresst er heimilt að vinna heima, ef hægt. Þess ber að geta að sama gildir um veikindi þó unnið sé heima – starfsmaður sem er sannarlega veikur á ekki að vinna heldur hugsa um heilsuna og ná bata.
Mælum með að skrá einangrun/sóttkví í einni færslu þegar tímabilinu lýkur, hafið samband ef þið viljið aðstoð við skráningu í Vinnustund.
Vottorð
Á Heilsuvera.is er hægt að sækja vottorð vegna sóttkvíar og einangrunar undir flipanum „Covid-19“ > „Vottorð“
ath. að sækja ekki vottorð fyrr en sóttkví/einangrun lýkur, annars gæti vantað lokadagsetningu á vottorðið.